18.03.1981
Sameinað þing: 63. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2952 í B-deild Alþingistíðinda. (3090)
125. mál, tilraunageymir til veiðarfærarannsókna
Flm. (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Það verður að teljast í meira lagi andkannalegt, að við Íslendingar, sem höfum okkar lífsviðurværi að stórum hluta af sjávarútvegi, skulum ekki fyrir löngu vera búnir að koma upp veiðarfæratilraunatanki, þar sem margsannað er notagildi hans og sparnaður fyrir þá sem í þessum atvinnuvegi standa, og það er satt að segja ótrúlegt, að ekki megi fá einhvers staðar fé til þess að reisa slíkan tank sem kostar lítið eða ekkert meira en lúxuseinbýlishús nú á dögum. M. a. vegna þessa höfum við fjórir þm., einn úr hverjum flokki, leyft okkur að flytja það mál sem hér er til umr., till. til þál. um tilraunageymi til veiðarfærarannsókna. Till. hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta kanna í samráði við Fiskifélag Íslands og Hafrannsóknastofnunina möguleika þess, að hér á landi verði komið upp tilraunageymi til veiðarfærarannsókna. Skal könnun þessi m. a. beinast að stofn- og rekstrarkostnaði slíkrar rannsóknarstarfsemi, hugsanlegri þátttöku hagsmunaaðila þar að og að stjórnun og staðsetningu slíkrar rannsóknarstarfsemi.“
Eins og kemur fram í grg. er þetta ekki nýtt mál hjá okkar nágrannaþjóðum og fleiri fiskveiðiþjóðum. Þetta tæki hefur lengi þekkst og verið mikið notað í nágrannalöndum okkar um langt árabil. Þessir tankar eru af ýmsum stærðum og gerðum og að sama skapi er verð þeirra mismunandi. Meira að segja er svona tilraunatankur nú kominn upp í Færeyjum. Er þar sama sagan og á mörgum öðrum sviðum í okkar sjávarútvegsmálum, að þeir frændur eru að skjóta okkur ref fyrir rass. En Japanir eru líklega komnir lengst á þessu sviði og hafa lengsta þróun að baki í notkun slíks búnaðar, enda kom þar mjög fljótt í ljós að ótrúlega margir aðilar töldu sig hafa not af slíkum tönkum. Það voru veiðarfæraframleiðendur, þar voru útgerðarmenn, það voru fiskimenn og skipstjórnarmenn ásamt vísinda- og rannsóknarmönnum úr hinum ýmsu greinum, sem að sjávarútvegi koma, sem töldust til þessa hóps.
Þegar ég las sjálfur fyrst um þetta mál og reyndar skoðaði einn slíkan tank nokkru síðar var ég ekki í nokkrum vafa um — og það var kveikjan í mínum huga að flutningi þessarar till. — að hve miklu gagni slíkt gæti orðið fyrir skipstjórnarmenn okkar í fiskveiðiflotanum. Ég er ekki í nokkrum vafa um að slíkur tilraunatankur, sem staðsettur væri í nágrenni stærsta stýrimannskóla landsins, Stýrimannaskólans í Reykjavik, mundi gera ótrúlega mikið gagn, þegar þess er einnig gætt, að hér á þessu svæði eru stærstu veiðarfæraframleiðendur okkar og hér er líka settur saman stór hluti innfluttra veiðarfæra: Og hér eru enn fremur þær rannsóknastofnanir vísindamanna sem láta sig þessi mál skipta.
Skipstjórnarmenn hafa í mörg ár skrifað um nauðsyn þess að slíkum tilraunatanki væri komið hér upp, og reyndar hafa útgerðarmenn gert það líka. Og nú hin síðari ár, eftir að menn fóru að sérmennta sig í þessari grein, hafa þeir haft orð á og skrifað um að nauðsyn væri á því, að þessu tæki yrði komið upp hér á landi. Sem fskj. með þáltill. okkar eru birt „Nokkur orð um notagildi vatnsflæðistanka til tilrauna og athugana á veiðarfærum“, skrifuð af Jónasi Hallgrímssyni veiðarfæraverkfræðingi sem nýkominn er frá slíku námi austur í Japan. Sá, sem mesta reynslu hefur hér á landi og er menntaður í slíkum greinum, er ábyggilega Guðni Þorsteinsson fiskifræðingur sem hefur fengist við margs konar rannsóknir á veiðarfærum okkar og tilraunir með þau.
Það er athyglisvert, að nú fyrir skömmu efndi stærsti veiðarfæraframleiðandi okkar til sérstakrar ráðstefnu þar sem hagsmunaaðilar komu saman og ræddu um veiðarfæraframleiðslu hér heima. Þar kom að sjálfsögðu upp þetta mál um tilraunatank fyrir veiðarfæri. Ég skal ekki rekja þær umræður allar sem þar urðu, en þar var bent á mörg þýðingarmikil atriði sem sjálfsagt verður að ræða í þeirri nefnd sem fær málið til meðferðar. Við flm. teljum að affarasælast verði að þetta verði í höndum fárra aðila, að það verði Fiskifélagið og Hafrannsóknastofnunin sem sjái um þessa könnun. Síðan geta að sjálfsögðu bæst við fleiri aðilar í sambandi við stjórnun þessarar stofnunar eða fyrirtækis. Við höfum ekki gert neinar ákveðnar tillögur, hvorki um fjármögnun né annað til þess að koma tankinum upp eða um framtíðarrekstur hans. Það geta að sjálfsögðu margir hagsmunaaðilar komið þar við sögu. Persónulega álít ég ekki neitt því til fyrirstöðu, að til að fjármagna uppsetningu þessa þýðingarmikla tækis væri farin skyld leið og farin var á sínum tíma þegar sjávarútvegurinn sjálfur fjármagnaði byggingu rannsóknarskipanna okkar sem við þurfum sjálfsagt að fara að endurnýja hvað úr hverju. Ég mundi ekki telja það neina goðgá þótt leitað væri eftir því við hagsmunasamtökin, sem eiga þar óneitanlega hagsmuna að gæta, að sú leið yrði farin. Ef vel tekst til með uppsetningu slíks tanks — og ég er hlynntur því að ekki sé verið að fara ódýrustu leið, heldur eigum, við, ef við förum út í þetta, að koma upp vönduðu tæki — þá veit ég að slíkt tæki á eftir að skila sjávarútvegi okkar og um leið þjóðarbúinu ómældum verðmætum í framtíðinni.
Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri, herra forseti. Ég legg til að þegar að lokinni þessari umr. verði henni frestað og málinu vísað til atvmn.