17.03.1981
Sameinað þing: 61. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2925 í B-deild Alþingistíðinda. (3058)
233. mál, fjármagn til yfirbyggingar vega
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Hæstv. samgrh. hefur mestar áhyggjur af því, að það þurfi að athuga og rannsaka málin betur en gert hefur verið á s. l. áratug. Ég vil ekki gera lítið úr því, að málin séu rannsökuð og undirbúin, en ég hef sannfæringu fyrir því, að búið sé að athuga þessi mál þannig að þau liggi þannig fyrir að hægt sé þegar á þessu ári að hefja framkvæmdir.
Mér fannst engin ástæða til þess af hæstv. ráðh. að vera sérstaklega að láta þess getið hér, að við Vestfjarðaþm. hefðum ekki komið okkur saman um að láta Óshlíðina ganga á undan. (Sjútvrh.: Við erum sammála um að hún komi ekki á undan.) Já, að hún komi ekki á undan. Ég vil ekki mótmæla því sem hæstv. ráðh. segir. En þetta er ekkert höfuðatriði núna. Það er rétt að Steingrímsfjarðarheiði er eitt af þessum sérstöku verkefnum. En skoðun mín er sú og ég legg áherslu á það, að ekki eigi að setja þessa þrjá vegi, sem við höfum verið hér að ræða, í flokk sem við höfum hingað til kallað „hin sérstöku verkefni“, heldur eigi þessir þrír vegir og aðrir, sem væru þá hliðstæðir, að vera í forgangsflokki vegna þeirrar lífshættu sem fylgir umferðinni á þessum vegum.
Auðvitað er það rétt hjá hæstv. ráðh., að það er þýðingarmikið til þess að sinna þessum verkefnum að fá fjármagn til viðbótar við það sem veitt er til annarra þarfa í vegamálum. Auðvitað er rétt að það er þýðingarmikið. Ég sé ekki að það sé ástæða til að ganga út frá því á þessari stundu að ekki sé hægt að gera það. Ég veit ekki til þess að búið sé að afgreiða lánsfjáráætlun fyrir þetta ár. En ég segi: Jafnvel þó að ekki takist að fá viðbótarfjármagn í þessi sérstöku verkefni, þar sem lífshætta er á ferðinni, er þetta svo þýðingarmikið að taka á af því fjármagni, sem fyrir er til vegamála að óskiptu, en ekki úr hverju kjördæmi fyrir sig. Þannig er þetta mál svo þýðingarmikið, að hvernig sem við lítum á það eigum við að verja fjármagni til framkvæmda strax á þessu ári. Það er hægt að gera.