11.03.1981
Neðri deild: 62. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2848 í B-deild Alþingistíðinda. (2966)

244. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég vil lýsa yfir stuðningi við frv. sem hér er lagt fram. Það minnir okkur vissulega á þá miklu nauðsyn, að staðgreiðslukerfi skatta verði að veruleika. Hér er talað um að taka megi allt að 75% af heildarlaunagreiðslu hverju sinni. Það sér náttúrlega hver maður, að ef um lágtekjumann er að ræða og hafi ruglingur komist á varðandi greiðslur hans er það sáralítið sem hann fær greitt út, — miklu minna en eðlilegt væri ef staðgreiðslukerfi skatta væri komið á. Þess vegna tel ég, að þetta frv. muni ýta mjög á eftir því máli, og tel það vel. — Ég vil þakka flm. fyrir að leggja þetta frv. fram.