17.03.1981
Sameinað þing: 62. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2942 í B-deild Alþingistíðinda. (3078)
Umræður utan dagskrár
Eggert Haukdal:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar undarlegu umræður, en það var beint til mín spurningum og ég mun vera sá eini hér í sal sem á ósvarað og því skal ég verða við beiðni hv. þm. Eyjólfs Konráðs og svara.
Fyrsta spurningin: Mér er ekki kunnugt um neitt samkomulag um þetta mál — svarið er því einfaldlega nei — og ég hafði engum heimilað neitt slíkt. Þar af leiðandi kemur aftur nei og enn nei. Það er ósköp einfalt mál. Um slíkt leyniplagg er ekki að ræða.
Það hefur komið hér fram hjá ýmsum hv. þm. sérstakt traust til ráðh. í þessari ríkisstj. og ég get sagt að maður ber misjafnt traust til ráðh., en að slíkt samkomulag, sem hér hefur verið rætt um, hafi verið gert eða eitthvert leyniplagg gert í ríkisstj. er ekki mér vitanlega, en að sjálfsögðu einhverjar starfsreglur. Þetta eru í raun og veru fáránlegar umræður og mál að linni.