17.03.1981
Sameinað þing: 61. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2914 í B-deild Alþingistíðinda. (3041)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Auðvitað var megnið af því, sem hv. síðasti ræðumaður sagði hér, eintómt blaður. Mér finnst skylt og. sjálfsagt að þakka hv. þm. það, að hann segist hvað eftir annað hafa hlaupið undir bagga með ríkisstj. Mér skilst að hann sé fullur af vilja gerður að gera slíkt þegar á þarf að halda. Nú eru það sorgartíðindi, sem borist hafa, að innan fárra daga muni hv. þm. fara til útlanda á Hafréttarráðstefnuna. Það er auðvitað mikill harmur að okkur kveðinn og mikil eftirsjá. Ég veit ekki hvernig fer fyrir stjórninni þegar Eyjólfur Konráð er farinn af landi burt.