19.03.1981
Efri deild: 65. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2990 í B-deild Alþingistíðinda. (3134)

249. mál, ólíuleitarmál og hagnýtar hafsbotnsrannsóknir

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Eins og hv. síðasti ræðumaður, hv. þm. Lárus Jónsson, gat hér um í framsögu sinni fyrir þessu frv., hafa rannsóknir á landgrunninu ekki verið mjög miklar á þeim hafsbotnssvæðum, sem tilheyra Íslandi nú þegar og þar sem við erum að ávinna okkur réttindi, og það raunar þó að þáltill. hafi verið samþ. strax haustið 1978 um þetta efni. Þar hefur auðvitað að einhverju leyti ráðið fjárskortur og kannske líka sinnuleysi. Við fórum of seint af stað til að rannsaka þessi hafsbotnssvæði. Þetta hefur háð mönnum nokkuð, t. d. á hafréttarráðstefnu og í viðræðum við erlenda menn, nágranna okkar, um yfirráð á þessum svæðum. Engu að síður hefur þó talsverðrar þekkingar verið aflað að undanförnu þannig að við stöndum nokkru betur að vígi en við áður gerðum.

Þessi vanþekking kom í ljós í viðræðum við Norðmenn um Jan Mayen-svæðið. En góðu heilli tókst þó þar samkomulag sem menn þorðu varla að vona að yrði jafnhagstætt, a. m. k. ekki þegar umr. hófust um það mál og fyrst voru gerðar kröfur af Íslands hálfu til yfirráða yfir þessu svæði og hlutdeildar í auðlegð sjávar og hafsbotns þar. Það mál er þó farsællega í höfn komið. Eigi að síður þarf að halda áfram rannsóknum á þessu hafsvæði og sérstaklega að beina sjónum okkar að olíuleitinni, þó að auðvitað komi til álita margt fleira, hugsanlega málmar, og eins eru öll botnlæg dýr, dýr sem ekki þrífast öðruvísi en með snertingu við botn, svo sem krabbadýr ýmiss konar, eign þess ríkis sem hafsbotnsréttindi tilheyra. Í samningum okkar við Norðmenn höfum við auðvitað líka mjög víðtæk réttindi til að nýta fiskstofna á Jan Mayensvæðinu í samvinnu við Norðmenn.

En það svæði, sem við hljótum nú sérstaklega að beina augunum að, er Rockall-svæðið svonefnda. Ég held að ekki fari hjá því að alþjóðareglur um hafsbotnsmálefni, hafréttarmálefni, muni tryggja okkur réttindi á Reykjanesskaga allt að 350 sjómílur út, réttindi til hafsbotnsins þar. Hins vegar eru fjórar þjóðir sem leita réttar síns á Rockall-svæðinu. Eins og hv. alþm. er mætavel kunnugt hefur verið samþykkt ályktun og raunar ályktanir um það efni, en síðast á liðnu vori um samvinnu við Færeyinga til þess að tryggja réttindi Íslendinga og Færeyinga á þessu gífurlega stóra hafsbotnssvæði og væntanlega mjög verðmæta. Þetta er í annan stað sem sagt samvinna þessara tveggja frændþjóða og nágrannaþjóða og að hinu leytinu að teknir verði upp samningar við Íra og Breta til þess að reyna að ná samstöðu allra þeirra fjögurra þjóða sem hér hafa réttindi að gæta. Auðvitað væri æskilegast að heildarsamkomulag gæti náðst, annaðhvort um sameiginlegan eignarrétt að þessu svæði eða einhverja skiptingu sem menn gætu komið sér ásamt um.

