11.03.1981
Neðri deild: 62. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2850 í B-deild Alþingistíðinda. (2970)
227. mál, siglingalög
Flm. (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir undirtektir hans við frv. þetta.
Ég óska eftir því, sem ég gleymdi í framsöguræðu minni, að hv. sjútvn. taki til athugunar 2. mgr. í bráðabirgðaákvæði þessu, sem talið er af tryggingasérfræðingum að sé með öllu úrelt orðið. Það ákvæði er um að frá bótum sem greiddar eru dragist dagpeningar sem áður hafi verið greiddir af Tryggingastofnuninni. Ég óska eftir því, að hv. n. taki þetta ákvæði jafnframt til greina, og endurtek þakklæti mitt til hæstv. sjútvrh.