04.11.1980
Sameinað þing: 13. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í B-deild Alþingistíðinda. (297)

354. mál, útflutningsuppbætur á landbúnaðarafurðir

Helgi Seljan:

Herra forseti. Hér er ekki tími til þess að fara út í mörg atriði varðandi það stóra mál sem hér er til umr. En fyrst vil ég víkja að framleiðslustjórnuninni.

Það er rétt hjá hv. 3. þm. Vestf., að á framleiðslustjórnun er full þörf. Þá framleiðslustjórnun báðu bændur um fyrir nokkuð löngu. Þá var ekki orðið við því og það mál stöðvað hér í Alþ., því miður. Það hefði betur farið að það mál hefði þá náð fram að ganga. En þröngsýnissjónarmið, sem þá réðu ríkjum hjá þeim sem síst skyldi, komu í veg fyrir það. Það er einnig rétt, að það er full ástæða til þess að huga að nýjum atvinnutækifærum í sveitum þótt þar sé ekki um neina heildarlausn að ræða á okkar landbúnaðarmálum. Í því skyni höfum við þm. Alþb. t.d. flutt sérstaka till. um eflingu smáiðnaðar í sveitum, og könnun, sem hefur verið gerð á vegum Framkvæmdastofnunarinnar á þessum málum, hefur sýnt að um ótrúlega mikinn fjölda sveitarfélaga er að ræða sem vilja nýta sér ýmist framleiðslu- eða þjónustuiðnað af ýmsu tagi, ef aðstaða væri sköpuð til þess. Það mundi vissulega létta á vanda sveitafólksins, þó ég dragi ekkert úr því, að þar er ekki komið til móts við það nema að takmörkuðu leyti.

Ég vil svo aðeins segja það, að meginmálið hlýtur auðvitað að vera að marka hér heildarstefnu til frambúðar. Ég vil leggja áherslu á það, að að því máli hefur núv. landbrh. unnið mætavel og ekki aðrir unnið þar rösklegar að. Hins vegar verða menn einnig að gera sér það ljóst, að það að marka heildarstefnu í þessum málum tekur langan tíma. Ég geri mér hins vegar vonir um að á þessu þingi verði hægt að sýna þá stefnumótun sem þar er í undirbúningi, og þá gefst líka tækifæri til að ræða þetta mál í heild.