17.03.1981
Sameinað þing: 62. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2936 í B-deild Alþingistíðinda. (3072)

Umræður utan dagskrár

Birgir Ísl. Gunnarsson:

Herra forseti. Það er orðið æðilangt síðan þessar umr. hófust hér á hv. Alþingi og e. t. v. muna því ekki allir glögglega þau orð sem féllu þegar hæstv. forsrh. svaraði þeirri fsp. sem fyrir hann var lögð. Reyndar eru hér sumir nú sem ekki voru viðstaddir þann fund. En ég held að okkur öllum sem þá vorum hér inni, sé mjög minnistætt hvernig þessari fsp. var svarað. Hæstv. forsrh. kom hér upp og svaraði ekki þeirri fsp., hvort gerður hefði verið leynisamningur milli forustumanna stjórnarflokkanna eða einstakra ráðh. um varnarmál eða önnur mál.

Það var ekki svo, að við hv. þm. skildum ekki hæstv. forsrh., eins og hæstv. utanrrh. gefur til kynna. Ég held að við, allir þm. sem í þessum sal vorum, höfum fyllilega skilið hæstv. forsrh. Hann neitaði því ekki að slíkur samningur væri til. Hann játaði því reyndar ekki heldur. En það vakti líka athygli, að tveir hæstv. ráðh. komu nánast eins og sprellikarlar hér upp í stólinn, lásu greinilega fyrir fram samda yfirlýsingu, sem þó var ekki nema örfáar línur, þess efnis, að þeir hefðu ekkert um þetta mál að segja annað en það sem hæstv. forsrh. hefði sagt. Allir þeir, sem á þetta hlýddu, gátu ekki dregið aðra ályktun af þessum svörum en þá, að slíkur samningur væri til.

Hæstv. utanrrh. og hæstv. landbrh. hafa komið hér báðir upp og með nokkuð sérstöku orðalagi neitað því, að slíkir samningar væru til. Hæstv. utanrrh. segir að ekki sé fyrir hendi neitt sérstakt samkomulag um varnarliðs mál sem þrengi valdsvið utanrrh. í þeim málum. Hann bætir því við, að ríkisstj. sé ekki fjölskipað stjórnvald og hann hafi því valdið í þessu efni sem utanrrh. — og ég segi: sem betur fer. Ég átti satt að segja ekki von á að sá dagur kæmi að maður liti sérstöku vonarauga til hæstv. utanrrh. Ólafs Jóhannessonar, en ég geri það í þessu máli. Ég fagna því, að hæstv. utanrrh. virðist vera eini ráðh. í þessari ríkisstj. sem einhverja tilburði hefur uppi til þess að standa gegn Alþb. — a. m. k. í utanríkismálum og jafnvel í fleiri málum. Aðrir hæstv. ráðh. sýna litla eða enga tilburði í þá átt.

Ég minnist í þessu sambandi orða sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður þingflokks Alþb., viðhafði rétt um það bil sem verið var að mynda þessa ríkisstj. — sennilega nokkru eftir — og frá því var skýrt í Þjóðviljanum. Hann var að skýra fyrir sínu fólki í Alþb. þessa ríkisstj., tilurð hennar og tilgang. Hann viðhafði þau orð, að þessi ríkisstj. væri sérstaklega fýsileg vegna þess að þeir ráðh. úr Sjálfstfl., sem tæku sæti í henni, yrðu sem bandingjar innan ríkisstj. (ÓRG: Þetta hef ég aldrei sagt.) Þetta sagði Þjóðviljinn eftir Ólafi Ragnari Grímssyni. Ef þetta er ekki satt skal hann snúa sér til ritstjóra Þjóðviljans. (ÓRG: Ég skora á þm. að finna þessi um mæli í Þjóðviljanum.) En mér finnst að þarna hafi hv. þm. — aldrei þessu vant — ratast satt orð á munn. (ÓRG: Enda sagði ég þetta ekki.) Það kann vel að vera að menn telji það sé hafandi í flimtingum, og ég tek undir það, að þá sjaldan sagt er að hv. þm. segi satt komi í ljós að hans eigin mati að hann hafi ekki sagt það.

