10.03.1981
Sameinað þing: 59. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2821 í B-deild Alþingistíðinda. (2937)

Umræður utan dagskrár

Landbrh. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. 5. þm. Norðurl. v. fyrir að vekja máls á þessu þýðingarmikla máli hér á hv. Alþingi. Ég vil enn fremur þakka þeim sem heimsótt hafa Alþingi í dag og veitt hafa því forustu að hæstv. iðnrh. hefur verið afhent undirskriftaskjal með nöfnum margra kjósenda í Norðurlandskjördæmi vestra. Ég hygg að það sýni glöggt þann áhuga sem ríkir á þessu landssvæði fyrir orkumálum og fyrir virkjunarmálum í þeim landshluta. Ég hygg einnig að það sýni glöggt að menn telja ekki eftir sér að leggja á sig erfiði, eyða í það tíma og leggja í nokkurn kostnað til að láta áhuga sinn og vilja koma í ljós eins og hér hefur verið gert.

E. t. v. liggja þær rætur til þessara afburða, sem hér hafa gerst í dag, að því hefur verið mjög haldið á loft að í þessum landshluta væri stórkostlegur ágreiningur um virkjunarmál. Víst hefur ágreiningur verið nokkur og deilur hafa staðið, en það hefur, eins og raunar kom fram í máli hæstv. iðnrh., verið að því unnið að lægja þær öldur, að vinna að sáttum í þeim deilum. Ég er þá meira en lítið glámskyggn ef ekki hefur áunnist verulega í þessu starfi. Mér missýnist þá einnig mjög ef það er ekki svo, að eftir því sem nær dregur að menn viti að nauðsynlegt sé að taka ákvörðun um næstu virkjun landsmanna geri menn sér þess ljósa grein, hvað hér er mikið í húfi, ekki einungis fyrir þann landshluta, sem á hlut að máli að þessu sinni, heldur fyrir þjóðina í heild. Og eftir því sem menn hugsa málið ítarlegar frá þessu sjónarmiði fjölgar þeim mönnum sem vilja ganga til samstarfs um þá virkjun sem hér er um rætt í dag.

Ríkisstj. tók ákvörðun um það þegar hún var mynduð, eins og hér hefur komið fram, að næsta stórvirkjun á landinu skyldi vera utan eldvirkra svæða. Þetta er að mínum dómi ákaflega mikilvæg ákvörðun og nauðsynleg vegna þess að því fylgir of mikil hætta að halda því áfram að reisa öll okkar stærstu orkuver svo gott sem á sama bletti landsins. Þetta er ekki sagt af neinni óvild í garð þess landshluta sem þar á hlut að máli. Hitt er jafnljóst, að við ráðum ekki náttúrufari á landi okkar, við ráðum ekki því, hvenær bregður til náttúruhamfara sem við vitaskuld öll vonum að ekki verði. En við Íslendingar erum undir þá sök seldir að eiga þá hættu yfirvofandi að brugðið geti til hins verra um þessi efni. Það sannar reynslan okkur margsinnis um allar aldir. Og allt okkar atvinnulíf, allur rekstur heimila, jafnvel rekstur samgöngutækja og öryggistækja, er því háður að við eigum yfir orku að ráða. Ef svo færi að út af brygði með eldsumbrotum eða jarðhræringum þannig að stórspillti orkuafhendingu frá orkuverum, þó svo að það spillti ekki orkuverunum sjálfum, þá getur verið um vá að tefla í landi okkar. Þess vegna var nauðsynleg ákvörðun að næst skyldi virkjað utan eldvirkra svæða.

Þetta er þó aðeins einn þáttur málsins, því að orkukerfið krefst þess í raun, að virkjunum sé dreift um landið, ella nýtast orkuverin lakar, það verður tap á orkuflutningi því lengra sem orkan er flutt eftir línum þó góðar séu. Þess vegna er það einnig hagkvæmur búskapur og hyggilegt búskaparlag að reisa orkuverin víðar um landið en gert hefur verið til þessa til að nýta orkuna sem best. Þessu má alls ekki gleyma í þessu máli. Það er stór þáttur þessa máls.