Nú er mér kunnugt um að utanrrn. hefur haft samband bæði við Breta og Íra um þetta mál og Bretar hafa þegar svarað því játandi, að þeir vilji taka upp viðræður við okkur til að reyna að komast að niðurstöðu um þessi efni. Viðræður hafa þegar nokkrum sinnum farið fram við Færeyinga, bæði í Færeyjum og eins á hafréttarráðstefnunni í New York, og hæstv. utanrrh. hefur greint frá því, að hann hafi tekið þessar viðræður upp við utanrrh. Dana nú síðast í Kaupmannahöfn þegar hann var þar á ferðalagi. Ég geri ráð fyrir, að fulltrúar á hafréttarráðstefnu muni ræða þessi mál við þessar þjóðir, og leyfi mér raunar að óska þess, að hæstv. utanrrh. greini okkur frá því, hvaða hátt hann hyggist hafa um áframhald þeirra viðræðna sem hann þegar hefur sett í gang eða öllu heldur undirbúið. Þær hafa verið í gangi að því er Færeyinga varðar og nú verið undirbúnar að því er Breta og Íra varðar, og ég þykist þess fullviss að úr því að Bretar taka upp þessar viðræður muni Írar óðfúsir vilja gera það sama, því að þeir reyna auðvitað að tryggja sín réttindi. Það væri ánægjulegt ef hæstv. utanrrh. vildi að gefnu þessu tækifæri, sem við hér höfum, skýra okkur frá því, hvað næst sé á döfinni. Það er nú einu sinni svo í þessum málum, að sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær. Það nær enginn réttindum í þessum leik, sem nú stendur yfir, nema sá sem ber sig eftir björginni, og til þess sækjum við hafréttarráðstefnur að reyna að tryggja réttindi Íslendinga. Því væri mjög æskilegt að fá um það upplýsingar nú, hvort t. d. sendinefnd okkar á hafréttarráðstefnunni yrði falið að taka upp formlegar viðræður við þessar þjóðir og þá auðvitað sérstaklega ambassador okkar, Hans G. Andersen, sem mundi leiða slíkar umr., en hugsanlega að t. d. fulltrúar stjórnmálaflokkanna væru þar viðstaddir, tækju þátt í þeim viðræðum eða sætu a. m. k. sem áheyrnarfulltrúar.

Þetta svæði, Rockall-svæðið, er talið geta verið mjög auðugt bæði að ýmiss konar jarðgasi og olíum. Þetta er geysimikið og stórt svæði og þó að menn átti sig ekki á því þegar þeir líta lauslega á kort af svæðinu, þá er það svo að mikill hluti þess er nær Íslandi en Bretlandi og Írlandi, og ef miðlína yrði á milli Íslands og Færeyja mundi allur Hatton-bankinn, þ. e. vestasti hluti þessa sokkna lands, falla í hlut Íslendinga. Ef aftur á móti miðlína réði með Færeyingum, Írum og Bretum, þá yrði það mjög stórt svæði sem vestan þeirrar línu yrði og yrði þá væntanlega sameign Íslendinga og Færeyinga. Þetta er allt saman viðkvæmt mál og hugtök eins og „eðlileg framlenging lands“ (natural promotion), eru meira og minna óskilgreind í þessum umr. og sáttmálagerð sem nú stendur yfir. Þarf því að vera vel á verði og halda til öllum þeim rökum sem við höfum fyrir því að við eigum þarna réttindi, og höfuðrökin eru að sjálfsögðu þau, sem áður hafa fram komið, að hin upphaflega gliðnun, þegar Atlantshaf myndast, er austan þessa svæðis. Landið, sem þarna er sokkið, var um það bil í 50 millj. ára áfast við Grænland og úthafið var á milli þessa lands og Írlands og Bretlands. Þess vegna fæ ég ekki með nokkru móti skilið hvernig þær þjóðir eiga að geta talið þetta land vera eðlilegt framhald af þurrlendi þessara ríkja eða landgrunni þeirra. Miklu frekar er þetta land hluti af þeim parti jarðarkringlunnar sem Ísland og Færeyjar eru á, bæði samkv. landslagi og eins að eðli til og hvernig það rekur frá Grænlandi um það leyti sem Ísland er að myndast og Reykjaneshryggur og þetta hafsvæði sem við búum á.

Hvað sem um þetta má segja er alveg nauðsynlegt að halda réttindum okkar fram og reyna að afla sem víðtækastra réttinda, og eins og ég sagði áður fáum við auðvitað ekki neitt á þessu svæði, frekar en við hefðum fengið á Jan Mayen-svæðinu, nema við gætum réttar okkar til hins ítrasta. Þess vegna væri áreiðanlega bæði fréttnæmt og ánægjulegt ef hæstv. ráðh. gæti upplýst okkur eitthvað frekar um hvers vænta mætti um gang þessara mála á næstunni.