18.03.1981
Sameinað þing: 63. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2963 í B-deild Alþingistíðinda. (3104)

256. mál, vegarstæði milli Vopnafjarðar og Fljótsdalshéraðs

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Í hið fyrra sinnið vék ég að afstöðu þm. Austf. á sínum tíma sem tóku ekki ákaflega hressilega undir hugmyndina um hafísveginn. En ég verð, fyrst ég er kominn hingað upp aftur, aðeins að rétta af minni nafna míns, hv. þm. Stefáns Valgeirssonar. Ferðalag það, sem hann talaði um á vegum hafísnefndarinnar, var farið eftir að samþykkt hafði verið í ríkisstj. till. um byggingu hafísvegar á þessu svæði. Sú hugmynd kom fyrst upp í svonefndri hafísnefnd þar sem við nafni minn sátum báðir. Og ég vil kalla til vitni, sem að vísu eru ekki hérna núna, en munu verða til þess fáanleg að votta að það var undirritaður sem bar uppástunguna fram í hafísnefndinni á sínum tíma, en ætlar alls ekki að eigna sér þessa hugmynd þar fyrir. Hún varð til með allt öðrum hætti í ágætu samstarfi þeirra manna sem skipaðir voru í þessa svonefndu hafísnefnd, þar sem enginn — merkilegt nokk og sjaldgæft — gerði neina tilraun til þess að eigna sér prívat og persónulega heiður af því máli. Þess vegna hygg ég að það hafi verið sem fjárveiting fékkst til lagningar hafísvegarins og þeim þm., sem sátu í þessari nefnd, auðnaðist að gera lýðum ljóst hver þörf væri fyrir þennan veg.

Ég tek undir það sem hv. þm. Stefán Valgeirsson sagði, nauðsyn þess að ljúka þessari vegagerð sem er allt annars eðlis í þörf sinni heldur en vegagerð á landi hér almennt, vegna þess að það er sannarlega rétt, sem hv. þm. sagði, að hér er um það að ræða að tryggja flutninga á nauðsynjum við hin verstu vetrarskilyrði og þó e. t. v. enn þá fremur þegar loksins hlánar eftir hafísvetur og hafísvor og vegirnir komast ella í þess háttar ástand að ekki þoll neitt farartæki.

Eins og hv. þm. Halldór Blöndal sagði fengust ekki verðbætur á fjárveitingar til hafísvegarins nú síðast. Það er útlit fyrir að endanlegur frágangur þessa vegar muni dragast á langinn. Við skulum vona að það beri nú ekki svo til að við finnum fyrir því á þessu vori að betur hefði þessari vegargerð verið flýtt. Með því getum við reiknað alveg fastlega, að áður en þessi áratugur er á enda munum við þurfa á því að halda að hafa þarna vetrarfæran veg til þess að flytja varning á milli hafna.