19.03.1981
Neðri deild: 64. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2999 í B-deild Alþingistíðinda. (3145)
220. mál, tímabundið olíugjald til fiskiskipa
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Skömmu eftir að núv. ríkisstj. var mynduð lagði sjútvrh. fram frv. um tímabundið olíugjald sem var afgreitt, að mig minnir, í byrjun aprílmánaðar á s. l. ári. Þar lækkar hann verulega olíugjaldið og kvað vísa menn hafa sagt sér að þróun þessara mála yrði með þeim hætti, að olíuverð mundi fara lækkandi og því væri eðlilegt að þetta tímabundna olíugjald lækkaði. Jafnframt lýsti hann yfir að hann teldi olíugjald, sem lagt væri á með þessum hætti, vera ranglátt og alveg sérstaklega vitlaust, eins og hann sjálfur orðaði það.
Eftir fiskverðsákvörðun á s. l. hausti lagði hæstv. ráðh. til að hækka þetta olíugjald um hvorki meira né minna en 200%, úr 2.5 í 7.5%, og aftur endurtók hann þá skoðun sína, að þetta gjald, eins og það væri á lagt, væri ranglátt og óeðlilegt í alla staði og vitlaust með öllu, eins og hann orðaði það aftur í þeim umr. Við fulltrúar Sjálfstfl. í sjútvn. gagnrýndum það, að fyrst væri verið við eina fiskverðsákvörðun að lækka gjaldið verulega frá því sem það var ákveðið í ársbyrjun eða í janúarmánuði á s. l. ári, og það svo verulega sem núv. hæstv. ríkisstj. lagði til, og síðan aftur við næstu ákvörðun að þrefalda það. Nú er lagt til að þetta gjald verði hið sama á þessu ári og lagt á með sama hætti og greitt til skipa með sama hætti, ofan á fiskverð.
Við fulltrúar Sjálfstfl. tókum það fram, að við værum reiðubúnir til samstarfs við ríkisstj og við hæstv. sjútvrh. um að finna skynsamlegri og réttlátari lausn á þessu máli. Hæstv. ráðh. hefur ekki haft svo mikið við að ræða það mál einu orði. Og nú bregður svo við, þegar hann leggur þetta frv. fram, að hann talar ekkert um að þetta sé ranglát og vitlaus aðferð, bæði við álagningu gjaldsins og eins greiðslur til útgerðarinnar sem þess á að njóta. Nú langar mig til að vita hvort hæstv. ráðh. hefur snúist í þessari afstöðu sinni og telji nú þetta gjald, eins og það er á lagt og greitt til skipa, vera orðið réttlátt og skynsamlegt — og hvað hafi þá breytt afstöðu hans til málsins, þegar hann hafði áður svo beina og ákveðna afstöðu um að þetta væri alveg sérstaklega ranglátt og vitlaust.
Hitt skal ég fúslega taka undir, að útgerðinni veitir ekki af að fá ofan á fiskverðið 7.5% til þess að standa undir útgerðarkostnaði. Og eins þætti mér gaman að vita hverjar eru spár hæstv. ráðh. hvað snertir verð á olíu á þessu ári bæði gasolíu og svartolíu. Svartolían hefur hækkað mun meira en gasolían. Telur hann að þessi þróun verði áfram með svipuðum hætti? Telur hann að fram undan séu verulegar hækkanir, eða vill hann jafnvel halda því fram, sem nýlega hefur verið haft í fjölmiðlum eftir forstjóra eins olíufélagsins, að búast megi við að verð á olíu fari lækkandi þegar við séum lausir við viðskipti við breska ríkisfyrirtækið. Hver yrðu áhrif þeirra viðskipta? Það væri fróðlegt að þd. fengi um þetta einhverjar upplýsingar.
Hæstv. ráðh. gat hér um hver staða útgerðarinnar væri í hinum ýmsu greinum, báta án loðnu, skuttogara og stærri togara, og taldi svo í samantekt sinni, og vitnaði þá í Þjóðhagsstofnun, að útkoman hjá útgerðinni þegar á heildina væri lítið væri mjög bærileg. Ég held að þetta yfirlit Þjóðhagsstofnunar, sem er framreikningur, sé engan veginn einhlítt, eins og allir hljóta að vita, því að þar er ekki gert ráð fyrir þeim óskaplega skuldabagga sem útgerðin og sjávarútvegurinn veltir núna á undan sér með refsivöxtum. Það er ekki inni í þessu dæmi eins og allir vita. Sömuleiðis hygg ég að minnkandi afli, þegar á heildina er lítið, miðað við sama tíma í fyrra hljóti að hafa gífurleg áhrif á útkomu veiðiflotans. Ég held að það sé fullmikil bjartsýni að segja nú, þegar varla er liðinn einn fjórðungur af þessu ári, að afkoma útgerðar geti talist bærileg. Það er mikil bjartsýni að halda því fram. Ég hef ekki tölur í höndum, en þó þykist ég vita svo mikið, að mér er óhætt að fullyrða að afkoman núna, þegar á heildina er lítið, er ekki bærileg, heldur óbærileg. Það eru víða ákaflega miklir erfiðleikar sem við er að etja í útgerð.
Ég er sömu skoðunar og í haust þegar mál sama eðlis var hér til umr. Þá taldi ég að hér ætti að einhverju leyti að vera um samhjálp að ræða, en ekki leggja þessar kvaðir á sjávarútveginn einan. Olíuhækkanirnar, sem orðið hafa í heiminum og hafa dunið á okkur eins og öllum öðrum þjóðum, eru ekki einkamál sjómanna og útgerðar, fiskvinnslu og sjávarútvegs. Þær eru afleiðing af risavöxnu vandamáli í heiminum sem þjóðina varðar um og þjóðin á sameiginlega að leysa. Þess vegna var það sem sú skoðun kom fram hjá okkur á s. l. hausti, að þó gripið hafi verið til tímabundins olíugjalds í byrjun, þegar verulegra hækkana fór að gæta á olíu, sé takmarkað hversu lengi eigi að halda áfram þeirri aðferð. Þess vegna var ég að mörgu leyti sammála hæstv. ráðh. þegar hann taldi nauðsynlegt að breyta þessum grundvelli og gera gjaldið réttlátara en hann sagði að það væri. Og því bjóst ég við að nú, þegar frv. er lagt fram, mundi verða gerð hér róttæk breyting, eftir að hæstv. ráðh. hefur setið í ráðherrastóli í rúmlega ár. En þá er þetta frv. nánast „kopiering“ af lögunum sem runnu út um síðustu áramót.