12.03.1981
Sameinað þing: 60. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2876 í B-deild Alþingistíðinda. (3002)

Umræður utan dagskrár

Menntmrh. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Það er mjög ánægjulegt til þess að vita, að ýmsir hv. þm. hafa áhuga á málefnum Ríkisútvarpsins, og ég ætla ekkert að draga í efa áhuga hv. 5. þm. Vesturl. á málefnum þess. Þessi áhugi virðist þó aðallega hafa komið fram á þessu þingi nú í vetur. Ég minnist þess reyndar, að þessi hv. þm. var um eitt skeið, ég held í hittiðfyrra, formaður fjárveitinganefndar, en ég minnist þess ekki að hann hafi sérstaklega búið þá í haginn fyrir Ríkisútvarpið. Ég minnist þess ekki. En hvað varðar þessar umr. annars, þá hringdi hv. 5. þm. Vesturl. til mín í morgun og kvaðst vilja spyrja hvað liði ákveðinni skýrslugerð um Ríkisútvarpið, sem þm. hafa beðið um samkv. sérstöku ákvæði í þingskapalögum. En mál hans hér áðan var nú ekki aldeilis við það eitt bundið, heldur hélt hv. þm. býsna langa ræðu hér á kostnað dagskrártíma þingsins, og þó sýnast mér vera um 20 mál á dagskránni.

Þó að ég hafi ævinlega verið þeirrar skoðunar, að það eigi að vera möguleiki á því, að þm. fái aðstöðu til þess að tala utan dagskrár, — ég vil taka það skýrt fram, að ég tel að sá möguleiki eigi að vera fyrir hendi, — þá held ég að hv. þm. ættu að kosta kapps um að misnota ekki þennan rétt og misnota ekki þá möguleika sem þinginu eru gefnir til að ræða mál utan dagskrár. Ég held að menn ættu að reyna að venja sig á það. Það hefur tekist svo til í vetur, að það hefur keyrt úr öllu hófi hvernig menn, ég vil segja: misnota þennan rétt. En ég ætla að taka það fram um þessa fsp., að það var út af fyrir sig ekkert við það að athuga þó að hv. þm. 5. þm. Vesturt. vildi leggja áherslu á mál, sem hann telur mikilsvert, og að þessi skýrsla, sem hann beitti sér fyrir að gerð yrði af minni hálfu, — ég tel ekkert við það að athuga þó að hann leggi áherslu á að sú skýrsla komi fram sem allra fyrst. Það finnst mér ósköp eðlilegt. Og ég tel ekki óeðlilegt þó að hann hafi staðið hér upp utan dagskrár þeirra einna erinda að spyrja ráðh. um þetta. Slíkt hefur oft skeð í þingsögunni og ekkert við því að segja. Hins vegar verð ég jafnframt að segja, að það var engin ástæða til þess fyrir hv. þm. að hafa allan þann formála sem hann hafði eða fara að rekja hér langan aðdraganda að þessari fsp. sinni og taka hér málefni Ríkisútvarpsins til umr. á ákaflega breiðum grundvelli.

Ég held að það sé nægur tími til þess að bíða þeirrar skýrslu, sem hv. þm. hefur beðið um og unnið er að og ég mun að sjálfsögðu leggja fyrir þingið svo fljótt sem kostur er. Að þessari skýrslu er unnið. Ég vil minna hv. 5. þm. Vesturl. og reyndar þingheim allan á það, að sú beiðni um skýrslugerð, sem um ræðir, er ekkert smáræði. Það er ekkert smáræði sem á að koma fram í þessari skýrslu. Og ég tel að það sé skylda mín að vinna vel að þessari skýrslugerð, í samræmi við það sem spurt er, og að því verður unnið og skýrslan verður lögð fyrir þingið svo fljótt sem verða má. Það er rétt, að það hefur orðið kannske helst til langur dráttur á því, að skýrslan kæmist í það form að hægt væri jafnvel að skýra fyrirspyrjendum eitthvað frá niðurstöðu hennar, það er rétt, en til þess liggja vissar ástæður. Ég mun sem sagt reyna að hraða skýrslugerðinni og tel að það sé heldur ávinningur fyrir mig og fyrir Ríkisútvarpið að slík skýrsla sé gerð og lögð fyrir þingið heldur en hitt, og um það hugsa ég að við séum sammála, hv. 5. þm. Vesturl. og ég.

