18.03.1981
Sameinað þing: 63. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2967 í B-deild Alþingistíðinda. (3108)
140. mál, árangur nemenda í grunnskólum og framhaldsskólum
Menntmrh. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Þessi till., sem hér er til umr., snertir mjög mikilvægt málefni sem nauðsynlegt er og sjálfsagt að ræða. Ég vil gjarnan segja um hana nokkur orð og tala þá að sjálfsögðu eins og þetta mál blasir við mér.
Það er rétt, sem fram kom hjá hv. frsm. fyrir þessari till. og flm., að mjög miklar breytingar hafa orðið á ýmsu í skólakerfinu síðustu ár — og reyndar má segja síðustu áratugi. Hv. flm. ræddi um að þessar öru breytingar hefðu orðið nú allra síðustu árin, 4–5 árin, en óhætt er að segja að aðdragandinn að þessum breytingum sé miklu lengri. Breytingarnar á skólakerfinu hafa tekið yfir alllangan tíma, má segja áratugi, sérstaklega á sjöunda áratugnum, þar sem þessar breytingar byrja fyrir alvöru eftir 1960. Það er því alveg ljóst að skólakerfið hefur stækkað mjög mikið, það hefur beinlínis þanist út, eins og sumir vilja orða það. Slíkt orðalag er kannske stundum notað af því að þá felst í því einhvers konar efasemd eða tortryggni gagnvart þessum miklu breytingum. Og ég ætla ekki að lá neinum þó að hann kunni að hafa efasemdir um ágæti allt of örra breytinga á skólakerfinu. Ég held að full ástæða sé til þess að fylgjast með slíkum breytingum og gera það með opnum huga og vissulega með gagnrýni.
En jafnframt vil ég taka það fram, að ég sé enga ástæðu til þess að vera um of gagnrýninn á þetta eða allt of svartsýnn þó að skólakerfið taki stakkaskiptum, þó að það breytist eins og annað á svo hraðfleygum breytingatímum sem við lifum nú og höfum lifað síðustu ár og áratugi. Auk þess er ég efins um að rétt sé að kalla þessar breytingar byltingu, eins og sumir taka sér nú reyndar í munn, því að þrátt fyrir allt er þróunin í skólamálum á þessari öld alveg samfelld og auðvelt að rekja hana allt frá því að dr. Guðmundur Finnbogason, uppeldis- og sálfræðingur þeirrar tíðar, lagði á ráðin um setningu fræðslulaganna frá 1907. En að því verki vann dr. Guðmundur Finnbogason í mörg ár, skrifaði um það bækur og skýrslur og um skólamál yfirleitt og vann að öllu leyti mjög fagmannlega að þessu verki á meðan það stóð. Fræðslulögin frá 1907 voru bylting á sinni tíð. Síðan má segja að allt okkar skólakerfi hafi byggst á þessum grunni og tekið breytingum, má segja, á grundvelli laganna frá 1907.
En það er satt, að breytingar á skólakerfinu hafa orðið ákaflega miklar á síðustu 12–15 árum og við erum óneitanlega enn þá í þessari breytingadeiglu, breytingatíminn stendur enn þá yfir. Og sú till. sem hér er til umr., sýnir það, að flm. gera sér ljóst að það er að mörgu að hyggja þegar örar breytingar ganga yfir skólakerfið, og ég er þeim sammála um það.
Ég vil sérstaklega taka undir þá meginhugmynd sem mér virðist búa að baki þessari till., og það er nauðsynin á því að fylgjast stöðugt með starfi skólanna, ekki síst nýjungum, og meta þetta starf og þessar nýjungar og hafa niðurstöðurnar til viðmiðunar þegar taka þarf ákvarðanir um starfshætti einstakra skóla eða ákvarðanir um skólamál á breiðum grundvelli, t. d. í rn. eða á öðrum stöðum þar sem ráðum er ráðið í skólamálum.
Ég sé að í grg. fyrir till. er bent á fimm atriði, sem æskilegt væri að kanna, og ég ætla að víkja hér nokkrum orðum sérstaklega að þeim sérstöku atriðum sem þar eru nefnd.
Þar er þá fyrst til að taka þekkingu nemenda á íslenskri tungu. Þetta er mjög mikilsvert atriði. En sannleikurinn er sá, að könnun á þekkingu nemenda á íslenskri tungu með samanburði við þekkingu nemenda á sama skólastigi fyrr á árum er mjög miklum vandkvæðum bundin. Ástæðurnar eru m. a. þær, eins og kom reyndar fram í máli hv. flm. áðan, að námsefni í íslensku hefur breyst og önnur áhersla er nú lögð á einstaka þætti í móðurmálsnáminu heldur en áður var að ýmsu leyti. Þá má líka benda á það sem málfræðingar kalla „málumhverfi“ nemenda. Það hefur breyst mjög mikið á síðari árum í breyttu þjóðfélagi, ekki síst eftir að útivinna húsmæðra varð jafnalgeng og raun ber vitni og þjóðfélagið allt hefur reyndar gerbreyst. Þetta hefur leitt til þess, að nemendur umgangast aðallega jafnaldra sína og læra þá málið hver af öðrum, en minna af fullorðna fólkinu miðað við það sem áður var, ekki síst í okkar gamla sveitaþjóðfélagi þar sem allt fólk, á hvaða aldri sem var, var samvistum allan daginn og vann mikið til saman og hafði mjög náin samskipti frá morgni til kvölds.
