17.03.1981
Sameinað þing: 61. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2924 í B-deild Alþingistíðinda. (3056)

233. mál, fjármagn til yfirbyggingar vega

Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Ég varð fyrir vonbrigðum með síðari ræðu hæstv. samgrh. og fannst hann draga um of fætur, því að hæpið var að hann teldi að hægt yrði að ráðast í eitt eða neitt á þessu ári.

Hæstv. ráðh. talaði um að yfirbyggingu vega þyrfti að undirbúa sem best. Út af fyrir sig hljóta allir að vera sammála um það, En hlýtur nú ekki að vera kominn sæmilegur undirbúningstími — allt frá 1972 — að því er varðar t. d. Óshlíðarveg og Ólafsfjarðarmúla? Ég a. m. k. held að það hljóti að liggja fyrir, og raunar veit ég að það liggja fyrir að því er varðar Óshlíðarveginn svo miklar upplýsingar að hægt væri að hefja byrjunarframkvæmdir á þessu ári. Ég þori ekkert að fullyrða um Ólafsfjarðarmúlann, en mér finnst a. m. k. að vegagerðarmenn, sérfræðingar, séu búnir að hafa ærinn tíma til að hugleiða þetta verkefni, afla sér upplýsinga um það, bæði hérlendis að því er varðar staðhætti og erlendis, og ættu að hafa þessar upplýsingar allar í höndum þannig að það hljóti að vera hægt, ef stjórnvöld og Alþingi geta á annað borð útvegað fjármuni til þessara verkefna, að koma þeim inn á vegáætlun nú og byrja framkvæmdir á þessu ári.

Mér er ljóst, eins og ég sagði áðan, að það tekur sjálfsagt langan tíma að ljúka mannvirkjum þarna. — Kannske verður þeim seint eða aldrei lokið — en tel að það verði ekki undan því vikist að fjármagn verði útvegað á þeirri vegáætlun, sem nú liggur fyrir að samþykkja, og að framkvæmdir verði hafnar helst á þessu ári. Ég spyr hæstv. ráðh., hvort ekki megi treysta því að hann í broddi fylkingar ríkisstj. sjái svo um að öll þessi verkefni verði tekin sem framkvæmdaverkefni inn á þá vegáætlun, sem nú er verið að undirbúa, og að í þau verði ráðist helst á þessu ári. Ég hef þá trú, að meiri hl. sé fyrir því á Alþingi að þetta verði gert. Ég treysti því, að hæstv. samgrh. í broddi fylkingar nýti sér þann meirihlutavilja Alþingis og að um þetta fjármagn verði séð sem fjármögnun á sérstökum verkefnum, en ekki tekið af hinu almenna vegafé.