En sem sagt, það, sem ég vil leggja höfuðáherslu á í þessu sambandi, er að mér finnst að verið sé að misnota þann rétt og þann möguleika, sem þingmenn hafa til að ræða mál utan dagskrár, með því að fara að ræða þetta mál á þann hátt sem hér hefur verið gert. Látum svo vera þó hv. þm. vilji ýta á eftir þingmáli sem honum finnst dragast að fái lausn, en hitt tel ég alveg óþarfa af honum, að taka málið upp eins og gert var.

Sannleikurinn er sá, að maður gæti haldið að það væri einhver lífsháski á ferðinni, að það sé einhver óskaplegur voði á ferðinni í sambandi við þetta mál, eins og hv. þm. túlkaði þetta núna. Hef ég varla heyrt hann eiginlega túlka þetta mál — þó hann hafi oft talað um málefni Ríkisútvarpsins — á þann hátt sem hann gerði núna. Það virðist allt vera í voða. Þetta er alger misskilningur. Það, sem er að gerast hjá Ríkisútvarpinu núna, er einmitt að það er verið að reyna að hreinsa upp þá fjármálaóreiðu, vil ég segja, og vandræði sem voru og hafa verið að skapast þar undanfarin ár. Það er verið að reyna það. Það er sannleikurinn. Og ef hv. þm. vill fara að halda því fram, að það sé eitthvert vandræðamál fyrir Ríkisútvarpið, finnst mér satt að segja að hann sé að tala gegn þeirri stefnu sem flokksmenn hans hafa mótað, ef það á að vera einhver voði að reynt sé að laga starfsemi Ríkisútvarpsins að því fjármagni sem Alþingi ætlar því. Ég get ekki séð að þar sé neinn voði á ferð, heldur sé þar um að ræða skynsamlegar fjármálaráðstafanir. Og það er einmitt það sem verið er að vinna að núna. Það er verið að vinna að því að skynsamlegar fjármálaráðstafanir verði gerðar innan útvarpsins til þess að það geti staðið undir rekstri sínum, vinna að hagræðingu í rekstri Ríkisútvarpsins með þetta fyrir augum. Þetta er enginn voði, hv. þm., þetta er nákvæmlega það sem ég held að flestir þm. vilji að gert sé þegar um opinberar stofnanir er að ræða.

Ég ætla ekki að fara að kenna einum eða neinum um það, hvernig fjárhag Ríkisútvarpsins var komið. Það eru áreiðanlega margar ástæður fyrir því, að Ríkisútvarpið var rekið með verulegum halla árið 1979 og með miklum halla árið 1980. Þetta á sér allt sinn langa aðdraganda, en ég tel að eins og nú er sé þó verið að reyna að spyrna við fótum. Alþingi afgreiddi fjárlög nú með þeim hætti og skildi þannig við sakir Ríkisútvarpsins, að segja má að Ríkisútvarpið sé gert upp á núlli á þessu ári. En vandræðin í sambandi við fjárhag Ríkisútvarpsins núna eru vitanlega þau að greiða upp þann halla sem safnast hafði fyrir á undanförnum árum, og ég held að sá halli — þó að hann sé vissulega mikill — sé varla svo mikill sem hv. þm. nefndi hér áðan ef allt er tekið til. En látum það vera. Ég held að það vinnist tími til að greiða niður þann halla. En það er ekki hægt á sama tíma að gera kröfu til þess, að Ríkisútvarpið haldi öllu óbreyttu í dagskrá jafnframt því sem að því er þrengt um fjáröflun og það er að koma sér út úr hallarekstri og vandræðum sem hafa verið að skapast.

