04.11.1980
Sameinað þing: 14. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í B-deild Alþingistíðinda. (304)

9. mál, iðnaður á Vesturlandi

Davíð Aðalsteinsson:

Herra forseti. Það er ekki ætlun mín að fara að bæta við mörgum orðum um stöðu Vesturlands í atvinnumálum. Ég gat þó ekki setið á mér að standa hér upp og segja aðeins örfá orð.

Ég vil taka það fram, að það urðu mér og meðflm. mínum í fyrra að þessari till. sár vonbrigði, að till. skyldi ekki vera afgreidd á liðnu þingi. Þess ber að geta, að starfsálag var mikið á þinginu á liðnum vetri, þannig að á því kunna að vera góðar og gildar skýringar. Nú vonumst við að sjálfsögðu til þess, að þessi umrædda till. fái jákvæða afgreiðslu hér á hv. Alþingi. Auðvitað geta menn deilt um gildi slíkrar áætlanagerðar, en það er álit okkar flm., að slíkar áætlanir séu forsenda þess að menn líti af skynsamlegu viti yfir sviðið allt til þess að geta valið og hafnað um staðsetningu hinna ýmsu fyrirtækja o.s.frv., ekki aðeins innan viðkomandi landshluta, heldur einnig að geta gert samanburð á milli landshluta.

Ég vil segja það aðeins, að ef okkar íslenski iðnaður á í náinni framtíð að bæta lífskjör okkar, eins og margoft er talað um, þá er óhjákvæmilegt að við tökum til hendi. Þess vegna er mjög nauðsynlegt að við stöndum einnig fast saman að því að bæta verk og tæknikunnáttu sem víðast um landið, en við verðum jafnframt að vera opin fyrir nýjungum í atvinnulífinu og okkur er einnig skylt að virkja bæði hugkvæmni og áræði einstaklinga sem sækja fram. Vegna þess, sem ég sagði áðan, að við yrðum að líta yfir sviðið allt, vil ég ítreka þá skoðun mína, að nauðsynlegt er að vinna ákveðna undirbúningsvinnu til þess að slíkar áætlanir geti komið að gagni. Slík undirbúningsvinna nýtist auðvitað fullkomlega, fyrst og fremst á þeim vettvangi að koma í veg fyrir, öðrum þræði a.m.k., að menn kroppi augun hver úr öðrum í okkar atvinnulífi. Þessi till., sem hér er flutt og vonandi verður framkvæmd, er aðeins einn þáttur þess mikla starfs sem vinna þarf á langri leið til uppbygginga í okkar iðnaði.