10.03.1981
Sameinað þing: 59. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2801 í B-deild Alþingistíðinda. (2921)
205. mál, graskögglaverksmiðja
Flm. (Davíð Aðalsteinsson):
Herra forseti. Á þskj. 397 er till. til þál. um graskögglaverksmiðju. Flm. auk mín eru hv. þm. Alexander Stefánsson, hæstv. dómsmrh. Friðjón Þórðarson, hv. þm. Skúli Alexandersson, Eiður Guðnason og Jósef H. Þorgeirsson, þ. e. allir þm. Vesturl. Till. hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að undirbúa þátttöku ríkisins í stofnun og rekstri graskögglaverksmiðju í Borgarfirði í samvinnu við heimaaðila.“
Í framsögu minni mun ég leitast við að gera grein fyrir þessu máli í sem fæstum orðum, enda geri ég ráð fyrir að hv. þm. sé kunnugt um flest það sem lýtur að íslenskum fóðuriðnaði. Ég vil þó í upphafi minna á það, að sögu íslensks fóðuriðnaðar má rekja til ársins 1948 þegar Klemens á Sámsstöðum hóf framleiðslu á grasmjöli. Um tveggja áratuga skeið eða síðan 1961 hefur hraðþurrkað fóður verið framleitt í verksmiðjum hér á landi. Nú eru starfandi fjórar verksmiðjur í eigu ríkisins auk verksmiðjunnar í Brautarholti, sem er í einkaeign. Eimingargeta þessara verksmiðja er orðin u. þ. b. 20 tonn af vatni á klst. og framleiðslugetan 10–12 þús. tonn af graskögglum árlega.
Eins og kunnugt er er í undirbúningi bygging graskögglaverksmiðja í Saltvík í Suður-Þingeyjarsýslu og í Hólminum í Skagafirði. Fyrirhugað er að nýta innlenda orku til hraðþurrkunar í stað svartolíu eins og gert er í þeim verksmiðjum sem nú starfa. Ef athugaðar eru tölur um framleiðslu á hraðþurrkuðu fóðri kemur fram að uppbygging í fóðuriðnaði hefur verið mest á árabilinu 1971–1978, en síðan hefur lítið verið gert. Ef lítið er yfir þróunina er, að ég held, óhætt að segja að sala graskögglaframleiðslunnar hafi gengið nokkuð greiðlega flest árin þrátt fyrir harða samkeppni við niðurgreiddar fóðurvörur frá Efnahagsbandalagslöndum, enda láta bændur mjög vel af þessari íslensku framleiðslu.
Haldgóðar rannsóknir hafa jafnframt farið fram á gæðum grasköggla. Niðurstöður þeirra rannsókna sýna að graskögglar eru fullkomlega samkeppnisfærir við innflutt kjarnfóður sem fóðurbætir fyrir jórturdýr að vissu marki. Einnig hefur komið fram að notagildi grasköggla til fóðrunar er meira en fóðurgildisákvarðanir á þeim benda til. Talið er að hið drjúga notagildi stafi af jákvæðum samverkandi áhrifum graskögglanna og heyfóðurs. Rannsóknir og niðurstöður þeirra eru samhljóða rannsóknum á sama sviði erlendis. Rétt er að geta þess, að samkvæmt upplýsingum frá Búnaðarfélagi Íslands má grasmjöl nema 15–20% í fóðurblöndum handa varphænum. Sama gildir um fóður varpfugla í uppeldi. Í fóðri svína, annarra en sláturgrísa, má grasmjöl nema 15–20% af heildarfóðrinu. Miðað við það magn af fóðurblöndum, sem nú er notað til hænsna- og svínafóðurs hér á landi, mætti nota í þær 1500–2000 tonn af grasmjöli. Eins og kunnugt er þykja graskögglar mjög gott fóður handa hrossum. Sennilega mun óhætt að fullyrða að bændur yfirleitt telji sig hafa haft mjög góða reynslu af notkun grasköggla og jafnframt betri en fóðurgildismælingar segja til um.
Jafnframt aukningu innlendrar fóðurframleiðslu hefur dýrmætum gjaldeyri verið eytt til kaupa á erlendu kjarnfóðri undanfarin ár. Innflutningur á kjarnfóðri árið 1979 var 84 918 tonn, enda hefur innflutningur kjarnfóðurs ekki verið meiri í annan tíma, en eins og kunnugt er fór saman mjög erfitt árferði og lágt verð á fóðurbæti. Árlegur meðalinnflutningur á kjarnfóðri 1970–1979 var u. þ. b. 66 þús. tonn. Svo sem kunnugt er var innflutningur á liðnu ári miklu minni, eða líklega tæp 60 þús. tonn.