Í grg. með till. er bent á að æskilegt hefði verið að hafa staðlað próf í nokkrum mikilvægum greinum áður en grundvallarbreytingar voru gerðar á skólakerfinu svo að síðar mætti halda sams konar próf til samanburðar. Ég hef borið þetta undir menn sem vel þekkja til skólakerfisins. Hér verður náttúrlega að hafa það í huga, að notkun slíkra prófa til samanburðar á árangri nemenda yfir lengri tíma krefst þess, að námsefnið breytist ekki svo umtalsvert sé og að alltaf sé lögð sama áhersla á einstaka þætti námsefnisins og að málumhverfi nemandans sé svipað. Á svo miklum umbrotatímum sem hér hafa ríkt að undanförnu á öllum sviðum er langt frá því að unnt sé að fullnægja þessum skilyrðum. Á öllum tímum hefur eitt af markmiðum íslenskukennslunnar verið að kenna nemendum að tjá sig sæmilega í töluðu og rituðu máli. Ég vil fullyrða að það sé enn markmiðið með íslensku kennslunni. Kennurum á öllum tímum hefur gengið misjafnlega að ná þessu markmiði, og það hefur lengi verið kvartað undan því, að þegar menn útskrifast úr skóla séu þeir hvorki talandi né skrifandi. Ég tók hérna með mér svolítinn kafla úr bók sem mig langar, með leyfi hæstv. forseta, að vísa til og lesa upp úr. Þessi kafli, sem ég er með ljósrit af, er úr bók eftir Baldur Jónsson sem heitir „Mályrkja Guðmundar Finnbogasonar“. Hann sýnir vel hvernig menn hafa löngum haft efasemdir uppi varðandi árangur af íslenskukennslu sérstaklega. En þannig segir í þessari bók:
Árið 1919 samþykkti þingið (þ. e. Alþingi) að skora „á stjórnina að gera þær breytingar á reglugerð menntaskólans, sem nauðsynlegar þættu að undangenginni rannsókn. Þessi þingsályktun varð til þess, að 12. mars 1920 voru þeir prófessorarnir Guðmundur Finnbogason og séra Sigurður P. Sívertsen til þess kvaddir að sitja í menntamálanefnd stjórninni til aðstoðar við endurskoðun fræðslumála. Nefndin skilaði viðamiklum tillögum og álitsgerðum, sem prentaðar voru í fernu lagi sem Menntamálanefndarálit 1–4 (Reykjavík 1921–22).
Ekki er ástæða til að rekja efni þessara álitsgerða hér,“ segir Baldur Jónsson. „Þó er ekki úr vegi að segja nokkuð frá því, sem fram kemur um árangur íslenskukennslunnar í menntaskólanum í fyrsta hefti álitsins, og má geta þess um leið, að í þessu hefti koma ýmis orð fyrir í fyrsta skipti, einkum nýyrði á stærðfræðilega sviðinu. Menntamálanefndarálit 1 kemur því einnig við sögu síðar í þessu riti,“ heldur Baldur Jónsson áfram.
„Nefndarálitið um menntaskólann er undirritað 20. október 1920, alls 64 bls. með titilsíðu og fylgiskjölum, svo að ljóst er, að þeir félagar hafa látið hendur standa fram úr ermum. Fyrsta verk þeirra var að kanna prófskýrslur skólans og skýrslur um frammistöðu stúdenta hans á embættisprófum háskólans. Enn fremur sendi nefndin háskólakennurum í öllum deildum fyrirspurnir, sem síðar verður getið,“ segir hér í bókinni. „Og loks kynntu nefndarmenn sér fyrirkomulag sams konar skóla í öðrum löndum, einkum Norðurlöndum,“ og er þar vísað til Menntamálanefndarálits 1, bls. 3.
„Þegar þeir félagar höfðu kynnt sér árangurinn af starfi menntaskólans á undanförnum árum, komust þeir að þeirri niðurstöðu, að skiptinguna í gagnfræðadeild og lærdómsdeild, sem komið var á með reglugerðinni 1904, bæri að fella niður og hafa 6 ára óskiptan skóla. Tillagan um þetta var rædd á kennarafundi í menntaskólanum og samþykkt með 8 atkvæðum gegn 2 (sama rit, bls. 4). Að sjálfsögðu var gert ráð fyrir þessu fyrirkomulagi í frumvörpum nefndarinnar um lög og reglugerð skólans (sama rit, bls. 21–40), en þau náðu aldrei fram að ganga.
