11.03.1981
Neðri deild: 62. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2861 í B-deild Alþingistíðinda. (2979)

245. mál, útvarpslög

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Það gat ekki annað verið en að þyrfti mikið til þess að breyta áður kunnri stefnu Framsfl., enda sést það á hv. flm. þessa frv. En það er að sjálfsögðu af hinu góða þegar þeir sameinast þessir þrír hv. þm. um að koma góðu máli áfram. Ég man þá tíð þegar ég flutti þetta mál í einni eða annarri mynd ár eftir ár, að harðasti og eini andstæðingurinn, sem kom í ræðustól á hv. Alþingi, var þáv. menntmrh. Framsfl., hv. fyrrv. þm. Vilhjálmur Hjálmarsson og komu engin mótmæli þá úr þingmannaliði Framsfl. gegn skoðunum hans. En batnandi mönnum er best að lifa, stendur einhvers staðar, og ég fagna því, að þetta frv. er komið fram í þessari mynd, og fagna því jafnframt að sjá hér, bæði í grg. og reyndar í frv. sjálfu, sumt af mínum fyrri orðum og tillögum flutt af þeim framsóknarmönnum.

Ég held að það geti ekki verið rétt sem segir í grg., með leyfi forseta. „Sanngjarnt væri að tollar af myndsegulböndum“ o. s. frv., eigi að vera: myndsegulbandstæki. — Er það ekki rétt skilið? Mér er ekki kunnugt um að það séu sérstakir tollar af sjálfum böndunum frekar en af kvikmyndum. Hins vegar voru tillögur hér uppi frá mér og öðrum í eina tíð um það, að innflutningsgjöld af myndsegulbandstækjum, sem færu um borð í skipin, væru felld niður því að þetta gat þýtt gífurlegar fjárupphæðir. Þingið vildi ekki fallast á þær tillögur að þeir hópar manna, sem ekki fá notið sjónvarpsins hér í landi, fengju þarna tollfríðindi. Í flestum tilfellum, ef um fjölskyldumenn er að ræða, borga þeir sitt afnotagjald. Því er margt sem mælir með því, að þessi hópur manna fái myndsegulbandstækin á tollfrjálsu verði um borð í skipin. Ég óttast ekki það, sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni, að það þurfi að vera neinn ótti samfara því að þessi tæki fari að ganga kaupum og sölum í landi. Það er afskaplega auðvelt að innsigla þessi tæki um borð. Þetta er iðulega gert og var gert meðan sjálf sjónvarpsviðtækin voru fyrst að koma um borð í skipin. Þau voru innsigluð um borð. Hefði þurft að fara með þau í land til viðgerðar hér heima sáu tollverðir um að þau kæmu um borð aftur. (Gripið ham í: En myndsegulbönd?) Ég er að tala um tækin líka.

Ég var að segja það áðan, þegar hv. þm. var einhvers staðar fjarverandi, að mér væri ekki kunnugt um að það væru tollar á þeim. Það má hins vegar vel vera að það séu tollar á áteknum myndsegulböndum, en t. d. á kvikmyndafilmum er það ekki. Alla vega er orðinn undarlega mikill innflutningur þessa efnis t. d. hér á höfuðborgarsvæðinu. Reyndar eiga þar lögbrot í stórum stíl sér stað. Mér er kunnugt um að það eru kannske í uppsiglingu fyrstu alvarlegu átökin á þeim vettvangi vegna þess að eitt kvikmyndahúsanna er að undirbúa kæru á húsfélag hér í bænum. Það húsfélag er með í sínu húsi nýja kvikmynd á segulbandi sem viðkomandi kvikmyndahús er nýbúið að kaupa á okurverði frá dreifingaraðila. Þar er tekið fram, að það hafi ekki verið seld nein réttindi til segulbandssýningar. Þarna er því augljóslega um lögbrot að ræða og hreinan þjófnað.

Það hlýtur að vera erfitt fyrir útgerðirnar að þurfa að standa að því, — ég vil samt sem áður þakka flm. fyrir þá hugulsemi sem hefur komið fram hjá þeim í garð áhafnanna á skipunum, — að láta taka upp eitt og annað innlent efni til að flytja um borð í skipin. Það hlýtur að vera viss freisting í því fólgin til að taka upp um leið annað efni sem kannske er utan við lög og rétt í eiginlegri merkingu. Það er leitt að vita til þess, að þeir skuli þurfa að standa í því eða þá að áhafnir skipanna verði neytendur slíkrar vöru. Ég mun fagna því, ef frv. gengi fram eftir nánari skoðun, og mun mæla með því og taka þátt í að greiða fyrir því.

Vegna þess að hér er jafnframt um fréttaflutning að ræða, sem kemst þótt seint sé um borð í skipin, get ég ekki varist því að minnast hér á, fyrst ég er kominn hér í ræðustól, það sem varð mér að spurnarefni ekki alls fyrir löngu á Alþingi, um ástæðu þess að morsfréttasendingar voru felldar niður til skipa. staðinn eða jafnframt voru teknar upp svokallaðar stuttbylgjusendingar, talsendingar, sem fullyrt var að mundu heyrast um allan heim. Nú komu til mín tveir sjómenn í gær niður í þing og töluðu við mig, af sitt hvoru skipinu, og sögðu mér þær sögur, að þeir væru búnir að vera tvo mánuði að heiman og þeir hefði í um það bit sex eða sjö vikur af þeim tíma ekki heyrt eitt einasta orð frá Íslandi og engar fréttir fengið. Það er auðvitað fyrir neðan allar hellur að ekki skuli vera hægt að halda uppi þeirri lágmarksþjónustu að senda út á morsi fréttir til íslenskra skipa einu sinni á hverjum degi. Það eru gerðar kröfur um það til útgerðanna, að þegar skip hafa náð ákveðinni stærð og eru með ákveðinn fjölda skipverja um borð eigi þar að vera loftskeytamenn sem eru sérlærðir til slíkra verka, — og reyndar fleiri en þeir um borð í skipunum. Það eru líka þeir sem skipstjóralærðir eru, þeir eru farnir að læra þetta mjög ítarlega núna, — og það er ekki nokkur mynd á því, að ekki skuli vera hægt að ná sambandi fljótt og vel ef á þarf að halda með þessari móttökutækni og að fréttirnar séu sendar út. Að sjálfsögðu er hægt að hafa samband um loftskeytastöðina, það verður tekið við því, en fréttirnar reglulegu hafa ekki verið sendar út um langt skeið. Ég harma það og ég vildi óska þess, að nefndin, sem fær það mál, sem hér er til umræðu, til meðferðar, beiti sér fyrir því að gera eitthvað í því máli til úrbóta.