Ég skal ekki rekja frekar öryggisþátt þessa máls, að honum hefur þegar verið vikið, m. a. í ágætri ræðu hv. 2. þm. Norðurl. e., en sá þáttur er þó mjög veigamikill.

Þegar öryggisþættinum steppir er vitaskuld hagkvæmniþátturinn veigamestur og hann hlýtur alltaf að verða gífurlega mikilsverður í stórmáli sem þessu. Það er stórmál að virkja á Íslandi. Það kostar enga smápeninga. Ef um stærri virkjanir er að ræða kostar það ekki minna en frá 50–100 milljarða gkr. Miðað við þær kostnaðaráætlanir, sem fyrir liggja um Blönduvirkjun, svo að það dæmi sé tekið, er gert ráð fyrir, miðað við verðlag frá síðasta hausti, að hún kosti 73 milljarða gkr. Það eru því stórar fjárhæðir sem hér er um að tefla. Okkur er skylt að nýta þetta fjármagn eins vel og mögulegt er. Við höfum nóg með fjármagn að gera, Íslendingar, og við þurfum einnig að gæta þess, um leið og nauðsynlegs öryggis er gætt, að hafa þennan þátt ákaflega sterkt í huga og hann hlýtur að ráð úrslitum þegar til kasta kemur í vali á milli virkjunarkosta, ef þeir kostir eru taldir sambærilegir hvað snertir öryggissjónarmið og stöðu vegna flutningskerfisins.

Þetta tel ég rétt að láta koma fram, að um leið og við erum hér að ræða Blönduvirkjun tel ég að hagkvæmni í virkjunarkostum hljóti að ráða þegar til kasta kemur, ef um sambærilegt öryggi er að ræða og ef um sambærilega stöðu er að tefla hvað snertir afhendingu orkunnar með tilliti til orkukerfisins.

Nú er það svo, að í þeim áætlunum, sem ég hef séð, og eru þær áætlanir þó því marki brenndar að þær geta breyst, stendur Blanda í fremstu línu og framar en aðrir kostir. Sérfræðingar hafa talið að þar væri svo lítill munur að ekki væri hægt að gera upp á milli svo að marktækt væri. Víst kann allt slíkt að vera háð breytingum við frekari úrvinnslu gagna, en eftir þeim gögnum, sem ég hef séð, taka ekki aðrir kostir Blöndu fram hvað hagkvæmni snertir. Þess vegna er í raun verið að vinna að þjóðnýtu viðfangsefni þegar unnið er að framgangi þessa virkjunarmáls.

Ég vil aðeins segja það, að þau gögn, sem fram hafa verið lögð hér í dag, ásamt því að flytja þetta mál hér inn á hv. Alþingi, tel ég vera mikilsverðan þátt í því að vinna gegn nokkuð útbreiddum misskilningi þjóðarinnar og kannske Alþingis, sem sé þeim misskilningi að þeir, sem væru á móti þessu máli á Norðurlandi vestra, væru yfirgnæfandi hluti fólksins á því landssvæði. Ég hef orðið var við þessa skoðun hér og þar. Þetta er mikill misskilningur, eins og allir hljóta nú að sjá. (StJ: Á hverju sjá þeir það?) Þið sjáið það væntanlega á því, hv. þm. Stefán Jónsson, að meiri hluti atkvæðisbærra manna í þessu kjördæmi hefur ritað undir meðmæli með þessu máli og það verulegur meiri hluti og eins og allir sjá var við þær aðstæður hvergi nærri um tæmandi úrtak að ræða.

Ég held að það hafi verið í raun og veru tími til kominn að hv. Alþingi og þeir, sem vinna að fjölmiðlun meðal þjóðarinnar, áttuðu sig á því, að þó að fyrir nokkrum árum væru nokkuð háværari þær raddir sem lýstu andstöðu við þessar virkjunarframkvæmdir er það yfirgnæfandi meiri hluti sem styður þær. Og er ég meira en lítið glámskyggn ef það er ekki svo, að flestir séu komnir á þá skoðun að þeir vilji ná saman um þetta mál. Það er unnið að því í samninganefndum og fundir verða í samninganefndum þegar á morgun um þessi mál áfram. Það er sannarlega von mín að þeir samningafundir leiði til þess að samkomulag takist.

