18.03.1981
Sameinað þing: 63. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2953 í B-deild Alþingistíðinda. (3091)

125. mál, tilraunageymir til veiðarfærarannsókna

Tryggvi Gunnarsson:

Herra forseti. Ég get ekki annað en lýst mikilli ánægju minni yfir þessari till. Mér sýnist þar sem flm. eru úr öllum flokkum eins og hv. þm. Pétur Sigurðsson tók fram, muni tillagan eiga nokkuð greiðan gang hér í gegnum Alþingi. Vænti ég þess þá um leið, að henni verði fylgt eftir með hæfilegu fjármagni til að koma þessu fram.

Ég hef litlu við að bæta ágæta ræðu hv. frsm. Hann drap á flest þau atriði sem ég vildi sagt hafa, en ég undirstrika gildi þessa. Við höfum haft tilraunir hér, búnir að vera lengi með tilraunir, og við höfum haft hafið sjálft sem tilraunatank. Það er nefndur hér flæðigeymir í grg. Við myndum flæði með því að keyra skipin og fá þannig straum. Þessar tilraunir hafa verið gerðar á hverju einasta skipi næstum því. Þær eru búnar að kosta ótalda tugi millj. gkr. á skip. Þetta er það sem við erum að leika okkur að á sjónum, þess vegna er einmitt afbragð og mjög gott að fá svona tank á einn stað. Þá hættum við hreinlega við þessar tilraunir sem sáralítið gagn hefur verið að, því miður, þó að við séum að reyna að leita þess betra sem eðlilegt er. Við erum alltaf að leita og það stefnir náttúrlega fram, það er ekki hægt að banna okkur þetta. En eins og hv. frsm., Pétur Sigurðsson, sagði, þá erum við orðnir langt á eftir öðrum þjóðum hvað þetta varðar. Við erum orðnir svo aftarlega á merinni, að það gerði ekkert til þótt við færðum okkur örlítið framar í hnakknum og færum að nálgast a. m. k. Færeyinga. Það gerði ekkert til.

Ég held að ég þurfi ekki að hafa þessi orð fleiri. Ég vona og ég skil þetta þannig, að þar sem þessir fjórir ágætu menn úr öllum flokkum standa að tillögunni sé meiningin að fylgja þessu fram með fjármunum.

Hv. frsm. talaði um að hafa þarna góðan tank, og vissulega þurfum við þess. Það eru til margar gerðir. Ég er ekkert frekar fylgjandi því, að við förum í stærstu og dýrustu gerð. Ég held að við ættum að fara að ráðum sérfræðinga okkar. Við eigum sérfræðinga, netagerðarmenn og aðra, á þessu sviði, og ég held að við eigum að taka það sem okkur hæfir.

Að lokum langar mig til að segja það í sambandi við þessar tilraunir sem ég minntist á að við höfum gert, ég vona að þeim verði þá aflétt, við hættum þessu og getum gert tilraunir sem við sjáum árangurinn af.

Frsm. minntist aðeins á fjármögnun. Auðvitað er rétt að láta þá aðila, sem mest gagn hafa af þessu, fjármagna þetta, þ. e. útgerðir, veiðarfæragerðir og fiskimennina sjálfa, en því miður held ég að hagur þeirra standi ekki til slíks eins og er. En ég ætla ekki að hætta mér í þá umræðu.