10.03.1981
Sameinað þing: 59. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2800 í B-deild Alþingistíðinda. (2919)
222. mál, ókeypis símaþjónusta opinberra stjórnsýslustofnana
Flm. (Árni Gunnarsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um ókeypis símaþjónustu — sem innan gæsalappa eru kölluð „frínúmer“ — opinberra stjórnsýslustofnana. Þessi till. er flutt af þm. Alþfl. og í upphafi till. segir:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta þegar í stað gera þær breytingar á símakerfum helstu stjórnsýslustofnana ríkisins, að þar verði notuð svokölluð „frínúmer“. Almenningi verði gert kleift að hringja í þessi „frínúmer“ hvaðan sem er af landinu án kostnaðar eða þannig, að hver hringing telji aðeins eitt skref.“
Þetta mál er þess eðlis, ef ég nota um það fá orð, að í ýmsum löndum hefur sá siður verið upp tekinn, bæði hjá stórfyrirtækjum og opinberum þjónustustofnunum, að til þeirra getur fólk hringt hvaðanæva að — ekki eingöngu af því svæði sem þessar stofnanir eru á, heldur alls staðar að — án þess að hringingin bæti á kostnað þess er hringir. Þetta er t. d. mjög algengt í Bandaríkjunum. Þar nota opinberar stofnanir þetta kerfi mikið til þess að jafna raunverulegan símakostnað hins almenna borgara. Í grg. með þessari till. segir m. a.:
„Um langt árabil hefur ójöfnuður ríkt um notkun síma á milli íbúa einstakra landshluta. Innan stór-Reykjavíkursvæðisins hefur kostnaður símnotenda verið lægri en utan þess. Ójöfnuðurinn verður því meiri þegar þess er gætt, að nær allar stjórnsýslustofnanir hins opinbera eru á Reykjavíkursvæðinu svo og höfuðstöðvar banka og sjóða og hvers konar þjónustumiðstöðvar.
Íbúar utan stór-Reykjavikursvæðisins verða á ári hverju að greiða margfaldan símakostnað vegna viðskipta við hið opinbera, ef borið er saman við íbúa innan svæðisins. Vart þarf að minna á hve oft þarf stundum að hringja til að ná í einn tiltekinn mann, hve oft þarf að bíða í síma langar stundir og árangur þá ekki alltaf tryggður. Bið og margar hringingar í opinberar stofnanir í Reykjavík kosta mikla fjármuni þegar hringt er utan 91-svæðisins.
Stjórnvöld vilja reyna að leysa vanda ójafnaðar með því að hækka gjöld þeirra sem léttari byrðar hafa borið, sbr. skrefatalningu í Reykjavík, með ærnum tilkostnaði. Ekki skal lagður dómur á nauðsyn þessarar aðferðar, en ætla má að jafneðlilegt væri að reyna að lækka kostnað þeirra er búa utan stór-Reykjavíkursvæðisins. Það má m. a. gera með „frínúmerum“, eins og hér er gerð till. um, og með lengingu þess tíma á hverjum sólarhring þegar taxti er lækkaður.
Í allmörgum löndum er „frínúmera“-kerfi notað. Má í því sambandi nefna Bandaríkin, þar sem margar opinberar stofnanir veita ókeypis símaþjónustu. Þetta gerist einnig hjá nokkrum fyrirtækjum í einkaeign og er algengt hjá flugfélögum.
Samkvæmt upplýsingum símafyrirtækisins „Pacific North-West Bell“ er kostnaður við tæknilegar breytingar tiltölulega lítill og hefur farið lækkandi með nýrri tækni. Þar hefur þessi þjónusta verið veitt í rúmlega 17 ár, og hver sem er getur tekið slíkt kerfi — eða slíka tækni — á leigu.
Ekki er nauðsynlegt að símnotendur losni algjörlega við kostnað ef þeir hringja í „frínúmer“. Hugsanlegt væri að þeir greiddu eitt skref og þá allir jafnt hvar sem er á landinu.
Nauðsynlegt er að meta vandlega hvaða opinberar stofnanir ættu að hafa slík „frínúmer“. Í því sambandi má nefna Stjórnarráð Íslands, Framkvæmdastofnun, Tryggingastofnun ríkisins og Húsnæðisstofnun ríkisins.
Það er trú flm. þessarar till., að „frínúmer“ gætu að mun jafnað þann óeðlilega mismun sem getur orðið við að njóta þjónustu hins opinbera eftir því hvort einstaklingurinn býr innan eða utan stór-Reykjavíkursvæðisins.“
Ég vil svo eingöngu bæta því við, herra forseti, að ég tel að hér gæti verið á ferðinni eitt þeirra mála sem jöfnuðu þann kostnað, sem fólk innan og utan stór-Reykjavíkursvæðisins hefur af því að nota síma, og einnig að það mundi létta mörgum þá miklu byrði sem það er að þurfa að leita til opinberra stofnana hér á Reykjavíkursvæðinu þegar ýmsir menn eru ekki við og það þarf að bíða í síma. Og það var eins og maðurinn sagði: Það var maður, sem eitt sinn hringdi í opinbera skrifstofu og fékk það svar að forstjórinn væri þar. — En það er önnur saga. Tillagan er flutt í þeim tilgangi að jafna símakostnað fólks á stór-Reykjavíkursvæðinu og utan þess.