12.03.1981
Sameinað þing: 60. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2879 í B-deild Alþingistíðinda. (3003)

Umræður utan dagskrár

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Ég tel ekkert óeðlilegt að hér sé rætt um þetta mál utan dagskrár, ekki síst vegna þess sem fram kom í máli þess hv. þm. sem hóf umr. hér, að eftir hæstv. menntmrh. er haft í blöðum að hann rugli saman rekstri og stofnkostnaði Ríkisútvarpsins.

Það var ánægjulegt að heyra lokaorð hæstv. ráðh., þar sem hann boðaði að skýrslan kæmi fyrir lok þessa mánaðar, og eins hvernig hann dró í land um afstöðu sína til hv. þm. sem hóf þessar umr., því að fyrr í sinni ræðu veittist hæstv. ráðh., kannske óviljandi, heldur ódrengilega að hv. þm. Eiði Guðnasyni sem á sínum tíma var formaður fjvn. Ég vil hér með staðfesta það, að þessar árásir á hv. þm. Eið Guðnason eiga við engin rök að styðjast. Það var á leynifundi meiri hl. fjvn. í fyrra sem teknar voru allar meiri háttar fjárhagsákvarðanir um Ríkisútvarpið og kom formaður fjvn. þar hvergi nærri. Reyndi hann þó að berjast ötulli baráttu fyrir hagsmunum fyrirtækisins, en hafði ekki erindi sem erfiði.

Þetta þarf að koma fram, því að þetta er í annað sinn á þessum vetri sem þm. Framsfl. ráðast á hv. þm. Eið Guðnason með þessum brigslum, gífuryrðum og ósannindum. Slíkt þarf að reka til föðurhúsanna, hver sem í hlut á, því að það er ekki sæmandi hv. þingmönnum.

Vel má vera að hér sé verið að misnota réttinn til utandagskrárumræðna. Ég lýsi yfir ánægju minni með að hæstv. ráðh. skuli taka eftir því. Virðist hann fylgjast mjög náið með störfum þingsins og veit það á gott, því að það þýðir væntanlega að störf Alþingis fréttast um heim allan.

Þá er komið að þeirri spurningu, hver eigi að gefa fyrirmæli um sparnað og hvers konar sparnað hjá Ríkisútvarpinu. Auðvitað verður menntmrh. að taka þátt í þeim leik. Það er ekkert ósanngjarnt að ætlast til að þeir, sem bera ásamt fjmrn. ábyrgð á því, hvernig þessi stofnun er haldin fjárhagslega, beri einnig ábyrgð á því, hvar sparnaðurinn á að koma niður.

Þá vil ég fara nokkrum orðum um rekstur þessarar stofnunar á grundvelli talna sem ég þekki annars vegar og hef aflað mér nýlega hins vegar.

Það er ljóst, að á árinu 1979 varð 445 millj. kr. halli og 1980 1200 millj. kr. halli á Ríkisútvarpinu í gkr. talið. Það þýðir, að án þess að færa það upp til verðlags dagsins í dag eru þetta 16.5 millj. nýkr. Þá veitti hæstv. ríkisstj.— og það er rétt að það komi fram því að það hjálpar auðvitað hæstv, ríkisstj. nokkuð í sinni stöðu í þessu máli, — þá veitti ríkisstj. Ríkisútvarpinu lán að upphæð 570 millj. gkr., sem Ríkisútvarpið lítur á sem óafturkræft lán vegna þess að um teknaskerðingu hafi verið að ræða, sem ég veit að hæstv. ráðh. þekkir mjög vel. En það mál er ekki útkljáð og væri vissulega skemmtilegt ef hægt væri að upplýsa það hér og nú, hvort ætlunin sé að krefja útvarpið um þessa fjármuni aftur.

Samkvæmt fjárlögum og í forsendum fjárlaga var gert ráð fyrir því, að Ríkisútvarpið gæti aflað tekna á grundvelli hækkaðra afnotagjalda — hinn 1. mars upp á 22.5% og 6% 1. sept., síðari hluta ársins. Ég tek það skýrt fram, að Ríkisútvarpið fékk ekki þessa 10% hækkun um áramót. En þó ber þess að geta, að auglýsingatekjur hækkuðu um áramótin um 25–28%, og auglýsingatekjur útvarps og sjónvarps eiga að hækka um 60–70% á yfirstandandi ári, en þær hækkuðu milli ára síðast um 80%. Samt sem áður hef ég það eftir fjármálastjóra Ríkisútvarpsins, að hækkunarþörf útvarpsins síðari hluta ársins sé 30% í staðinn fyrir 6%, til þess aðeins að fjárlögin geti staðist. Og að auki þurfi að koma 10% til viðbótar ef greiða á niður halla tveggja síðustu ára á fimm árum, og er þá ekki tekið tillit til hins óendurkræfa láns.

En þetta er ekki einsdæmi um þessa stofnun. Þetta gerðist líka í tíð vinstri stjórnarinnar 1971–1974. Það er reyndar megineinkenni vinstri stjórna að reka opinberar stofnanir með halla og fresta venjulega úrlausnum allra vandamála, því að sömu sögu má segja um aðrar ríkisstofnanir, eins og t. d. Skipaútgerð ríkisins og Póst og síma.

Ég biðst afsökunar, herra forseti, að hafa farið fram út tíma og þakka umburðarlyndið.