10.03.1981
Sameinað þing: 59. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2813 í B-deild Alþingistíðinda. (2929)

202. mál, þingmannanefnd er vinni að auknu samstarfi Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég hef litlu við það að bæta sem hér hefur komið fram, en ég er sammála því, að við þurfum mjög að efla tengsl milli þeirra þjóða sem vikið er að í þessari tillögu. Ég hygg að vandi Færeyinga í fiskveiðimálum sé þó hvað mestur. Þeir hafa misst rétt til að veiða á tveim þriðju hlutum þess svæðis sem þeir hafa áður veitt á. Og það kom einmitt fram í máli lögmannsins frá Færeyjum á Norðurlandaráðsþingi fyrir skemmstu, að eina þjóðin, sem hefði sýnt þessu máli einhvern skilning, væri Íslendingar. Þetta er náttúrlega gífurlegt áfall fyrir Færeyinga, og ég á ekki von á að þetta vandamál Færeyinga verði hægt að leysa nema með auknu samstarfi milli Íslands, Færeyja og Grænlands. Við vitum að við Grænland eru mikil fiskimið sem Grænlendingar eru a. m. k. ekki enn þá í stakk búnir til að nýta til fulls. Það eru verulegar líkur fyrir því, að Grænlendingar muni segja sig úr Efnahagsbandalaginu. Á hitt er að líta, að Grænland fær verulegar greiðslur frá Efnahagsbandalaginu, og það verður nokkurt mál að komast yfir það að hætta að fá þá fjármuni. Hér er því hið vandasamasta mál að leysa, sem er eðlilegt að við höfum afskipti af og reynum að vera í sem bestu samstarfi við þessar þjóðir.

Síðan þessi till. var flutt hefur mér orðið nokkuð hugsað um það sem hér stendur: „Alþingi ályktar að kjósa fjóra þingmenn í nefnd“ til að annast þessi mál. Ég vil benda á það, að við eigum starfandi utanríkismálanefnd sem á að sinna utanríkismálum. Þessu máli verður nú vísað til utanrmn. og það er í mínum huga mjög eðlilegt að máli sem þessu sé vísað til utanrmn., henni sé falið að sjá um það. Það hefur að vísu ekki tíðkast að utanrmn. hafi sem slík mikil samskipti við kjörna fulltrúa annarra landa eða geri sér títt um að heimsækja önnur lönd. Hitt er svo annað mál, að utanrmn. ber að sjálfsögðu að standa undir því nafni. Hún starfar allt árið og hefur að því leyti sérstöðu, og það hlýtur að verða að flokkast undir hlutverk hennar að sinna máli sem þessu. Þess vegna finnst mér allt eins koma til álita, í stað þess að kjósa í þetta sérstaka nefnd, að samþykkja till. til þál. um að fela utanrmn. þetta verkefni.