Árið 1976 gerði Búnaðarþing ályktun um innlenda fóðurframleiðslu þar sem jafnframt er skorað á landbrh. að skipa nefnd til þess að gera heildaráætlun um eflingu fóðuriðnaðar á Íslandi er fullnægt geti að mestu fóðurbætisþörf landbúnaðarins. Nefndin var skipuð 7. maí sama ár. Í henni sátu sjö valinkunnir menn með staðgóða þekkingu og reynslu í málefnum íslensks landbúnaðar.
Nefndin vann allítarlegt álit, en þar stendur m. a., með leyfi forseta:
„Að vandlega athuguðu máli telur nefndin því réttmætt að gera skipulegt átak til að stórauka fóðuriðnað í því skyni að draga sem frekast má verða úr innflutningi erlends fóðurs. Bersýnilega þarf að mörgu að hyggja að því er varðar skipulag, uppbyggingarhraða, fjármögnun, rekstrarform, eignaraðild, dreifingarkerfi o. fl.“
Fram kemur í nál. að auka beri afköst hins innlenda fóðuriðnaðar í u. þ. b. 40 þús. tonn árlega og að æskilegt væri að því marki yrði náð árið 1990. Í nál. stendur, með leyfi forseta:
„Eins og fram kemur víðar í þessari álitsgerð telur nefndin brýna nauðsyn að nota innlenda orku til þurrkunar í verksmiðjunum, eftir því sem tök eru á, og álítur það raunar hafa meginþýðingu fyrir framgang þeirrar ráðagerðar sem hér er verið að ræða. Kemur hér einkum til greina nýting jarðhita, þ. e. að byggja verksmiðjur þar sem hans er kostur án mikils hitaveitukostnaðar.“
Segja má að framleiðslugeta þeirra verksmiðja, sem fyrir eru í landinu, hafi verið næstum fullnýtt á liðnu sumri. Framleiddar voru 12 458 lestir af graskögglum, 400 lestir af mjöli og 350 lestir af graskökum. Heildarframleiðslan var því 13 208 lestir af hraðþurrkuðu fóðri. Þrátt fyrir þær verksmiðjur, sem fyrirhugað er að byggja í Hólminum og í Saltvík, er langt frá því, að innlendur fóðuriðnaður hafi náð þeirri hlutdeild á hérlendum fóðurmarkaði sem vísustu menn telja æskilegt, og fyrir því má telja upp fjölmörg rök í ríkari mæli en gert hefur verið í þessari framsögu. Þess vegna er augljóst að bygging fleiri graskögglaverksmiðja þarf að koma til ef einhver alvara er í því að auka innlendan fóðuriðnað. Með sem hagkvæmastan rekstur að markmiði auðvitað og eðlilega staðsetningu með tilliti til landkosta. Það er álit mitt og vafalaust allra flm., og ég trúi því að það sé álit flestra alþm., að með því móti verði enn frekar treyst þjóðhagslegt gildi landbúnaðar.
Áhugi á byggingu graskögglaverksmiðju í Borgarfjarðarhéraði hefur verið meðal heimamanna um langt skeið. Fyrir u. þ. b. áratug fóru fram kannanir á staðsetningu slíkrar verksmiðju, en því miður varð ekkert úr framkvæmdum í þá tíð, m. a. vegna forgangsröðunar er gerð var samkvæmt lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum.
Þegar frumkönnun á hitaveitu fyrir Akranes og Borgarnes var gerð af Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen árið 1973 var stofnun og starfræksla graskögglaverksmiðju tekin inn á áætlun um hitaveituna. Þótti líklegt að slík verksmiðja gæti orðið arðbært fyrirtæki sem nýtti umframorku frá hitaveitunni. En síðan hefur lítið gerst þar til á liðnu ári. Bygging graskögglaverksmiðju var rædd á sameiginlegum fundi allra oddvita í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og stjórnar Búnaðarsambands Borgarfjarðar 26. mars 1980. Á þessum fundi kom fram mikill áhugi á því að setja á fót graskögglaverksmiðju í Borgarfjarðarhéraði. Kosin var þriggja manna nefnd til þess að vinna að þessu þýðingarmikla máli. Í nefndinni eru Bjarni Guðráðsson, Nesi, Sigurður Sigurðsson, Stóra-Lambhaga, og Sveinn Bjarnason, Brennistöðum. Jafnframt hefur Bjarni Arason ráðunautur starfað með þessari nefnd.
