10.03.1981
Sameinað þing: 58. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2796 í B-deild Alþingistíðinda. (2910)
175. mál, ávöxtun skyldusparnaðar
Fyrirspyrjandi (Guðmundur G. Þórarinsson):
Herra forseti. Ég hef lagt fram á þskj. 223 svohljóðandi fsp. til félmrh. um ávöxtun skyldusparnaðar ungs fólks:
„1. Hvað líður setningu reglugerðar um útreikning og framkvæmd á ávöxtun skyldusparnaðar ungs fólks í samræmi við lagasetningu um þessi mál á Alþingi s. l. vor?
2. Eftir hvaða reglum er ávöxtun skyldusparnaðar ungs fólks hagað nú?“
Eins og öllum þingheimi er kunnugt hefur á undanförnum misserum farið fram nokkuð viðamikil umræða um ávöxtun skyldusparnaðar ungs fólks, þ. á m. hér á Alþingi. Það er engin ástæða til að endurtaka þær umræður, þær eru sjálfsagt flestum í fersku minni. En ég hygg að alþjóð hafi verið sammála um að þær reiknireglur, sem um þessa ávöxtun giltu, hafi verið algjörlega fráleitar í því verðbólguþjóðfélagi sem við lifum í.
S. l. vor lagði Alþingi áherslu á breytta tilhögun um ávöxtun þessa skyldusparnaðar með sérstakri lagasetningu. Það virðist hafa dregist nokkuð að reglugerð um nánari útfærslu þessara laga kæmi fram. Fsp. var borin fram fyrir áramót, og mér er ekki alveg kunnugt um hvað hefur skeð í þessu máli síðustu daga, en orðalag fsp, er miðað einmitt við þann tíma. Ég vil sérstaklega spyrja félmrh., ef þessi reglugerð hefur komið fram, núna síðust daga, á hvern hátt ávöxtun skyldusparnaðar ungs fólks verði hagað þann tíma sem líður frá setningu laganna til útgáfu reglugerðar, og leggja áherslu á þann skilningi minn, að ávöxtun skyldusparnaðarins eigi auðvitað að fara fram í samræmi við lögin frá því að þau voru sett.