04.11.1980
Sameinað þing: 13. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 432 í B-deild Alþingistíðinda. (298)
354. mál, útflutningsuppbætur á landbúnaðarafurðir
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Vissulega er það rétt,. að eitt af þeim vandamálum, sem landbúnaðurinn á við að etja eins og allar aðrar atvinnugreinar í þessu landi, eru afleiðingar verðbólgu. En það er því miður ekki einhlít skýring á þeim vanda sem þar er við að fást. Vandinn er því miður miklu meiri. Vandinn er m.a. sá, að bændur eiga í miklum erfiðleikum með að losna við stóran hluta af framleiðslu sinni vegna þess að framleiðslan hefur verið langt umfram þarfir þjóðarinnar. Einmitt þess vegna, herra forseti, er úrræðið nú framleiðslustjórnun. Til slíks úrræðis væri ekki gripið ef offramleiðslan væri ekki vandamálið. Ef vandamálið væri aðeins á sviði verðlagsmála, þá væri framleiðslustjórnun óþarft tæki.
Ég ætla ekki, eins og ég sagði áðan, að deila um stefnuna eins og hún var. En ég held að það segi og hljóti að segja sína sögu um þá stefnu, að hv. þm., sem talaði áðan, 11. landsk. þm., hefur haft forustu um það í sínum flokki að flytja þáltill. um nýja stefnu í landbúnaðarmálum, og hv. þm. mundi vart hafa gert það ef hann hefði verið ánægður með þá stefnu sem fylgt hefur verið til þessa. Hæstv. landbrh., sem einnig er flokksbróðir hv. þm. og í ríkisstj. studdri af hv. þm. sem talaði hér síðast, — hæstv. landbrh. er einnig að berjast við það núna að marka nýja stefnu í landbúnaðarmálum, þó menn geti greint á um það, hvort sú stefna sé viturleg eða ekki. En hæstv. landbrh. væri ekki að þessu ef hann teldi ekki að sú stefna í landbúnaðarmálum, sem fylgt hefur verið fram að þessu, væri ekki sem ákjósanlegust.
Ég vil benda á þá athyglisverðu staðreynd, að allir flokkar þingsins eru nú orðnir sammála um að það þurfi að breyta landbúnaðarstefnunni sem fylgt hefur verið fram að þessu, og allir flokkar þingsins eru einmitt núna að reyna að leita að því, hver sú nýja stefna eigi að vera. Það er órækasti vitnisburðurinn um reynsluna af þeirri landbúnaðarstefnu sem fylgt hefur verið fram til þessa.