17.03.1981
Sameinað þing: 61. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2911 í B-deild Alþingistíðinda. (3032)
206. mál, almennar skoðanakannanir
Fyrirspyrjandi (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Vegna ummæta hv. 5. þm. Vesturl. vil ég aðeins segja að það, sem hann vildi hafa hér eftir og ég átti að hafa sagt í umr. um till. 1979, er alrangt en er þó í fullu samræmi við ýmsar þær fullyrðingar sem hv. þm. hefur tamið sér í umræðum á opinberum vettvangi. Ég vil ráðleggja honum í leiðinni að lesa vandlega ritstjórnargreinar í Alþýðublaðinu undanfarið um þessi mál.
En ég vil aðeins segja það að lokum, að ég mæli ekki með því að reglur um skoðanakannanir séu settar þannig að þær hamli eðlilegri skoðanamyndun. Ég vil endurtaka ummæli þn. sem ég kom inn á í framsögu, þar sem mælt var með samþykkt þessa máls 1979 og var einróma samþykkt hér í sölum Alþingis. Þar stendur, með leyfi hæstv. forseta: „ . . . það er ekki skoðun nefndarmanna að með þessari tillögu sé verið að samþykkja að settar verði reglur til þess að setja almennum skoðanakönnunum einar eða aðrar skorður, heldur fremur að reglurnar, sem settar yrðu, yrðu leiðbeinandi við framkvæmdina og þess efnis, að skoðanakannanir uppfylltu almenn skilyrði um framkvæmd þannig að fólkið í landinu mætti hafa eitthvert traust á niðurstöðum slíkra skoðanakannana.“
Hver einasti þm. á Alþingi þá samþykkti þessa tillögu. Eiður Guðnason: Herra forseti. Út af þeim ummælum, sem hv. 1. þm. Vesturl. viðhafði áðan, skal ég segja honum það til hugarhægðar, að ég hef lesið allar forustugreinar Alþýðublaðsins um þessi efni mér til mikillar ánægju og get tekið undir ákaflega margt af því sem þar kemur fram.
Hann lét sér sæma að segja hér, að ég hefði ekki haft rétt eftir þau ummæli sem ég vitnaði til áðan. Í þingtíðindum stendur, ég er að vísu ekki með það hér orðrétt, að Alexander Stefánsson sagðist ekki hafa neinu við það að bæta sem flm. till. hefði sagt. Það skil ég þannig, að hann taki undir þau orð hans. Hafi hann meint eitthvað annað hefði hann átt að segja það þá.