Einhver athyglisverðasti þátturinn í starfi nefndarinnar er samvinna hennar við deildir háskólans,“ segir Baldur Jónsson. „Nefndin mæltist til við háskólaráð, að eftirfarandi spurningar yrðu lagðar fyrir kennara allra háskóladeilda (sama rit, bls. 6):
1. Hvernig hefir yður reynst andlegur þroski stúdenta, er þeir koma frá Menntaskólanum og byrja nám sitt við Háskólann?
2. Í hvaða námsgreinum Menntaskólans finnst yður þeim helst ábótavant frá sjónarmiði háskólanámsins?
3. Hverjar breytingar á undirbúningi þeirra undir háskólanámið teljið þér æskilegar eða nauðsynlegar?
Svör háskólakennaranna eru birt sem fylgiskjöl með nefndarálitinu og eru einkar athyglisverð.“ segir Baldur Jónsson enn fremur: „Það, sem hér skiptir mestu máli, er dregið saman í „Áliti“ nefndarinnar, einkum á bls. 7–8, og er einfaldast að taka það hér upp orðrétt. Þar segir svo:
Niðurstaða háskólakennaranna verður þá í stuttu máli sú, að stúdentar, er þeir koma frá Menntaskólanum, hafi ekki fengið þann þroska í að hugsa sjálfstætt og rökvíslega, er æskilegur er til háskólanáms.
Sum svörin við 2. spurningunni benda að nokkru leyti í sömu átt. Er þar sérstaklega athugavert það sem sagt er um kunnáttuna í íslensku. Guðfræðideildin segir: „Sérstaklega finnst oss, að stúdentum sé ábótavant í þekkingu á íslenskri tungu. Við allar skriflegar æfingar kemur það í ljós, að ýmsa þeirra skortir mjög þekking í íslenskri réttritun og hafa litla hugmynd um notkun aðgreiningarmerkja. Réttritunarvillur lýta stórlega ritgerðir sumra við prófið, og margir hafa lært svo illa að skrifa, að þraut er að komast fram úr ritgerðunum. Öll framsetningin og vöntun kommusetningar bera þess stundum vott, að þeir hugsa ekki eins skýrt og ætlast mætti til eftir sex ára nám í Menntaskólanum.“
Lagadeildin segir: „Skal þess þá fyrst og fremst getið, að deildinni hefir reynst þekking stúdenta á íslenskri tungu ærið ábótavant, bæði um vöndun máls, setningaskipun og jafnvel réttritun.“
Prófessor Guðmundur Hannesson svarar spurningunni um það, í hvaða námsgreinum Menntaskólans stúdentum sé helst ábótavant, svo: „Langaugljósast í íslensku. Ef dæma má eftir prófritgerðum stúdenta, þá geta fáir ritað íslensku stórlýtalaust.“
Og prófessor Sigurður Nordal segir: „En af almennum kynnum af stúdentum, m. a. af því að hafa hlýtt á allt íslenskuburtfararprófið 1915 og lesið stílana, get ég fullyrt, að kunnáttu stúdenta í móðurmálinu er stórra ábóta vant, og miklu meiri en hægt er að ráða af prófeinkunnum þeirra, sem virðast mjög af handahófi.“
Slíkir gallar á meðferð móðurmálsins benda, eins og guðfræðideildin gefur í skyn, eflaust ekki aðeins á vankunnáttu heldur og skort á skýrri hugsun. Hugsun og mál er svo nátvinnað, að sá, sem vanur er að vega hugsanir sínar og ályktanir á viðkvæma vog, mun sjaldan láta sér sæma hirðulauslega meðferð málsins.“ Hér lýkur lestri úr áðurgreindri bók.
Ég les þetta plagg hér, sem er orðið yfir 60 ára gamalt, til þess að sýna fram á eða benda á það, að oft hefur verið efast um árangur af kennslu í skólum landsins og þá ekki síst varðandi íslenskunámið, en að sjálfsögðu er það við þetta að athuga, að hér er átt við Menntaskólann sem þá var einn í landinu, en við höfum kannske fremur hér verið að ræða aðra skóla eða skóla á lægra stigi.
