17.03.1981
Sameinað þing: 62. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2943 í B-deild Alþingistíðinda. (3079)
Umræður utan dagskrár
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég tel mér skylt að taka hér til máls, vegna þess að ég hóf þessar umr. fyrir nokkrum vikum, og það er ekki úr vegi að ég rifji upp þær fsp. sem voru upphaf þessara umræðna.
Fyrri fsp. var svohljóðandi: Var gert samkomulag, skriflegt eða munnlegt, við myndun núv. ríkisstj. eða síðar um að framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli eða í þágu varnarliðsins yrðu ekki leyfðar nema með samþykki allra aðila er að ríkisstj. standa?
Og 2. fsp.: Eru til reglur, sem ríkisstj. eða ráðherrar hafa sett sér og ekki hafa verið birtar, um að ríkisstj. taki enga ákvörðun í meiri háttar málum nema allir stjórnaraðilar samþykki? — Þannig hljóðuðu þessar tvær fsp.
Á fundinum fyrir nokkrum vikum svaraði hæstv. forsrh. þessum fsp. og hæstv. félmrh. og hæstv. sjútvrh. sömuleiðis, en til þeirra var fsp. beint, þannig að menn voru jafnnær eftir sem áður. Framhald þessara umræðna í dag hefur hins vegar leitt í ljós svar við fyrri fsp., að það var ekki gert samkomulag við myndun núv. ríkisstj. eða síðar um að framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli eða í þágu varnarliðsins yrðu ekki leyfðar nema með samþykki allra aðila er að ríkisstj. standa. Ég skil þannig svar hæstv. utanrrh. og hæstv. landbrh. og raunar það sem hæstv. sjútvrh. sagði. Það svar hefði getað legið fyrir á fundinum fyrir nokkrum vikum og hefði sparað okkur nokkurn tíma í þessum framhaldsumræðum. Ég vil sérstaklega þakka þessum ráðh. þó fyrir að segja svo mikið á þessum fundi.
Hins vegar er ljóst að ekki hefur verið svarað nægilega greinilega annarri fsp., hvort til væru reglur, sem ríkisstj. eða ráðh. hafa sett sér og ekki hafa verið virtar, um að ríkisstj. taki enga ákvörðun í meiri háttar málum nema allir stjórnaraðilar samþykki. Og þó — þessari fsp. hefur í raun verið svarað. Hæstv. sjútvrh. segir að ríkisstj. hafi sett sér reglur, allar ríkisstjórnir setji sér starfsreglur. Ég held að það þurfi nánari skýringa við, hvað átt sé við með þessu.
Hæstv. utanrrh. nefndi það sérstaklega að ríkisstj, væri ekki fjölskipað stjórnvald. Ef þessar reglur eru t. d. á þann veg, sem önnur spurning mín gaf í skyn, að ríkisstj. taki enga ákvörðun í meiri háttar málum nema allir stjórnaraðilar samþykki, þá er auðvitað að þessi samþykkt og þessar starfsreglur taka til utanríkismála sem annarra mála. Ef ég ætti að reyna að greina þarna frekar loðin ummæli og svör ráðh. gæti ég reynt að aðstoða þá við svörin og segja sem svo, að þetta gilti eingöngu um þau mál sem væru borin upp í ríkisstj., en þetta gilti ekki um þau mál sem væru á valdi hvers ráðh. Þá er það ljóst að mínu mati, að utanrrh. hefur fullt vald til að samþykkja hvaða framkvæmdir á vegum varnarliðsins eða í þágu varna og öryggis Íslands sem hann telur rétt að heimila án þess að hafa samráð um það í ríkisstj. eða við aðra ráðh.
Hér kemur mér í hug eitt dæmi sem rætt hefur verið á Alþingi, þ. e. bygging eldsneytisgeyma fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. Það urðu að vísu nokkur blaðaskrif um það, hvort hér væri um mál að ræða, .sem hæstv. utanrrh. réði einn, eða hvort hér væri um mál að ræða, sem ríkisstj. öll þyrfti að fjalla um. Ég minnist þess, að hæstv. utanrrh. kvað upp úr um þetta og sagði að þetta væri mál sem hann hefði einn vald til að ákveða. Ég man eftir því, að hæstv. forsrh. sagði opinberlega í blaðaviðtali að auðvitað væri þetta mál sem ríkisstj. mundi öll fjalla um. Þarna höfum við mál í hnotskurn sem getur í raun og veru skorið úr um hvort slíkar reglur eru til sem ástæða er til að ætla, og tilefni til að ætla að um leynisamning sé að ræða.
