17.03.1981
Sameinað þing: 61. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2912 í B-deild Alþingistíðinda. (3037)
Umræður utan dagskrár
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það er ekki í fyrsta skipti sem það skeður að það vantar fyrirspyrjanda í fundarsal, og það er kannske ástæða til þess stundum að hafa orð á slíku þegar það kemur fyrir. En vegna ummæla hæstv. forsrh. tel ég mér skylt að upplýsa að það hefur æ ofan í æ komið fyrir að hæstv. ráðherrar hafa ekki svarað fsp. svo vikum skiptir, stundum mánuðum. Þeir hafa verið á ferðalögum út um heiminn til þess að gegna skyldum sínum við land og þjóð, sem er ekkert við að segja. En um það hefur lítið verið rætt þegar slíkt hefur komið fyrir og venjulegir hv. þm. hafa ekki séð ástæðu til að taka það sérstaklega upp og reynt að sjá í gegnum fingur við ráðh., því að við vitum að stundum eru eðlilegar skýringar á því að menn geta ekki komið á þingfundi.
Ég á fyrirspurnir á dagskrá þessa fundar sem ég hef átt von á að geta fengið svarað að undanförnu, en hæstv. fjmrh. lætur ekki sjá sig á hinu háa Alþingi í dag. Hann á reyndar ekki sæti á þingi, það er rétt að það komi fram, heldur varamaður hans. En það sama gilti um daginn þegar hér var til umr. í sölum Alþingis Blönduvirkjun. Þá átti hæstv. fjmrh. ekki heldur sæti á Alþingi því að annar maður var í hans stað og sá hinn sami tók til máls varðandi Blönduvirkjun, en þá kom hæstv. ráðh., vegna þess að þeim umr. var sjónvarpað, til þess að láta ljós sitt skína. Þá kom hann til þess að allir tækju eftir því að hann sæti á Alþingi. En sama dag gat hann ekki komið hingað og svarað einföldum fsp. sem vissir þm. telja vera nokkuð brýnar orðnar, þar á meðal fsp. um mál sem átti að leggja fyrir Alþingi s. l. haust.
Hæstv. félmrh. hefur jafnframt vikið sér undan því að svara 5. fsp. sem er á dagskrá Sþ. í dag, vegna þess einfaldlega að hann á engin svör við henni. Það er verið að vinna enn þá í þeim málum og eru það þó afleiðingar af efnahagsráðstófunum ríkisstj. sem hún gerði um síðustu áramót.
Þannig mætti lengi halda áfram að telja. Samt sem áður erum við ekki að kvarta undan þessu nema vegna þess að nú sér hæstv. forsrh. sig knúinn til að kvarta undan því, að ákveðinn hv. þm. er ekki í þingsölum. (ÓRG: Þm. hefur ruglast í númerum.) Ég biðst afsökunar. Það er rétt hjá hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni. Það er 6. málið sem átt er við. Ég þakka hinum háttvísa hv. þm. fyrir þetta framígrip.
En það, sem ég ætlaði að segja, er einfaldlega þetta, að það geta verið ástæður til þess að menn komist ekki á fund. Það gildir jafnt um hæstv. ráðh. og almenna hv. þm. Ég skil hæstv. forsrh. mjög vel, að hann skuli koma hér og kvarta undan þessu, en hann og hans ágætu hæstv. ráðherrar verða þá jafnframt að skilja að þannig megum við venjulegir þm. stundum una því að koma þriðjudag eftir þriðjudag án þess að fá fsp. svarað.