12.03.1981
Sameinað þing: 60. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2900 í B-deild Alþingistíðinda. (3014)

235. mál, innlendur lyfjaiðnaður

Flm. (Guðmundur G. Þórarinsson):

Herra forseti. Ég vil sérstaklega þakka þeim þm., sem hér hafa tekið til máls, mjög jákvæðar undirtektir við þessa þáltill. Ég vil líka taka undir þau orð þeirra, að þessi till. fái athugun í nefnd. Finni menn á henni einhverja vankanta eða eitthvað sem bæta má, þá vonast ég til að um það verði efnislega fjallað og það vandlega.

Um þær aths., sem hv. 10. þm. Reykv., Friðrik Sophusson, kom hér með, vil ég fara fáeinum orðum. Hann dró nokkuð í efa þær tölur sem hér eru dregnar fram í grg. varðandi hagnað ríkisins af framleiðslu Lyfjaverslunar ríkisins eða samanburð á verði sem þar kemur fram. Aftast í þessari þáltill., á aftasta blaði hennar, er birt tafla sem Lyfjaverslun ríkisins hefur látið vinna núna í jan. 1981, þar sem heildsöluverð á nokkrum framleiðslutegundum Lyfjaverslunar ríkisins í 10 ár er borið saman við heildsöluverð innfluttra sambærilegra lyfja. Þessa töflu hef ég notað. Nú dregur hv. 10. þm. Reykv. nokkuð í efa að þessar tötur muni standast og spyr þá m. a. hvernig bókhald fyrirtækisins sé fært og hvernig stofnkostnaður hinnar nýju deildar þar komi inn í þetta, hvort hann komi inn í þetta verð og hvernig þessar tölur snúi. Ég skal fúslega játa það, að ég er ekki inni í bókhaldi Lyfjaverslunar ríkisins til þess að geta skorið úr þessu. En ég geri mér fyllilega grein fyrir hvað það er sem þm. á við, og það mætti sjálfsagt skoða betur. Kannske er þessi hagnaður meiri en þarna kemur fram, og kannske er hann eitthvað minni ef bókhaldsreglum væri öðruvísi beitt. Því kann ég ekki að svara. Hins vegar hygg ég að það muni vera í lögum, að Lyfjaverslun ríkisins skuli ekki rekin með hagnaði. (FrS: Það eru skratti góð lög.) Það eru skratti góð lög, já. Ég hygg nú að það kunni að hafa haldið þessu ágæta fyrirtæki eitthvað niðri og ég efast um að ákvæði slíkra laga séu sanngjörn.

Hv. þm. fór nokkrum orðum um aðrar greinar. Sérstaklega talaði hann um þetta að felld yrðu niður aðflutningsgjöld af áhöldum og tækjakosti og nefndi reyndar aðföng líka. Hér er nánast, ef ég man rétt, fylgt þeim þáltill. sem fyrir liggja til iðnþróunar, sem ríkisstj. hefur lagt fram um almennan iðnað, þannig að hér er ekki verið að fara fram á nein sérréttindi fyrir lyfjaiðnað, heldur eingöngu verið að ítreka það, að eigi þessi iðnaður að standa í samkeppni við erlendan lyfjaiðnað verður hann að njóta slíkra kjara.

Hv. 10. þm. Reykv. fór nokkrum orðum um 7. liðinn í þáltill. sem hljóðar svo, að ríkisspítölum og öðrum opinberum stofnunum verði gefin fyrirmæli um að kaupa innlend lyf í stað erlendra þar sem gæði og verð eru sambærileg. Og hann ræddi nokkuð um reglur lækna og taldi að þarna gætu verið einhver ljón á veginum. Í 8. liðnum er reyndar sagt: Leitað verði samkomulags við lækna um að ávísa á innlend lyf þar sem þau eru sambærileg að verði og gæðum við hin erlendu.