Það er rétt að geta þess, að nefndin hefur unnið af krafti að þessu máli og telur mjög álitlegt að reisa verksmiðju er nýti umframorku frá Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar til fóðuriðnaðar. Viðhorf forráðamanna Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar til slíkrar orkusölu hafa verið könnuð og er ekki hægt að segja annað en að viðbrögð hafi verið hin jákvæðustu. Nefndin hefur rætt við landbrh. og landnámsstjóra. 7. nóv. 1980 hélt nefndin síðan fund með oddvitum í héraðinu og lagði þar til að stofnað yrði félag um uppbyggingu og rekstur graskögglaverksmiðju sem yrði skipað einstökum sveitarfélögum í héraðinu og að auki Andakílsárvirkjun, Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar og Kaupfélagi Borgfirðinga. Öllum þessum aðilum voru send bréf og málið kynnt og leitað eftir stuðningi. Svör hafa borist frá flestum ef ekki öllum og undirtektir hafa verið mjög jákvæðar og bera í sannleika sagt vitni áhuga á þessu máli. Málið var einnig kynnt sveitarstjórnum á sunnanverðu Snæfellsnesi, og þar er einnig mikill áhugi á þátttöku.
Af framansögðu er augljóst að mikill og eindreginn stuðningur við þessar ráðagerðir er fyrir hendi í héraðinu, enda hljóta allir að vera sammála um að forsenda fyrir farsælum framgangi þessa máls sé samstaða heimamanna.
Stofnsetning graskögglaverksmiðju kostar mjög mikið fé, enda er útilokað að heimamenn ráði við slíka fjárfestingu án einhverrar þátttöku ríkissjóðs. Það er a. m. k. álit heima fyrir eins og sakir standa. Ekki skal lagt mat á það hér, hversu stór eignarhluti ríkissjóðs þyrfti að vera í verksmiðjunni, en eftir því sem menn hafa ráðið þar í þykir líklegt að þar yrði um að ræða stærstan eignarhlut þeirra sem ættu hlut að máli.
Segja má að hugmyndir þær, sem stuðst er við í ráðagerðum um byggingu graskögglaverksmiðju í Borgarfjarðarhéraði, byggist fyrst og fremst á því að nýta umframhita úr vatni hitaveitunnar á þann hátt að aðeins nokkur hluti hitans verði tekinn úr vatninu, en síðan verði því veitt á ný inn á stofnæð veitunnar. Vilyrði liggja fyrir um samfellt ræktunarland í Andakílshreppi sem nægði til 3 þús. tonna ársframleiðslu verksmiðjunnar eða 600–700 ha. lands. Umrætt land er svo að segja í slóð meginlagnar hitaveitunnar. Enn fremur skal þess getið, að nægjanlegt land fyrir þá verksmiðju, sem hér er verið að ræða um, er í Reykholtsdal í grennd við sjálfan Deildartunguhver.
Gert er ráð fyrir því að þessi verksmiðja mundi hafa eimingargetu um 5 þús. kg. vatns á klst. Talið er að hitaþörf bandþurrkara með þessari afkastagetu sé sem svarar hitafalli úr 90°C í 70°C á 83.61/sek. eða úr 90°C í 60°C, 55.6 1/sek. Hér er vitnað í Stefán Örn Stefánsson verkfræðing.
Lauslega áætlað mun sumarrennsli í aðveitu hitaveitunnar 1982–1985 verða um 140 l/sek. þegar um er að ræða rennsli úti í Andakílshreppi. Hitastig þar er áætlað um 94° C. Til þess að graskögglaverksmiðja af þeirri stærð, sem hér er um talað, fengi næga orku þyrfti hitafall að vera 12°C.
Eins og þessar tölur benda til er hér um að ræða næga og að því er virðist mjög hagkvæma orku þann tíma sem graskögglaverksmiðjan starfar ár hvert, þegar minnst er þörfin fyrir upphitun húsa yfir sumartímann. Þrátt fyrir það hefur verið hugað að möguleikum á starfrækslu slíkrar verksmiðju til fleiri nota. Í athugun er í samráði við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins hvort slík verksmiðja gæti komið að notum til fiskþurrkunar í ljósi þess að lengja starfstíma hennar ár hvert og þar með e. t. v. að auka á rekstrarhagkvæmni verksmiðjunnar.
Herra forseti. Í þessari stuttu grg. hef ég reynt að varpa ljósi á þetta, að dómi okkar flm., mjög mikilvæga mál. Ég hef reynt að greina frá helstu atriðum er varða fóðuriðnað í landinu, reynt að greina frá því, hver staða málsins er heima í héraði og á hvaða stigi undirbúningur er. Að dómi okkar flm. þykir eðlilegt á því stigi að færa málið hér inn í sali Alþingis í þeim tilgangi að hv. alþm. gefist kostur á að taka á því málefni sem hér er til umræðu, sem er þó ekki nema hluti af miklu víðfeðmara máli, þ. e. alfarið fóðuriðnaði í landinu, og e. t. v. grunninum að íslenskum landbúnaði og hagsæld hans.
Ég legg til að að loknum þessum hluta umr. verði málinu vísað til atvmn.