10.03.1981
Sameinað þing: 59. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2840 í B-deild Alþingistíðinda. (2949)
Umræður utan dagskrár
Ingólfur Guðnason:
Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka iðnrh. fyrir að hann kom hér á þingfund til að taka þátt í þessum umr., enda þótt varamaður hans sitji á þingi og ráðh. gegni að jafnaði ekki þingstörfum um þessar mundir. Einnig vil ég þakka öðrum sem tekið hafa til máls.
Mér þykir vænt um hversu iðnrh. er bjartsýnn á að árangur verði af þeim samningaumleitunum sem nú fara fram, og á ég að sjálfsögðu ekki betri ósk en þá, að þar gangi allt í haginn.
Einnig er nokkur styrkur í því, að landbrh., Pálmi Jónsson, er formaður RARIK, sem er virkjunaraðili Blönduvirkjunar, en hann þekkir til staðhátta þar. Hann segist vera landsármaður og kann ég vel að meta þá afstöðu, en hófs þarf að gæta í öllu.
Ég hef orðið var við það í þessum umr., að hér hafa ýmsir menn tekið áskorun fréttamanns sjónvarpsins í gærkvöld þegar hann var að reyna að egna saman Austfirðingum, Norðlendingum og Sunnlendingum. Má þar til nefna Egil Jónsson, hv. þm. Austurl., og Svein Jónsson, hv. þm. Austurl. Meira að segja kemst Sveinn svo langt að fara að kenna mér um hversu lítil úrkoma er á Norðurlandi vestra. Okkur þykir alla vega nóg um þegar við erum á kafi í snjó þar langtímum saman og flestir munu kannast við rigningarnar. (EgJ: Þið eigið nú ekki einir Alþingi samt.) Það er ég sem hef orðið.
Hér var einn maður í kosningahugleiðingum, vinur minn hv. þm. Þórður Skúlason. Hann talaði hér dulmál og hálfkveðnar vísur sem fáir skildu. Ég ætla ekki að segja hvernig ég skildi hann vegna þess að mér þykir vænt um fjmrh.
Guðmundur G. Þórarinsson gerði hér á greinargóðan hátt lýsingu á orkuskorti þeim, sem nú ríkir í landinu, og þeim kostnaði, sem landsmenn yrðu að hafa af orkuvinnslu með dísilvélum og nefndi hann milljarða í því sambandi. Ég er ekki eins tölfróður og Guðmundur, en ég efa ekki að þessar tölur séu réttar. Og það leiðir okkur að upphafsatriði fyrri ræðu minnar, hversu mjög illa við erum á vegi stödd í raforkumálum.
Ræðumenn hafa yfirleitt lýst áhyggjum sínum yfir því ástandi, sem ríkir, og jafnvel yfir því ástandi, sem mun verða á komandi árum hvað orkuvinnslu snertir. Kemur það heim og saman við mitt sjónarmið í þeim málum. Ég hóf þessa umr. til, að reyna að undirstrika það hættuástand sem nú ríkir. Er tilgangi mínum náð ef umræðan hefur fært okkur nær skilningi á því, að nauðsynlegt er að nýta fyrst þá virkjunarkosti sem hagkvæmastir eru og öruggastir. Ég hef aldrei talað um að það ætti að taka einn kost nú og hina síðar. Því hefur verið lýst í þessum umr., hversu ástandið er geigvænlegt og hversu mjög við þurfum að flýta okkur að hagnýta þessa auðlind landsins. Hér hef ég verið að benda á nauðsyn þess fyrir Norðlendinga að virkja Blöndu sem allra fyrst. Ég hef ekki neitað því, að Austfirðingar gætu fengið sína virkjun. En það er allt annað mál. En með tilliti til þess ástands, sem nú ríkir, sýnist mér mega ætla að virkjun Blöndu verði fyrst eða jafnsnemma öðrum virkjunarkostum þegar ákvörðun verður tekin í hinu háa Alþingi um þessi mál.
Herra forseti. Ég vil enn þá þakka fyrir það tækifæri sem mér gafst hér í dag til að vekja athygli á þessu máli. Ég óska Norðlendingum góðrar heimferðar og góðrar heimkomu og ég er þess fullviss, að koma þeirra hingað til Reykjavíkur í dag og vera þeirra hér á áheyrendapöllum Alþingis mun undirstrika alvöru málsins.