10.03.1981
Sameinað þing: 59. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2808 í B-deild Alþingistíðinda. (2924)
205. mál, graskögglaverksmiðja
Salome Þorkelsdóttir:
Herra forseti. Ég get ekki stillt mig um að leggja hér nokkur orð í belg, og þá fyrst og fremst til að taka undir ábendingar hv. 11. landsk. þm. um nauðsyn þess að endurskoða lög um rekstrarform graskögglaverksmiðjanna. En það er einmitt þetta atriði varðandi eignaraðild ríkisins, sem kemur fram í þessari þáltill., sem mér finnst vera stórt mál og ég vil leyfa mér að gera athugasemdir við. Ég tel að það þurfi að kanna þetta mjög vel.
Við höfum dæmi um graskögglaverksmiðju í Brautarholti á Kjalarnesi sem rekin er án þátttöku opinberra aðila, og ég veit ekki annað en að sá rekstur hafi gengið mjög vel, þeir hafi staðið sig með mikilli prýði. Þess vegna held ég að það hljóti að vera grundvöllur fyrir því, að svona verksmiðja sé rekin af heimamönnum, þ. e. samtökum bænda heima í héraði, að þeir séu færir um að standa undir þessum rekstri án íhlutunar eða þátttöku ríkisins.
Ég ætla ekki að fara frekar út í umr. um þetta mál, en ég vildi aðeins ítreka þessar ábendingar hv. 11. landsk. þm. Ég vil einnig taka undir það sem hv. þm. Helgi Seljan, 2. þm. Austurl., nefndi hér varðandi markaðinn og markaðsmöguleikana, því að einhvern veginn hvarflar að manni að það verði að gæta arðsemi í framhaldinu ef á að reisa margar verksmiðjur, að það verði ekki til þess að markaðurinn verði ofmettaður.