Ég held að allir sanngjarnir menn sjái að málin liggja þannig fyrir. Auðvitað hefur enginn — og síst af öllu ég — ástæðu til að fagna því, að nú verður að grípa til tiltekinnar skerðingar á dagskrártíma. Það er enginn fögnuður hjá mér yfir því. En ég vil jafnframt vara menn við að gera úr þessu þau ósköp sem hér komu fram í máli hv. þm. áðan, vegna þess að það er óþarft. Maður gæti ímyndað sér að það ætti bókstaflega að fara að skrúfa fyrir útvarpið meira og minna. Þó að verið sé að skerða útsendingartíma um hálftíma eða kannske að lengja sumarfríið hjá sjónvarpinu um viku eða eitthvað slíkt, þá er fjarri því að verið sé að gera Ríkisútvarpinu einhvern þann óskunda, að þau ósköp séu að gerast hjá Ríkisútvarpinu að það verði ekki unnið upp fljótlega eftir að hægist um fjárhag Ríkisútvarpsins. Það er fjarri því.

Ég held að það sé ekki til bóta að fara að koma því inn hjá almenningi, að það eigi að fara að skerða svo þjónustu Ríkisútvarpsins, dagskrá þess, að fólk hafi engin not eða lítil af Ríkisútvarpinu. Þetta er algjör misskilningur, og ég tel að svona svartsýni eigi engan rétt á sér. Það er hins vegar engin ástæða til að fagna því í sjálfu sér, að til þessa þarf að grípa. Ég held þó satt að segja að það ætti frekar að vekja fögnuð í hjörtum þeirra Alþfl. manna, að það er gerð tilraun til þess í einni ríkisstofnun að laga starfsemi hennar að því fjármagni sem hún hefur yfir að ráða. Það held ég satt að segja að ætti að vera. En kjarni þessa máls er auðvitað sá, að það er verið að vinna að því að Ríkisútvarpið komist út úr fjárhagsvanda sínum. Það getur tekið allt þetta ár, það getur tekið næsta ár, en við skulum þá vona að það batni úr því. Við skulum vona það.

Auðvitað þarf að tryggja þá tekjustofna sem Ríkisútvarpið hefur. Það hefur ekki alltaf verið gert, og ég skal fúslega viðurkenna að það hefur ekki tekist í minni tíð að auka svo tekjur Ríkisótvarpsins t, d. af afnotagjöldum eins og ég hef lagt til og óskað eftir að væri og stofnunin hefur gert. En ýmsar ástæður valda því, að menn hafa ekki treyst sér til að stíga svo langt í einu spori að jafna út þennan halla á stuttum tíma, enda má líka til sanns vegar færa að heppilegra sé að gera það í fleiri skrefum.

En sem sagt, kjarni málsins er að mínum dómi sá, að það er enginn sá voði á ferðum hjá Ríkisútvarpinu að ástæða sé til þess að hlaupa hér upp utan dagskrár til þess að tilkynna þingheimi að þar sé allt á völtum fótum og allt í afturför og láta það síðan berast út til almennings. Það er engin ástæða til slíks. Ég held að full ástæða sé til þess hins vegar að líta raunsætt á þessi mál eins og þau eru. Við erum að berjast við erfiðleika í rekstri undanfarinna ára, og það er verið að reyna að koma sér út úr þessum erfiðleikum. Og þetta veit ég reyndar að hv. þm. Eiður Guðnason, sem er vel kunnugur þessari stofnun og reyndar sanngjarn maður að auki, sér, að svona er það, þegar hann hugsar málið nánar.

En hvað varðar svo þá fsp. hans sérstaklega, hvað líði skýrslugerðinni, þá er að henni unnið og ég vona að í mánaðarlokin, a. m. k. í fyrstu viku apríl verði þessi skýrsla fullbúin og fær til umræðu hér á hv. Alþingi.