09.03.1981
Neðri deild: 61. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2781 í B-deild Alþingistíðinda. (2893)

237. mál, þýðingarsjóður

Flm. (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég skal ekki bæta miklu við þetta. Ég vil aðeins þakka jákvæðar undirtektir undir þetta frv. okkar hv. þm. Ingólfs Guðnasonar. Mér er ljóst að auðvitað getur vel verið að líta þurfi betur á þetta frv. og gera á því einhverjar breytingar til bóta. Persónulega held ég þó eftir töluverða athugun einmitt á 2. gr. frv., að við hljótum að hafa efni á því að hafa markaðan tekjustofn til þessara hluta. Ég held að fá mál séu, þegar öllu er á botninn hvolft, þýðingarmeiri en það að við viðhöldum tungu okkar. Ég held að það þurfi að þýða töluvert mikið af því, sem út er gefið í heiminum í dag, í þeirri hröðu þróun sem á sér stað, til þess að tungan haldi í við erlend mál. Og eftir töluverða umhugsun fannst mér að það væri varla ofverk Alþingis Íslendinga að hafa þann tekjustofn markaðan. Ég er hins vegar alveg sammála því, að það veldur vissulega erfiðleikum fyrir hv. fjvn. hversu margir hinir mörkuðu tekjustofnar eru.

En þar sem fundartíminn er úti vil ég þakka enn á ný vinsamlegar undirtektir við þetta mál og leyfa mér að leggja til að því verði vísað til hv. menntmn. deildarinnar.