Ég skal fúslega játa að það kunna að vera einhverjir erfiðleikar á vegi þarna. En ég hygg að í mörgum tilvikum, ef ekki flestum, séu lyfjafræðingar ekki síður dómbærir á gæði lyfs heldur en læknar. Og ég efast um — og ég árétta það, að ég efast mjög mikið um að tæknar setji sig inn í það, þó um sömu lyf sé að ræða, hvaða lyf sé hagkvæmast fyrir Tryggingastofnun að keypt sé. (StJ: Það eru framleidd fleiri lyf heldur en læknar þurfa að ávísa.) Það er alveg rétt. (StJ: T. d. tröllamjöl.) Ég heyri að hv. þm. er vel inni í þessum málum. En hvað sem því líður, þá er sagt í grg. með þessari þáltill., að hér sé um það stóran útgjaldalið að ræða fyrir íslenska ríkið að vel þurfi að huga að, og erlendar þjóðir margar, sem bæði eru stærri og ríkari en okkar íslenska þjóð, hafa talið mikla nauðsyn á að fylgjast mjög fast með þessum málum.

Hér er talað um að leita samkomulags við lækna um þessi atriði, og það kæmi mér á óvart ef ekki væri ríkur skilningur hjá þeim einmitt um þessi mál. Hins vegar kom hv. þm. ekki inn á atriði þarna sem vafalaust þyrfti að skoða betur, varðandi það hvort einhverjar hugsanlegir árekstrar gætu orðið við fríverslunarsamninga, sem Íslendingar hafa gert, þar sem segir t. d. í framhaldi af þessum 7. lið að sjúkrasamlög taki ekki þátt í kostnaði við erlend sérlyf ef innlend lyf eru sambærileg að verði og gæðum.

Ég skal ekki segja um það, það þarf að skoða, hvort þetta kann að rekast á við samninga sem Íslendingar hafa gert. Það má vel vera, að niðurstaða af þeirri athugun gæti orðið sú, að Tryggingastofnun eða sjúkrasamlög tækju ekki meiri þátt í kostnaði við erlend lyf en innlend, ef þau eru sambærileg að verði og gæðum, og þá yrði sjúklingur að greiða sjálfur hærri mismun, ef hann vill heldur hið erlenda dýra lyf, sé annað innlent á boðstólum sem að mati lækna og lyfjafræðinga er jafngott, og í mörgum tilvikum er um að ræða nánast sama lyfið.

Hér er líka í 8. lið atriði þar sem segir að lyfjafræðingum verði gefin heimild að breyta lyfseðli á erlend sérlyf ef innlend lyf eru sambærileg að verði og gæðum, nema áritun læknis kveði sérstaklega á um annað. Sjálfsagt mætti halda mjög langa ræðu um þetta atriði.

Eftir þeim gögnum, sem ég hef komist yfir, virðast a. m. k. nokkur ríki Bandaríkjanna hafa sett lög í þessa átt og þau telja samkv. þeim gögnum, sem ég hef séð, að þetta hafi sparað verulegt fjármagn því að í mörgum tilvikum er um að ræða sama lyfið með mismunandi nafni, — þarna hafi verið um verulegan sparnað að ræða án þess að nokkuð væri slakað á gæðum. Hins vegar kann þetta mál að snerta lyfjadreifingarfrv. sem hér var gert að umræðuefni áðan og hv. 2. þm. Austurl. ræddi sérstaklega.

Eitt af þeim atriðum, sem menn hafa mjög mikið velt fyrir sér varðandi lyfjadreifingarfrv., er einmitt þetta, að smásala lyfja er í höndum lyfjafræðinga og þeir hafa einokun á þeirri smásölu. Í framhaldi af því hafa menn velt því mjög fyrir sér, hvort eðlilegt sé að smásali lyfja geti jafnframt verið umboðsmaður fyrir erlenda sérlyfjaframleiðendur og hvort hugsanlega gætu orðið í slíku tilviki einhverjir hagsmunaárekstrar. Þetta hefur mikið verið rætt varðandi lyfjadreifingarfrv., sem ég vonast til að verði lagt fram mjög fljótlega enn á ný hér á þinginu.

