04.11.1980
Sameinað þing: 13. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 432 í B-deild Alþingistíðinda. (299)

354. mál, útflutningsuppbætur á landbúnaðarafurðir

Landbrh. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Það er vitaskuld ekki tilefni til þess að ræða um stefnu í landbúnaðarmálum undir þessum dagskrárlið og skal ég ekki eyða orðum að því nú að deila um það, hvort sú stefna, sem fylgt var og fylgt hefur verið fram undir þetta í landbúnaðarmálum, hafi leitt til ófarnaðar eða ekki. Það er hins vegar ljóst, að þau vandamál, sem nú er við að etja í þessum efnum, eru markaðsleg, og markaðsvandamálin stafa af verðbólguþróun innanlands. Þetta eru meginorsakir þess, að nú er við vandamál að etja í landbúnaði. Ef ekki hefði verið miklu óhagstæðari verðlagsþróun hér á Íslandi en í helstu viðskiptalöndum okkar, þá væri þessi vandi smávægilegur og þá væri hann ekki þess eðlis, að á honum þyrfti að taka með þeim hætti að leggja til mikla fjármuni umfram það, sem lög gera ráð fyrir til þess að hjálpa bændum í þessum vanda. Þetta held ég að liggi alveg ljóst fyrir.

Það er hins vegar svo með landbúnaðinn, að hann er háður fleiri þáttum en markaðsaðstæðum. Hann er einnig háður tíðarfari. Og einmitt vegna veðurfars og tíðarfars á árinu 1979 varð um verulega fækkun bústofns í landinu að ræða. Einnig þess vegna hefur orðið samdráttur í framleiðslu á þessu ári, en ekki einungis vegna aðgerða sem gripið hefur verið til til þess að mæta svokölluðum offramleiðsluvanda. Þar kemur einnig til afleiðing harðindanna á árinu 1979. Haustið 1979 fækkaði sauðfé í landinu um 11%, eða milli 90 og 100 þús. fjár af vetrarfóðruðum kindum. Þá fækkaði mjólkurkúm í landinu um 6.8%. Það er því eðlilegt að við þessa bústofnsfækkun verði um leið um framleiðsluminnkun að ræða. En þær aðgerðir, sem gripið hefur verið til t.a.m. á þessu sumri, voru nauðsynlegar til þess að koma í veg fyrir framleiðsluaukningu í mjólkurframleiðslunni, sem ekki var hægt að fá nokkurt verð fyrir. Og sú þróun hefur orðið eftir að kjarnfóðurskattur var lagður á, að þá hefur orðið samdráttur í mjólkurframleiðslunni eins og fram kom í máli frummælanda. Og það var nauðsynlegt miðað við þær markaðsaðstæður sem við búum við, vegna þess að það er enginn bættari með því að framleiða mikið af mjólkurafurðum umfram það sem við getum selt í landinu sjálfu, meðan við fáum ekki verð fyrir þessa vöru sem gerir meira en að mæta vinnslukostnaði.

Ég skal ekki fara út í að ræða hér frekar það sem ég aðeins tæpti á í minni fyrri ræðu, um nýjar tekjuöflunarleiðir í sveitum landsins. Ég lít svo á, að það sé þýðingarmikið mál. Til þess að örva slíkar tekjuöflunarleiðir hefur verið varið verulegu fjármagni, nýju fé, á þessu ári, og þó að það fé.skili sér ekki allt þegar í stað í auknum tekjum sveitafólks, þá mun það vonandi gera það í auknum mæli, þegar fram líða stundir, og eiga verulegan þátt í að leysa þau vandamál sem sveitafólk og landbúnaðurinn á við að etja. Hv. þm. Egill Jónsson varaði við því sem hann kallaði ógætni í meðferð þessara mála. Ég tel að ekki hafi verið farið með neinni ógætni í þeim málum, en ég tel að það þurfi að halda áfram á þeirri braut til þess að auka fjölbreytni bæði í framleiðslugreinum og í tekjuöflunarmöguleikum fyrir það fólk sem sveitirnar byggir til þess að við getum haldið því markmiði okkar að byggja allt okkar fagra og góða land.