17.03.1981
Sameinað þing: 61. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2911 í B-deild Alþingistíðinda. (3033)
206. mál, almennar skoðanakannanir
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Út af þeim ummælum, sem hv. 1. þm. Vesturl. viðhafði áðan, skal ég segja honum það til hugarhægðar, að ég hef lesið allar forustugreinar Alþýðublaðsins um þessi efni mér til mikillar ánægju og get tekið undir ákaflega margt af því sem þar kemur fram.
Hann lét sér sæma að segja hér, að ég hefði ekki haft rétt eftir þau ummæli sem ég vitnaði til áðan. Í þingtíðindum stendur, ég er að vísu ekki með það hér orðrétt, að Alexander Stefánsson sagðist ekki hafa neinu við það að bæta sem flm. till. hefði sagt. Það skil ég þannig, að hann taki undir þau orð hans. Hafi hann meint eitthvað annað hefði hann átt að segja það þá.