10.03.1981
Sameinað þing: 59. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2820 í B-deild Alþingistíðinda. (2936)

Umræður utan dagskrár

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Það er enginn vafi á því, að eitt mesta hagsmunamál Norðlendinga um þessar mundir og raunar landsmanna allra er að virkjun til raforkuvinnslu verði byggð á Norðurlandi og það eins fljótt og nokkur tök eru á og að sú virkjun verði staðsett utan eldvirkra svæða. Því eru það mikil vonbrigði, ekki síst á Norðurlandi, að ekki hefur enn náðst samkomulag um fyrirkomulag Blönduvirkjunar, þar sem hún er eini virkjunarkosturinn þar sem búið er að rannsaka að nokkru ráði.

Um það má eflaust deila, í hvert sinn sem virkjun er ákveðin, hvaða sjónarmið eigi að ráða og eðlilegt sé að hafi úrslitaáhrif á hvaða kostur er valinn. Á það að vera hagkvæmnisjónarmið virkjunarinnar einnar sem á að ráða gerð hennar og fyrirkomulagi, eða á að meta það tjón og óhagræði sem landeigendur og ábúendur þeirra jarða, sem hlut eiga að máli, verða fyrir, og hvernig á að meta slíkt tjón þegar reiknað er út hvaða gerð og fyrirkomulag virkjunarinnar er hagkvæmast.? Ég er ekki svo kunnugur öllum staðháttum í sambandi við Blönduvirkjun eða hef þá þekkingu um byggingu raforkuvirkjunar að ég ætla mér að gerast dómari um hvernig á að virkja Blöndu eða hvernig á að meta þá hagsmuni sem í húfi eru fyrir landeigendur, en ég óttast þó, að sérfræðingarnir, sem rannsaka virkjunarkostina yfirleitt og taka ákvarðanir um gerð þeirra og fyrirkomulag mikli að jafnaði ekki fyrir sér það tjón sem bændur kunna að verða fyrir þegar virkjanir eru ákveðnar.

Öllum verður að vera það ljóst, að það verður ekki friður um þessi mál nema báðir aðilar sýni tillitssemi. Ef þeir, sem taka ákvarðanir um virkjanir, taka ekki tillit til hagsmuna bænda á eðlilegan hátt stefna þeir málinu í hættu, að ekki verði meira sagt, og ef bændur verða ekki við eðlilegum tilmælum og þörfum þjóðarinnar, sé á annað borð tekið tillit til hagsmuna þeirra eftir því sem hægt er af hagkvæmniástæðum, eru verulegar líkur fyrir því, að fyrr eða síðar verði tekinn af þeir umráðarétturinn yfir landinu. Því er mikið í húfi fyrir alla hvernig til tekst í þessum efnum.

Almennir hagsmunir krefjast þess, að Blanda verði virkjuð og því fyrr því betra. Spurningin er því sú, hvort nú næst samkomulag um virkjunina eða hvort aðrir virkjunarkostir verða teknir á undan Blönduvirkjuninni.

Atvinnuástandið á Norðurlandi er nú með þeim hætti að í sumum stöðum er verulegt atvinnuleysi, t. d. á Akureyri og á Húsavík. Það verður því ekki undan því vikist að gera ráðstafanir til að tryggja betur og gera ráðstafanir til að örva atvinnulífið á þessum stöðum. Það getur reynst erfitt ef orka er ekki fyrir hendi, eins og hefur verið á þessum vetri. Hér eru því miklir hagsmunir í húfi fyrir Norðlendinga alla, og ég vil treysta því í tengstu lög að gifta fylgi þeim, sem eru að reyna að ná sáttum í þessu máli, og að sættir takist.