10.03.1981
Sameinað þing: 58. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2789 í B-deild Alþingistíðinda. (2901)
379. mál, skilyrði fyrir ríkisábyrgð vegna lántöku Flugleiða
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Þegar Alþingi afgreiddi ríkisábyrgð handa Flugleiðum varð algjör samstaða um það hér á Alþingi hver þau skilyrði ættu að vera sem sett væru. Hins vegar var ágreiningur um það, hvort þessi skilyrði ætti að binda í lógum, en hæstv. samgrh. lýsti því þá yfir og við aðrir, sem að því stóðum að ganga frá þessu nál., að skilyrðin væru ígildi laga.
Það er hins vegar rétt, að í ljósi reynslunnar hefði e. t. v. verið réttara að fara þá leið sem fulltrúar Alþfl. lögðu þá til, að binda skilyrðin í lögum. Því miður verður að játa það hér, að stjórn Flugleiða hefur hvað eftir annað og í hverju tilvikinu á fætur öðru reynt að skjóta sér undan því að standa við þessi skilyrði. Fyrirspyrjandi Kjartan Jóhannsson lýsti hér hvernig reynt hefur verið með margvíslegum ráðum að koma í veg fyrir að starfsfólk gæti eignast stærri hlut í fyrirtækinu.
Það er einnig ljóst í öðru lagi, að reynt hefur verið að hengja aftan í kaup starfsmanna Arnarflugs á hlutabréfum Flugleiða í því fyrirtæki alls konar óeðlileg skilyrði til að hindra að þau kaup gætu orðið að veruleika. Það er einnig ljóst í þriðja lagi, að stjórnendur fyrirtækisins hafa reynt eftir ýmsum leiðum að tefja það að ríkið, fulltrúar almennings í landinu, gæti eignast ákvörðunarrétt í stjórn félagsins í samræmi við það fjármagn sem látið hefur verið í té.
Við stöndum þess vegna frammi fyrir því í dag, Alþingi Íslendinga, sem staðreynd, að nú á fyrri hluta marsmánaðar hefur fyrirtækið annaðhvort ekki eða næstum því ekki staðið við þrjú af þeim meginskilyrðum sem Alþingi Íslendinga setti fyrir þessari ríkisábyrgð. Það er staðreynd, óumdeilanleg staðreynd. (Forseti hringir.) Ég verð, herra forseti, að fá að klára þetta. Það er hins vegar misskilningur hjá fyrirspyrjanda, að ég sem formaður fjh.- og viðskn. Ed. hafi tekið þátt í einhvers konar samkrulli með ráðherrum eða öðrum aðilum um það að fallast á að ekki yrði orðið við þessum skilyrðum. Það eina, sem ég átti hlut að, var að tjá mig um það, hvort hluthafafundur væri aðferð til þess að ná fulltrúum ríkisvaldsins í stjórn fyrirtækisins. Og ég taldi það vera rétta aðferð, vegna þess að markmiðið var að fá þessa fulltrúa inn, enda kom fram í nál. fjh.- og viðskn. Nd., þegar Nd. samþykkti skilyrðin, að sú aðferð kæmi einnig til greina. Ég taldi þess vegna að með þessari aðferð væri ekki verið að ganga neitt á móti þeim skilyrðum, sem Alþingi hefði sett. En það er það eina. Ég vil láta það koma skýrt fram.
Ég hef hins vegar tjáð bæði hæstv. samgrh. og eins hæstv. fjmrh. þá skoðun mína, — og ég er að ljúka máli mínu, herra forseti, — sem ég var hér að lýsa, að það hefur ekki verið staðið við þrjú af þeim meginskilyrðum sem sett voru. Og Alþingi Íslendinga og stjórnvöld standa nú frammi fyrir þeirri ákvörðun innan tíðar, kannske innan nokkurra daga eða örfárra vikna, hvort eigi að láta fyrirtækið fá alla ríkisábyrgðina, það sem eftir er af ríkisábyrgðinni, þrátt fyrir það að við öll skilyrðin hafi ekki verið staðið. Það væri nauðsynlegt að fram færi hér innan Alþingis umræða um það, hvort Alþingi er reiðubúið að láta alla ríkisábyrgðina af hendi næstu daga eða næstu vikur eða meira en gert hefur verið nú þegar, þó að skilyrðin hafi ekki verið uppfyllt.
Ég þakka umburðarlyndið, herra forseti.