18.03.1981
Sameinað þing: 63. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2974 í B-deild Alþingistíðinda. (3113)
251. mál, bankaþjónusta á Suðurfjörðum í Austurlandskjördæmi
Flm. (Sveinn Jónsson):
Herra forseti. Tímans vegna skal ég reyna að hraða máli mínu, en mér þykir vænt um að fá hér tækifæri til að mæla fyrir þessari till. sem hv. 2. þm. Austurl. hefur lagt fram með mér á þskj. 489 og varðar úrbætur í bankaþjónustu á Suðurfjörðum í Austurlandskjördæmi. Till. er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hlutast til um að komið verði upp viðunandi bankaþjónustu fyrir svæðið frá Stöðvarfirði um Breiðdalsvík og til Djúpavogs, með útibúum frá ríkisbönkunum.“
Með till. fylgir grg. og þarf út af fyrir sig ekki að hafa um hana mörg orð. En atvinnulíf þessa svæðis, sem um margt er nokkuð einangrað, er nokkuð fábreytt og stendur frekar höllum fæti. Þar hefur fyrst og fremst verið til umræðu atvinnulíf á Djúpavogi og það auma ástand sem þar hefur ríkt nú síðustu mánuði sér í lagi. Þar hefur verið vígt og tekið í notkun nýtt frystihús sem hefur verið í byggingu í níu ár, og þá vill svo einkennilega til að á staðnum er enginn bátur sem leggur þar upp afla. Þetta er að sjálfsögðu óviðunandi og þess vert að taka það mál fyrir hér á hv. Alþingi, þó svo að ekki sé útlit fyrir að það verði að þessu sinni.
En sú till., sem hér er lögð fram, snýr fyrst og fremst að bankamálum þessa svæðis. Ég ætla ekki að tíunda það sem til greint er í grg., en mér þykir miður að hæstv. ráðh. bankamála og jafnframt 1. þm. kjördæmisins skuli ekki vera hér viðstaddur, því að ef þessi till. hlýtur afgreiðslu héðan af þingi má búast við að það komi til hans kasta öðrum fremur að hrinda þessu í framkvæmd. Ástand þessara mála á svæðinu, bankamálanna, er sem sagt svo fábreytt og aumlegt að það verður að teljast óviðunandi. Þetta er aðeins einn liður í því að skjóta frekari stoðum undir atvinnulíf svæðisins, og á það verður að leggja áherslu að þar þarf að sjálfsögðu margt fleira til að koma. Með þessari till. er farið fram á að ríkisstj. hlutist til um að á þessu verði fundin viðunandi lausn.
Ég vil leggja til að till. verði að lokinni þessari umr. vísað til allshn.