19.03.1981
Efri deild: 65. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2988 í B-deild Alþingistíðinda. (3131)
262. mál, lagmetisiðnaður
Davíð Aðalsteinsson:
Herra forseti. Ég hef ekki ætlað mér að fara að ræða þetta frv. Hins vegar tel ég mér skylt vegna orða hv. þm. Lárusar Jónssonar að taka það fram, að auðvitað mun þetta frv. fá eðlilega umfjöllun í iðnn. þessarar deildar og ég mun að sjálfsögðu beita mér fyrir því sem formaður þeirrar nefndar. Ég ætla hvorki að ræða um frv. né heldur grundvallaratriði í stjórnmálum, eins og vikið var að áðan, en ég fullvissa hv. þm. um að frv. mun fá ítarlega skoðun.
Ég hef þessi orð ekki fleiri og lýsi í engu viðhorfum mínum til frv. á þessari stundu.