Hins vegar er það svo samkv. gögnum sem ég hef fengið í hendur í dag, að t. a. m. í Danmörku snúast umræðurnar ekki um það, hvort apótekarinn eða smásali lyfja eigi að hafa rétt til að vera umboðsmaður erlendra sérlyfjaframleiðenda, heldur miklu frekar hitt, hvort það geti samrýmst að hann sé smásali og jafnframt framleiðandi lyfja, hvort þar geti orðið hagsmunaárekstrar. Og mér sýnist af lyfjasérfræðiritum í Danmörku, að umræðurnar í Danmörku snúist um þetta núna, um framleiðslu lyfja annars vegar og smásölu lyfja hins vegar. Og þá kann maður að velta fyrir sér aftur, ef lyfjafræðingi er gefinn kostur á að breyta lyfseðli læknis á erlend sérlyf yfir á innlend, hvort þar gæti orðið hagsmunaárekstur ef lyfjafræðingurinn er sjálfur framleiðandi að þessu innlenda lyfi eða á þar hagsmuna að gæta.

Þarna eru málin kannske glettilega flókin og þurfa skoðunar við, og þar gætum við e. t. v. horft betur til nágrannaþjóðanna sem vafalaust hafa unnið miklu meira á þessum sviðum en við.

Hv. 10. þm. Reykv. gerði það að umræðuefni, að framleiðslan hér væri að mestu leyti forskriftarlyf eða það sem hann kallaði eftirlíkingar. Það kemur líka fram í grg., að innlend lyfjaframleiðsla byggir mest á kaupum virkra efna, sem seld er á frjálsum markaði erlendis, en eru nánast sömu efnin og eru í mörgum öðrum lyfjum, en upphaflegi lyfjaframleiðandinn hefur eingöngu einkaleyfi á ákveðinni framleiðsluaðferð. Sá, sem þannig framleiðir, hefur auðvitað ekki lagt í rannsóknarkostnað eða þær feiknamiklu og dýru tilraunir og þá leit sem liggur að baki framleiðslu lyfsins. Þetta er alveg rétt. Ég held að innlend lyfjaframleiðsla muni áfram byggjast á þessu atriði, á kaupum á virkum efnum á frjálsum markaði. Og eins og hv. 10. þm. Reykv. sagði, það eru fjölmargar aðrar þjóðir sem einmitt framleiða lyf á þennan hátt.

Ég held að í stórum dráttum megi skipta innlendum lyfjaiðnaði og jafnvel framtíð hans í þrjá liði. Það er í fyrsta lagi að auka hlutdeild innlendrar lyfjaframleiðslu í þeim lyfjamarkaði sem hér er í landinu. Samkv. þeim tölum, sem nefndar eru í þessari grg., er þar um verulegt fé að ræða, um verulegan sparnað í erlendum gjaldeyri að ræða, jafnvel án mikillar viðbótarfjárfestingar. Og þar er til mikils að vinna. Það er engin spurning. Þarna getum við talsvert mikið gert og aukið vinnu við þennan iðnað.

Annar þáttur í þessu gæti orðið einhvern tíma í framtíðinni hugsanlega — og e. t. v. ekki svo langt frammi í framtíðinni — framleiðsla hér á lyfjum til útflutnings, þ. e. framleiðsla á lyfjum í samvinnu við erlenda aðila sem fundið hafa lyfið upp. Margir telja að í því gæti orðið nokkur framtíð einmitt að framleiða hér lyf á þann hátt til útflutnings.

Í þriðja lagi er um það að ræða að framleiða hráefni til lyfjaframleiðslu og þá jafnvel hormónaframleiðslu eða hvata- eða enzymaframleiðslu og fleira slíkt, eins og ég nefndi í minni framsöguræðu. Það hafa verið unnar nokkrar skýrslur hér á landi um slíka hugsanlega vinnslu, og ég efast ekki um að þar gætu verið talsverðir möguleikar fyrir Íslendinga. Ég held að við ættum að opna augu okkar meira fyrir slíkum möguleikum. Þar gætum við unnið úr innlendu hráefni og byggt á menntuðu innlendu starfsliði.

Ég vonast til að þessi till. fái jafngóðar undirtektir í nefnd og hún hefur fengið hér við umr. og okkur takist að fá hana samþykkta. Þó að hv. 2. þm. Austurl. hafi ekki komist áfram með sína till. á sinum tíma, þá er ég viss um að hann stendur með okkur flm. um að koma þessari till. áfram, og ég vonast til að það geti orðið til eflingar innlendum lyfjaiðnaði.