17.03.1981
Sameinað þing: 61. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2911 í B-deild Alþingistíðinda. (3034)
206. mál, almennar skoðanakannanir
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Vegna þess að ég tel umr. um skoðanakannanir mjög mikilvægan þátt í lýðræðisumræðum í landinu og hef í þeim efnum verið baráttufélagi hv. þm. Vilmundar Gylfasonar hér á Alþingi langar mig til að spyrja hann héðan úr ræðustól hvort hann sé sammála þeirri gagnrýni á skoðanakannanir og þeim boðskap um þær sem fram hefur komið í leiðurum Alþýðublaðsins á undanförnum vikum.