10.03.1981
Sameinað þing: 59. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2834 í B-deild Alþingistíðinda. (2945)
Umræður utan dagskrár
Stefán Guðmundsson:
Herra forseti. Ég skal verða við tilmælum og verða stuttorður. Hér hafa margar ræður verið fluttar. Ég vildi segja að hér eigi vissulega við og sé ekki óeðlilegt að vitna til ummæla er Kristján Eldjárn viðhafði í ræðu þegar hann bað menn að gæta lífbeltanna tveggja: hafsins umhverfis landið og gróðursins upp frá ströndinni. Okkur er nefnilega nauðsyn að sjá svo um, að þau sár, er við óhjákvæmilega komum til með að valda á lífríkinu vegna margs konar nýsköpunar í landinu, verði grædd upp.
Í þessu máli hafa mörg orð verið sögð og skrifuð sem betur hefði aldrei verið, ef menn á annað borð hafa haft áhuga á að leita lausnar í viðkvæmu máli. Því miður verð ég að draga í efa að þeir, sem mest hafa böðlast, hafi viljað finna farsæla lausn, heldur treyst á að geta fiskað í gruggugu vatni Blöndu.
Virkjunarkostir á Norðurlandi eru miklir. Má þar t. d. nefna Blöndu, Villinganesvirkjun, Jökulsárnar í Skagafirði, virkjun Skjálfandafljóts og Jökulsár á Fjöllum. Í stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. segir að næsta virkjun skuli vera utan eldvirkra svæða. Blanda er óefað hagkvæmasti virkjunarkostur landsins, sá virkjunarkostur sem best er rannsakaður, auk þess að vera utan eldvirkra svæða. Blanda liggur einstaklega vel að dreifikerfi bæði til austurs, suðurs og ekki síst til Vestfjarða. Virkjunin verður þeim mun hagkvæmari sem orkukaupandinn er staðsettur nær virkjuninni sjálfri. Blanda fellur þannig einstaklega vel að þeirri þörf sem er á Norðurlandi fyrir ný atvinnutækifæri í iðnaði. Atvinnuþróun á Norðurlandi væri það mikill ávinningur að næsta stórvirkjun yrði reist í fjórðungnum. Það hlýtur því að vera sameiginlegt áhugamál þm. Norðurlands vestra og Norðurlands eystra að vinna að framgangi þessa máls. Ein meginforsenda framfara og framkvæmda á líðandi stund er nægjanleg orka og hún er víða til, en því miður í allt of ríkum mæti enn í óbeisluðum orkulindum. Því hníga rök að því, að sá kostur skuli valinn og trúlegt að framkvæmdir væru hafnar við virkjun Blöndu ef ekki hefði komið til ágreiningur milli þeirra er hagsmuna eiga að gæta á Auðkúlu- og Eyvindarstaðaheiði annars vegar og virkjunaraðilans hins vegar.
Ég ætla ekki að fjölyrða um þennan þátt málsins hér og nú. Ég trúi því og treysti, að menn átti sig á því sem hér er að gerast. Breyttir þjóðfélagshættir valda því að sækja þarf í auknum mæli í þá orku, sem í fallvötnunum er, til margs konar framþróunar í því þjóðfélagi sem við viljum byggja og bæta og nútímaþjóðfélag krefst. Því fylgir óhjákvæmilega einhver röskun á fyrri högum og lífríki þess næsta umhverfis. Ég vona að þeir menn, sem valdir hafa verið til að leita leiða til sátta í þessu mikla hagsmunamáli, beri gæfu til að finna þá lausn er tryggi að ágreiningur um virkjunarkosti komi ekki í veg fyrir að Blanda verði sá orkugjafi sem vænst hefur verið og aflgjafi norðlenskrar byggðar m. a. til aukinnar iðnþróunar.