Hæstv. forseti sagði í svari sínu að það skipti e. t. v. ekki miklu máli hvort um slíkt samkomulag væri að ræða í þessari ríkisstj. eða ekki, ef ég hef skilið hann rétt, þar sem ríkisstj. styddist við svo nauman meiri hluta á Alþingi að ef einhver ráðherranna eða stjórnaraðilanna sætti sig ekki við afgreiðslu mála í ríkisstj. hefði hún ekki þingmeirihluta. Þetta er e. t. v. satt og rétt út af fyrir sig. En það er mjög mikill munur á því, hvort sá ráðh. eða sá stjórnaraðili, sem ekki sættir sig við framgang mála, þarf að segja af sér og rjúfa stjórnarsamvinnuna til að koma í veg fyrir framgang máls eða hvort hann getur setið áfram í ríkisstj, og samt sem áður náð þeim tilgangi sínum að mál það, sem hann er andvígur, nái ekki fram að ganga. Þingræðisreglunni er í raun og veru snúið við. Það eru þeir, sem vilja fá mál fram, sem verða að sætta sig við að það nái ekki fram. En það eru hinir, sem vilja stöðva mál, sem geta gert það með einu orði í ríkisstj. án þess jafnvel að málið sé borið undir þing. Á þessu er greinilegur munur og þar af leiðandi er það skoðun mín að slíkar starfsreglur, ef til eru, að meiri háttar mál verði ekki afgreidd í ríkisstj. og þá e. t. v. ekki borin upp á Alþingi, séu þess eðlis að brjóti í bága við þingræðisreglur.
Ég vil ítreka það, að hæstv. sjútvrh. hefur í blöðum sagt að það hefði ekki verið gert neitt samkomulag til hliðar við stjórnarsáttmálann um að öll ríkisstj. yrði að standa að þeim málum sem hún ynni að. Hins vegar voru hér fyrr í umræðunum rifjuð upp ummæli Svavars Gestssonar í Þjóðviljanum: „Jafnframt skal lögð á það áhersla, að milli núverandi stjórnaraðila eru auk þess til reglur um vinnubrögð stjórnarinnar almennt sem allir verða að taka tillit til og snerta öll meiri háttar mál.“ Þessar tvær yfirlýsingar fá ekki staðist samhliða.
Það vekur auðvitað mjög mikla athygli í þessum umræðum, að þeim var að ljúka nú rétt áðan án þess að neinn Alþb.-maður kveddi sér hljóðs. Hæstv. félmrh., formaður Alþb., hefur setið þegjandi undir þessum umr. Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður þingflokks Alþb., hefur ekki séð ástæðu til að kveðja sér hljóðs. (StJ: Hann hefur kallað fram í.) Hvað skyldi þögn þeirra merkja? Auðvitað átti tilvitnun þeirra í mögulegt leynisamkomulag eða starfsreglur um vinnubrögð stjórnarinnar almennt, sem allir verða að taka tillit til og snerta öll meiri háttar mál, að sannfæra Alþb.-menn um að ráðherrar þeirra hefðu stöðvunarvald t. d. hvað snertir varnarframkvæmdir. Það átti að stinga því snuði upp í svokallaða herstöðvaandstæðinga til að fá þá til að sætta sig við veru Alþb. í ríkisstj. þótt Alþb. hefði runnið af hólmi með stefnu sína í utanríkismálum.
Það er ljóst að meðan fulltrúar Alþb., hæstv. félmrh. og formaður Alþb. og formaður þingflokks Alþb., upplýsa ekki að þessar starfsreglur hafi í för með sér neitunarvald Alþb. um varnarframkvæmdir geta þeir auðvitað ekki borið þetta samkomulag eða þessar starfsreglur fyrir sig og á meðan getur hæstv. utanrrh. farið sínu fram og veitt leyfi fyrir þeim framkvæmdum sem hann telur eðlilegar og sjálfsagðar hvað snertir öryggi landsins. Skiptir þá engu máli þótt hæstv. forsrh. segi að ríkisstj. öll þurfi um málin að fjalla nema að því leyti sem til úrskurðar hans kæmi varðandi verksvið og starfsskiptingu ráðherra. Hæstv. utanrrh. hefur gefið yfirlýsingu á þessum fundi um að hann áskilji sér allan rétt og geri þann fyrirvara, að ef sá mögulegi úrskurður hæstv. forsrh. falli honum ekki í geð muni hann að sjálfsögðu taka til endurskoðunar hvort hann kæri sig um að starfa áfram í ríkisstj.