En svo að ég víki að þekkingu nemenda í reikningi, sem hv. flm. talaði nokkuð um, þá er sjálfsagt ástæða til þess að lita vel á það, hvernig staðan er í því máli. En námsefni í reikningi hefur breyst mjög mikið og áhersla á einstaka þætti í námsefninu er önnur en áður og vissir þættir hafa sjálfsagt alveg horfið. Og það er sérstaklega ástæða til að benda á það, að alls konar reiknivélar eða vasatölvurnar hafa nú náð mikilli útbreiðslu og eru nánast að segja í hvers manns eigu. Án efa er mikil nauðsyn á því að þjálfa börn og unglinga í að fara með slík tæki. Ég held að yfirleitt sé ekki búið enn þá að sjá alveg fyrir endann á því, hvaða áhrif þessi mikla notkun reiknitækjanna og tölvanna hefur og á eftir að hafa á kennslu í skólum, en ég held að það sé mjög raunhæft einmitt að gera sér grein fyrir því, og ég man ekki betur en hér liggi till. núna fyrir Alþingi frá ýmsum hv. sjálfstæðismönnum þar sem tekið er á þessu máli og það alveg réttilega.
Einnig er hér í till. minnst á skólasókn og fjarvistir nemenda vegna veikinda og almennt heilsufar nemenda og að ástæða sé til þess að kanna hvernig öllu því sé farið. Ég reikna með að með orðinu skólasókn sé átt við það, hvernig nemendur sækja skólann daglega, en ekki hitt, hvort nemendur fara í skóla yfirleitt, heldur hvernig þeir rækja nám sitt eftir að þeir hafa skráð sig í skóla. Auðvitað er mjög gagnlegt að geta gert sér grein fyrir því. Og reyndar get ég upplýst það, að skólarannsóknadeild menntmrn. hefur gert nokkuð að því að kanna þetta og ýmsar upplýsingar liggja fyrir um það efni í rn.
Hvað varðar viðhorf nemenda til skólans getur vissulega verið gagnlegt að kynnast því, ef menn finna þá reglu fyrir því, hvernig á að framkvæma slíka könnun. Ég er ekki í vafa um að það mun hafa mjög mikla þýðingu í sjálfu sér að þekkja það, hvernig nemendur bregðast við skólanum, hvernig þeir hugsa til skólans, því að það hefur auðvitað gífurlega mikil áhrif á nám þeirra og viðhorf þeirra til námsins, námsárangur, hvaða hug þeir bera til skólans. Ég get vissulega fallist á að það sé eðlilegt og sjálfsagt að reyna að kanna þessi mál, og niðurstöður slíkrar könnunar mundu vafalaust verða gagnlegar sem ábending fyrir einstaka skóla og fyrir fræðsluyfirvöldin yfirleitt.
Ég vil svo segja það almennt í lokin um þessa till., að það er fátt mikilvægara en að starfslið skóla og fræðsluyfirvöld fylgist náið með skólastarfinu á hverjum tíma og leitist við að finna þær leiðir sem skila bestum árangri hverju sinni. Hins vegar, eins og ég held að ég hafi tekið fram áður, er samanburður á milli námsárangurs nemenda á mismunandi tímum mjög erfiður og getur e. t. v. gefið að einhverju leyti villandi upplýsingar um ástandið ef rangt er að staðið. Í öðrum tilvikum getur slíkur samanburður verið nauðsynlegur. Það, sem við gerum í dag, á rætur sínar í fortíðinni. En það sem skiptir höfuðmáli er túlkun upplýsinganna og meðferð þeirra. Það er samdóma álit flestra þeirra sem fást við menntamál eða skólamál, að hvers konar söfnun upplýsinga og úrvinnsla úr þeim sé mjög mikilvæg vegna ákvarðana, sem sífellt þarf að taka, m. a. vegna stöðugrar þróunar skólakerfisins sem gegnir mikilvægu hlutverki í breytilegu þjóðfélagi. Í menntmrn. liggja nú þegar margvísleg gögn og upplýsingar sem ekki hefur reynst mögulegt að vinna úr vegna annarra aðkallandi verkefna. Þá er unnt að afla margvíslegra upplýsinga um skóla og skólastarf án verulegs viðbótar- eða aukatilkostnaðar. Allt starf í þessa átt mundi auðvelda yfirsýn yfir skólahald í landinu, gera mönnum auðveldara að átta sig á hvað er að og hverra úrbóta er þörf. Söfnun slíkra upplýsinga hefur einnig sögulegt gildi. Nái slíkar upplýsingar yfir lengra tímabil ætti að vera unnt að gera sér grein fyrir heildareinkennum þróunarinnar og ætti þá jafnframt að skapast möguleiki á að móta heildarstefnu á öllum sviðum skólamála til lengri tíma, þannig að minni þörf yrði á bráðabirgðaúrlausnum heldur en oft hefur reynst.
En svo að ég víki beint að till. eins og hún liggur fyrir, þá get ég mælt með því, að hún verði athuguð í nefnd og fái í hvívetna þinglega meðferð því að hér er vissulega hreyft mjög mikilvægu máli.