12.03.1981
Sameinað þing: 60. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2866 í B-deild Alþingistíðinda. (2991)
124. mál, veiðar og vinnsla á skelfiski í Flatey
Guðmundur J. Guðmundsson:
Herra forseti. Ég fór að lesa þessa till. einhverja kvöldstund og gerði ráð fyrir því, að þarna væri um gagnmerka till. að ræða, þar sem einn af flm. er fyrrv. sjútvrh. og — að öðrum ólöstuðum — þá sennilega fáir jafnvel að sér og hann í hvers konar veiðum og vinnslu er lýtur að sjávarútvegi.
Í till. er lagt til að Flateyingar fái leyfi fyrir veiðum og vinnslu á skelfiski. Leyfið verði veitt eigi síðar en haustið 1981. Og síðan kemur grg.
Íbúar í Flatey eru 15 eða 16, og eitthvað af því eru börn og gamalmenni. Mér er sagt að það væru þrír til fjórir menn sem möguleikar væru á að fá þarna í vinnu þrír til fjórir sem væru á lausu. Og ekki nóg með það, þarna er fyrir tólf tonna bátur. Hann eiga þrír menn, ágætir, sómakærir heiðursmenn. Og þá fer nú að fækka um fullvaxna menn í Flatey eða vinnuhæfa. Ekki geta þeir bæði veitt og unnið. (KP: Er það ekki vinna, að veiða?) Jú, það er vinna, en það eru nú aðrir sem annast vinnslu í Bolungarvík heldur en þeir sem veiða, þó að hvort tveggja sé vinna.
En ég verð nú að sleppa hv. þm. Karvel Pálmasyni. Ég var satt að segja ekkert undrandi þó að hann væri flm. En ég held að þetta hafi verið eitthvert slys með hv. 1. þm. Vestf.
Athugum þetta mál svo aðeins betur. Ef þessi bátur veiddi t. d. 2 tonn, þá þarf 20–30 manns til að handvinna þetta. Það er ekki að ástæðulausu að verið er að ræða hér um farandverkafólk, það verður að flytja inn allt verkafólkið til að vinna þetta. Og ekki nóg með það. (SighB: Hefurðu séð þetta á skýrslum um Stykkishólm?) Ég hef kynnt mér þetta frá Stykkishólmi, það er rétt, kynnt mér það frá Stykkishólmi. (Gripið fram í.) Það kemur að því.
Frystihús hefur ekki verið starfrækt í Flatey frá því fyrir 1960. Ég skal ekki segja um hvort það eru nokkrir tugir millj. eða nokkur hundruð millj. sem þarf til að koma þessu frystihúsi í gagn. Það er ekkert frystihús þarna í vinnsluhæfu ástandi. Svo er það vatnið. Skelfiskvinnsla er ákaflega vatnsfrek. Það er ekkert vatn til þessarar vinnslu í Flatey. Þar er brunnvatn, mjög lítið og ekki viðurkennt til vinnslu í frystihúsum. Flm. hljóta að hafa gert sér grein fyrir því, a. m. k. hv. þm. Karvel Pálmason, að þá þarf líka að leigja skip til að flytja vatn út í Flatey.
Það er sem sagt allt í lagi með þessa till. Það vantar fólk, það vantar frystihús og það vantar vatn. Ef Alþingi ætlar að gera það að leik sínum — með fullri virðingu fyrir íbúum Flateyjar — að samþykkja tillögur jafnilla grundaðar og þessi till. er, þá virðast nú vera til nægir peningar. Auk þess er atvinnuástandið í Stykkishólmi þannig, því góða byggðarlagi, að þar er nú ákaflega lítið um fiskvinnslu og skelfiskvinnsla er grunnurinn undir atvinnulífi íbúa. Þarna er búið að vélvæða allt saman með einni bestu tækni sem þekkist í veröldinni. Á nú að fara að taka þetta af Stykkishólmsbúum, flytja þetta til Flateyjar, lappa þar upp á frystihús fyrir nokkra tugi eða hundruð milljóna, flytja þangað fólk og flytja þangað vatn og hafa kvóta þeirra Stykkishólmsbúa þeim mun minni?
Ég mun nú leggja til að þessi till. verði hreinlega felld. En meðal flutningsmanna er sá indæli maður Gunnar R. Pétursson, sem ég vil ekki leggja til og ekki er hér viðstaddur. En af því að þarna væru möguleikar á að fjórir Flateyingar gætu fengið vinnu með þessum líka litlu tilfæringum, þá legði ég til frekar, ef þeir kæmu þessari till. í gegn, að þeir skiptu, gerðu samkomulag um að fá sitt atkvæðið hver, flutningsmenn, og hefðu svo hlutkesti um það fjórða.