11.03.1981
Neðri deild: 62. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2859 í B-deild Alþingistíðinda. (2978)

245. mál, útvarpslög

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Það er út af fyrir sig fagnaðarefni að sjá hér frv. til breyt. á útvarpslögunum sem snertir þennan sérstaka þátt. Hér er um að ræða mál sem lengi hefur verið talað um af mörgum aðilum, sérstaklega í útvarpsráði, en enn fremur var á sínum tíma sett á laggirnar nefnd til að vinna sérstaklega að þessu viðfangsefni. Sá, sem skipaði þá nefnd, var þáv. menntmrh. Vilhjálmur Hjálmarsson.

Þessar umræður hafa auðvitað átt sér stað meðfram vegna þess, að það er opinbert leyndarmál að flestöll meiri háttar útgerðarfyrirtæki á landinu láta taka upp efni sjónvarps og senda það síðan með veiðiskipum þannig að þeir, sem stunda sjómennsku, eiga margir hverjir kost á því að fylgjast með efni sjónvarpsins, völdu af útgerðinni, ef svo má að orði komast. Venjulegast er efnið frá þeim tíma er síðasta veiðiferð skipsins stóð yfir. Menn hafa séð í gegnum fingur við þetta, en það er auðvitað ólögmætt athæfi, þar sem íslenskir sjómenn eiga þess ekki kost að fylgjast með efni sjónvarpsins vegna hinna slæmu móttökuskilyrða á miðunum og hins gífurlega kostnaðar sem mundi verða ef ætti að leysa það mál sérstaklega með öðrum hætti en samstarfi við önnur Norðurlönd, t. d. Nordsat eða með öðrum slíkum aðferðum. — Samstarf við Breta um gervihnetti kæmi auðvitað til greina. Reyndar hafa íslensk yfirvöld látið panta sér stað úti í himinhvolfinu og halda því opnu með hverjum við höfum samstarf, annars vegar

Norðurlöndum og hins vegar Bretum.

Það er ljóst að sá iðnaður hefur vaxið gífurlega að undanförnu sem fjöldaframleiðir myndsegulbandspólur með ýmiss konar kvikmyndum og öðru efni sem áhugavert þykir. Slíkt efni flæðir nú um heiminn. Til skamms tíma var ekki ljóst hvaða tæknikerfi yrði ofan á í þessu sambandi, en íslenskir aðilar hafa fylgst mjög náið með því. Þar á meðal má nefna verkfræðing sjónvarpsins, Hörð Frímannsson, en hann var einn þeirra sem skipaðir voru í nefnd hæstv. menntmrh. á sínum tíma.

Vegna erfiðleika út af höfundarrétti er ákaflega erfitt fyrir íslenska sjónvarpið, án þess að það kosti gífurlega fjármuni, að gera samninga við erlenda rétthafa efnisins, því að öllum er ljóst að endurútsending kostar sitt og verðviðmiðunin er með þeim hætti að það er aðeins miðað við eina útsendingu í þessu fámenna þjóðfélagi. Þess vegna er verð til íslenska sjónvarpsins miklu lægra en til annarra sjónvarpsstöðva.

Hitt er svo annað mál, að tiltölulega einfalt væri fyrir íslenska sjónvarpið að gefa út fréttir og annað efni sem sjónvarpið á algjöran höfundarrétt yfir. En ég veit ekki hve áhugavert slíkt efni yrði eftir smátíma. Sama má reyndar segja um þætti sem sjónvarpið vinnur algjörlega á eigin spýtur og á umráðarétt yfir. Slíkir þættir geta þó vissulega haft varanlegra gildi en fréttaefni sem dugir frá degi til dags.

Varðandi frv. sjálft vil ég aðeins taka það fram, að mér finnst það vera virðingarvert að frv. komi fram og það er sjálfsagt að það fái góða skoðun í nefnd og þar sé tekinn upp þráðurinn sem frá var horfið. Mér er það til efs, sem stendur í grg., að það geti verið sanngjarnt að tollar á myndsegulböndum til þeirra, sem ekki geta notið sjónvarps með öðru móti, væru felldir niður, einfaldlega vegna þess hve auðvelt er að þurrka út af þessum spólum og setja annað efni á þær. Þær geta líka auðvitað gengið kaupum og sölum, eins og allir kannast við. Hitt er svo annað mál, hvort á annað borð eigi að vera tollar af slíkum tækjum hér á landi sem eru jafnmikilvæg við miðlun á ýmsu efni, og má til sanns vegar færa að sama regla ætti að gilda um myndsegulbönd og t. d. bækur sem engir tollar eru á.

Til upplýsingar fyrir þá, sem eru flytjendur þessa frv., og eins fyrir aðra hv. þm. má geta þess, að í nefnd þeirri, sem Vilhjálmur Hjálmarsson skipaði á sínum tíma, voru þeir Ingólfur Ingólfsson, hann var form. nefndarinnar, Hörður Frímannsson verkfræðingur sjónvarpsins og Ómar Ragnarsson fréttamaður. Aðeins voru haldnir örfáir fundir nefndarinnar. Hörður, eins og ég sagði áður, kannaði rækilega hvaða kerfi helst kæmi til greina. Ingólfur kannaði jafnframt hjá forráðamönnum sjónvarps og útvarps um höfundarrétt eins ítarlega og hægt var. En vegna þess hve starfið gekk illa og hægt endaði starf þessarar nefndar með því að formaðurinn, Ingólfur Ingólfsson, sagði af sér. Síðan hefur þetta starf legið niðri, því miður.

Ég tel fulla ástæðu til þess að þingnefnd, sem fær frv., kanni þetta mál og kanni hvernig hægt sé að bregðast við. Það er auðvitað hægt að gera það með ýmsum öðrum hætti en að Ríkisútvarpið sjái um þetta hlutverk. Það gætu ýmsir aðrir aðilar komið til greina. Tækninni fleygir fram á þessu sviði og gera má ráð fyrir að á næstu árum og áratugum verði myndsegulbönd á hverju íslensku heimill. Á sama tíma er hugsanlegt að gervihnettir — annaðhvort yrðum við þá í samvinnu við Norðurlönd eða við aðrar þjóðir — geri það að verkum að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af dreifingu sjónvarpsefnis því að þeir koma í stað núverandi dreifikerfis. Með útbúnaði, sem hægt er að koma fyrir á fiskiskipum og eflaust verður þá betri en nú er, má gera ráð fyrir að fiskiskip við Íslandsstrendur geti þá náð efni íslenska sjónvarpsins beint með aðstoð gervihnattar.

Ég vona að hv. flm. telji þau sjónarmið, sem koma fram í minni ræðu, vera jákvæð sjónarmið. Ég er ekki viss um að það sé hægt í einu vetfangi að samþykkja þau atriði sem koma fram í frv., en mér finnst sjálfsagt að kalla til þá, sem hafa kannað þetta rækilega, og hafa það í huga fyrst og fremst á þessu stigi málsins, hvernig við getum komið til móts við sjálfsagðar óskir íslensku sjómannastéttarinnar.