Það hefur þó, þrátt fyrir véfrétt hæstv. forsrh. og hæstv. félmrh. og hæstv. sjútvrh. fyrir nokkrum vikum, áunnist með þessum framhaldsumræðum, að það er upplýst að samkomulag er fyrir hendi. Það hefur verið gert samkomulag í fyrsta lagi um notkun þingrofsréttarins og það hafa sömuleiðis, að því er ég fæ best skilið, verið settar starfsreglur, en ekki hefur fengist upplýst nákvæmlega í hverju þessar starfsreglur eru fólgnar.
Hæstv. sjútvrh. sagði, og ég hélt fyrst að mér hefði misheyrst, að það væri ekki venja að ræða um utanríkismál í ríkisstjórnum. (Sjútvrh.: Það var utanrrh. sem sagði það.) Hvað? (Sjútvrh.: Hann sagði að það væri ekki venja.) Og er hæstv. sjútvrh. sammála því? (Sjútvrh.: Utanrrh. þekkir það miklu betur en ég. Ég endurtók það sem hann sagði.) Ég held að hæstv. sjútvrh. hafi talað um að í þeim tveim ríkisstj., sem hann hefði starfað í, hefði hann komist að þeirri niðurstöðu að almennt væri ekki talað um utanríkismál. Ég tók að vísu ekki eftir ummælum hæstv. utanrrh. (Utanrrh.: Varnarliðsmál.) Hæstv. utanrrh. grípur fram í og segir „varnarliðsmál“. Þá vildi ég minna hæstv. utanrrh. á það, að við sátum saman í fjögur ár í ríkisstj. og þar var rætt um málefni varnarliðsins og utanríkismál eins og hver önnur mál. Þá er kannske skýringin fengin á þeim ummælum sem hér hafa verið viðhöfð: Það er ekki talað um utanríkismál í ríkisstjórnum sem Alþb. á sæti í. — Þannig á það auðvitað að vera. Alþb. á að vera áhrifalaust um utanríkismál og varnarmál og öryggismál Íslands. Það er mjög til fyrirmyndar. En það, sem setur ugg að manni í þessum efnum, eru ummæli hæstv. forsrh. að ætla að taka einstakar varnarframkvæmdir til umræðu í ríkisstj. þar sem Alþb. á sæti.
Að fengnum þessum upplýsingum er það alveg ljóst, að Alþb.-menn geta sagt herstöðvaandstæðingum hvað sem þeir vilja, en þeir geta ekki dulið þá eða kjósendur sína þess, að þeir hafa hopað af hólmi varðandi utanríkisstefnu sína. En ég ítreka og endurtek að það verður fylgst mjög náið með þróun mála. (Gripið fram í.) Hv. þm. getur fengið orðið, ég er viss um það. Hæstv. forseti hefur ekki sett í málbann þennan þm. sem þorir ekki að koma í ræðustól og er að reyna að grípa fram í fyrir ræðumönnum. Ég vænti þess, að hæstv. forseti slái í bjölluna til að þagga niður í hv. þm. meðan hann þorir ekki í ræðustól. Hins vegar er ég því mjög meðmæltur að hv. þm. fái eins langan ræðutíma hér í ræðustól og hann vill.
Ég held að það sé fram komið að starfsreglur hafa verið settar. Spurningin er hins vegar, hvert er efni þessara starfsreglna. Meðan það er ekki upplýst getur Alþb. ekki borið þær fyrir sig og ekki stöðvað nauðsynlegar framkvæmdir í þágu öryggis og varna Íslands. Hitt hlýt ég og að átelja, ef þær starfsreglur eru svo víðtækar að taki til allra meiri háttar málefna, vegna þess að þá tel ég að þingræðisvenjur og reglur séu brotnar með þeim hætti að lýðræðisflokkum sé ekki sæmandi, hvað sem má segja um Alþb.