18.03.1981
Sameinað þing: 63. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2959 í B-deild Alþingistíðinda. (3098)

256. mál, vegarstæði milli Vopnafjarðar og Fljótsdalshéraðs

Flm. (Tryggvi Gunnarsson):

Herra forseti. Ég vil þakka undirtektir sem þessi till. mín hefur fengið. Þau skipti, sem ég hef setið hér á Alþingi, hefur flm. venjulega talað einn og það verið látið gott heita.

En í sambandi við það sem hæstv. ráðh. sagði, að þetta væri sérverkefni, þá held ég að tillaga mín mundi einmitt falla undir það. Á sínum tíma var hringvegurinn, sem kallaður er svo, sérverkefni, en hann stendur alls ekki undir nafni eins og er, hringvegurinn. Hringur er hringur, en þarna er ekki um hring að ræða þegar allt Norðausturlandið er eftir. Við getum tekið þetta sem sérverkefni í framhaldi af hringveginum. Og það er rétt sem hv. þm. Sveinn lónsson sagði, að það er náttúrlega ekki minni þörf fyrir veginn úr báðum áttum. Vegir liggja til allra átta. Það er ekki minni þörf kannske frá hinni hliðinni að fá þessa samgöngubót. En ég vil sérstaklega út af því, sem hæstv. ráðh. sagði, benda á að þetta gæti fallið undir sérverkefni. Það er minn skilningur.