Fyrir mér er þetta ekki — og ég býst ekki við að svo sé fyrir mörgum þm. hér inni — neitt sérstakt gamanmál sem við erum hér að ræða um. Málið snýst um hvort það sé satt að einhverjir ráðh. úr ríkisstj., t. d. forustumenn þeirra flokka sem hér um ræðir, hafi gert með sér sérstakt leynisamkomulag sem eigi að tryggja Alþb., sem hefur ekki að baki sér nema 20% kjósenda, sérstakt neitunarvald í ákveðnum málum. Hæstv. utanrrh. og hæstv. landbrh. hafa neitað þessu. En það er alveg ljóst, að það er einhver sem segir ekki satt í þessu máli. Ég skal ekki leiða neinum getum að því hér hver það er.

Ég vitna í Þjóðviljann aftur og það er haft eftir hæstv. félmrh. 13. febr., þegar verið er að ræða um framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli. Þar segir hann, og vitnar í það ákvæði stjórnarsáttmálans sem ýmsir hafa vitnað hér í, að það sé skýlaust ákvæði í stjórnarsáttmálanum um framkvæmdir við flugstöðvarbygginguna. En síðan segir hæstv. ráðh.:

„Jafnframt skal lögð á það áhersla, að milli núverandi stjórnaraðila eru auk þess til reglur um vinnubrögð stjórnarinnar almennt sem allir verða að taka tillit til og snerta öll meiri háttar mál.

Í núverandi stjórnarsáttmála er flugstöðin nefnd ein framkvæmda vegna þess að þá var hún eina framkvæmdin sem á döfinni var í tengslum við herstöðina. Þess vegna var sú framkvæmd nefnd sérstaklega og í því ákvæði felst að hið sama hlýtur að gilda um aðrar meiri háttar framkvæmdir við herstöðina.“

Ég vek sérstaka athygli á þessu orðalagi, að hann talar um að það séu til reglur um vinnubrögð stjórnarinnar í þessu efni. Hvað eru reglur í hugum þeirra sem íslenskt mál tala og skilja? Reglur eru ákveðið form á samkomulagi eða ákvörðunum um hvernig haga beri sér undir tilteknum kringumstæðum. Það er þess vegna alveg ljóst að allur sannleikur þessa máls er ekki enn kominn fram. Hæstv. félmrh. segir annað en hæstv. utanrrh. og hæstv. landbrh. hafa sagt á þessum fundi.

Nú kann svo að vera, eins og látið hefur verið að liggja á þessum fundi af öðrum ræðumönnum, að þessar reglur eða samningur, hvaða orði sem við viljum kalla það, hafi ekki verið gerðar af öllum hæstv. ráðh. ríkisstj. og því síður af stuðningsmönnum hennar. Það kann vel að vera að þessar reglur eða samningur hafi einungis verið gerður af þremur hæstv. ráðh., þ. e. formönnum flokkanna, Alþb. og Framsfl., og hæstv. forsrh. (SighB: Lúðvík Jósepsson var formaður Alþb.) Ja, ég á við núverandi formann eða þá einhvern annan ráðh. Alþb. sem hefði verið meir í forsvari fyrir Alþb. þegar stjórnin var mynduð. — Úr þessu er ekki hægt að fá skorið nema með einu móti á þessum fundi, að hæstv. sjútvrh. form. Framsfl., komi í þennan ræðustól og lýsi því ótvírætt yfir, þannig að skiljist, að enginn slíkur samningur hafi verið gerður. Hann er eini hæstv. ráðh. hér inni nú sem getur staðið upp og lýst því yfir þannig að óyggjandi sé. Við þingmenn hljótum að gera þá kröfu til hæstv. ráðh. að hann komi hér upp og gefi skýlausar yfirlýsingar um þetta. Það gerði bann ekki þegar hann stóð í þessum ræðustól við fyrri hluta þessara umræðu.