04.11.1980
Sameinað þing: 13. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í B-deild Alþingistíðinda. (293)

354. mál, útflutningsuppbætur á landbúnaðarafurðir

Fyrirspyrjandi (Þorbjörg Árnadóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. fyrir greinargóð svör og góð orð til bændastéttarinnar í landinu. Eins og fram kom í svari hans hefur ríkisstj. ákveðið að leggja fram 1700 millj. kr. aukalega til útflutningsuppbóta og mun það vera um 37% af þeirri upphæð sem á vantar. Ég hafði vissulega gert mér vonir um að mun hærri upphæð yrði lögð fram, upphæð sem e.t.v. mundi nema um 50% þess er á vantar til að útflutningsuppbótarétturinn nægi. En jafnframt geri ég mér grein fyrir því, að ríkisstj. á við vanda að etja í efnahagsmálum og í þeim málum þarf að horfa í margar áttir og þá einkum hvað snertir fjárútlát ríkissjóðs.

Ég vil ítreka þá skoðun mína, að mikil nauðsyn er á að bændasamtökin og ríkisvaldið taki höndum saman við að leysa þann vanda er steðjar að í íslenskum landbúnaði. Þar yrði mikilvægt skref stigið, ef upp yrðu teknir beinir samningar milli bænda og ríkisvaldsins um kjaramál og hagsmunamál bændastéttarinnar. Í slíkum samningum þarf fyrst og fremst að taka mið af því, að landbúnaðarframleiðslan verði miðuð við þarfir neytenda og markaðsaðstæður hverju sinni, en jafnframt að tryggt verði að það fólk, er við landbúnað starfar, fái sambærileg laun og njóti sambærilegra félagslegra réttinda og aðrar vinnandi stéttir í landinu.