Hitt er svo aftur annað mál, að það er kannske tæplega þess að vænta að allir, hver og einn einasti maður, verði sammála um svona stórmál. Ég get tæplega búist við því. Og þá er spursmál: Er það réttlætanlegt að örfáir menn stöðvi það? Ég tel það tæplega.

Varðandi það, sem fram hefur komið í sambandi við þær samningaumræður sem yfir standa, liggur fyrir að athugaðir hafa verið ýmsir kostir varðandi virkjunartilhögun. Þeir kostir voru athugaðir á árunum 1974–1976 og þeir kostir hafa verið athugaðir að nýju. Það verður því miður að segja að yfirleitt eru þau frávik á virkjunartilhögun frá því, sem aðalkosturinn greinir, því marki brennd að breytingarnar kosta ákaflega mikið fé. Þá er að meta hvort ekki sé hægt að verja því fé betur með öðrum hætti en þó að takist að friða nokkurn hluta af því landi sem ella færi undir vatn. Ég þykist vera landsár maður og flestir bændur eru landsárir, en það er ljóst að ekki er hægt að kosta of miklu til. Það er a. m. k. ljóst, að það er hægt að kosta of miklu til að verja tiltekið landssvæði þegar um slíka hagsmuni er að tefla sem hér hefur verið lýst. Yfirleitt er það svo annars staðar, þar sem virkjunarkostir eru í öðrum landshlutum, að leggja þarf mikið land undir vatn, og virkjanir eru þess eðlis, að ef þær eiga að búa við öryggi þurfa þær miðlunarlón á bak við sig sem annað tveggja er til staðar þegar virkjun er byggð í náttúrlegu umhverfi, eins og Þórisvatn, eða þá hitt, að þetta lón verður að mynda með því að leggja land undir vatn. Þetta er nauðsynlegt til að eiga forða þegar vatnsrennsli er minna og þarf ekki útskýringa við.

Ég held að það sé ekki ástæða til þess að ég fjalli um þetta efni í löngu máli. Ég vil aðeins segja það og taka undir það sem kom fram hjá hv. þm. Stefáni Valgeirssyni og ég hef raunar stundum sagt áður, að við þurfum að gæta okkar sem viljum varðveita eignarréttinn. Ég vil taka undir þessi orð hans. Við, sem viljum varðveita þennan eignarrétt, þurfum að halda á honum af festu, en þó skilningi og víðsýni, þannig að við séum reiðubúnir að meta stærri hagsmuni meira en minni hagsmuni og halda á eignarréttinum þannig að þjóðfélagið krefjist þess ekki, að hann sé af okkur tekinn. Þá væri sannarlega illa farið. Ég sé sérstaka ástæðu til að ítreka orð hv. þm. Stefáns Valgeirssonar.

Ég legg einnig áherslu á að út frá þessum sjónarmiðum um að meta stærri hagsmuni meira en minni hagsmuni takist að ná sáttum og samkomulagi um þann virkjunarkost sem að lokum verður metinn hagstæðastur af samkomulagsaðilum og að eðlilegar og sanngjarnar bætur verði greiddar fyrir landspjöll og annað rask sem virkjunarframkvæmdum er samfara. Þær bætur eru sjálfsagðar og ég tel að það sé fullur vilji hjá yfirvöldum orkumála í landinu að greiða slíkar bætur. Þær bætur þurfa að miðast við að vinna sem mest upp á nýjum vettvangi það gróðurlendi sem tapast við virkjunarframkvæmdir. Annars ætla ég ekki að fara út í einstakar leiðir varðandi bætur. Það er samningsatriði sem samningsaðilar hafa í hendi sér og vonandi næst samkomulag um.

Ég vil svo ljúka þessum orðum með því að endurtaka þakklæti mitt til hv. 5. þm. Norðurl. v. og lýsa enn fremur þakklæti mínu við þá mörgu sem lagt hafa á sig erfiði, mikla vinnu og lagt í kostnað til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Það er í rauninni fremur sjaldgæft að hinn þögli meiri hluti komi sjónarmiðum sínum á framfæri í einstökum málum, en það hefur nú verið gert og það með myndarlegum hætti.