18.03.1981
Sameinað þing: 63. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2959 í B-deild Alþingistíðinda. (3099)
256. mál, vegarstæði milli Vopnafjarðar og Fljótsdalshéraðs
Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Ég vil láta það koma fram, að ég er síður en svo að mæla gegn þessum vegi. Þó mér hafi tekist að fara hann, þá er ekki víst að hann sé nægilega góður. En það, sem ég var að segja, var að litið hefur verið á það sem verkefni þm. að ákveða hvaða vegi eigi að velja í einstökum kjördæmum. Það gildir líka um sérverkefni. Nýbyggingar falla í þrjá flokka, eins og ég rakti áðan: stofnbrautir, þjóðbrautir og sérverkefni, og þm. raða sjálfir niður verkefnum, svo ég verð að segja eins og er, að ég held að þessi till. eigi fyrst og fremst erindi til þm. kjördæmisins. Ég held að þeir hljóti að vera færastir að dæma um í hvaða forgangsröð þeir vilja velja verkefnin.
Ég er á engan máta að draga úr þessu verkefni. Það er rétt að mikil þörf er á samgöngubót vegna hafíss og fleira á þessu svæði — áreiðanlega mjög þarft verkefni. En ég endurtek að ef till. verður samþykkt verður henni vitanlega komið á framfæri við Vegagerðina. Ekkert sérstakt fjármagn er í svona vegi. Einstöku sinnum hefur það gerst, eins og með hafísvegi, að þessi sérstöku verkefni eru tekin út úr vegáætlun, en til vandræða yfirleitt. Maður veit aldrei hvenær þeim lýkur og hvaða nýtt verkefni tekur við. Það hefur verið stefna Alþingis að ná sem flestum af þessum sérverkefnum undir vegáætlun. Ég endurtek því að ég held að þetta eigi fyrst og fremst erindi hjá þm., en vil undirstrika það, að ég er síður en svo á móti þessari vegagerð sem slíkri.