23.03.1981
Neðri deild: 65. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3025 í B-deild Alþingistíðinda. (3165)

193. mál, viðnám gegn verðbólgu

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Hv. 5. þm Norðurl. v. mælti hér fyrir áliti 2. minni hl. í forföllum frsm. Því er eins farið með mig hér og nú, að ég mæli fyrir nál. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. í forföllum frsm., hv. 1. þm. Vestf., sem boðað hefur veikindaforföll.

Frv. til l. um ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu er dæmigert fyrir vinnubrögð núv. ríkisstj. Þetta frv. endurspeglar líka hvaða hugmyndir núv. ríkisstj. hefur til lausnar þeim vandamálum sem við er að glíma. Þetta frv. endurspeglar einnig með hvaða hætti hæstv. ríkisstj. telur samboðið Alþingi að leggja mál fyrir.

Eftir nærri eins árs setu, þ. e. á gamlársdag s. l., voru gefin út brbl. þau sem leitað er staðfestingar Alþingis á nú, og báru brbl. sömu yfirskrift og það frv. sem hér er til umr. Það hafði verið spurst fyrir um það hjá hæstv. ríkisstj. þegar kom fram á vor á s. l. ári og dró að þinglokum, hverjar væru hugmyndir ríkisstj. til lausnar þeim vandamálum sem við blöstu. Það hafði verið spurst fyrir um það, hvað þeir menn ætluðu að gera sem mynduðu ríkisstj. í þessu landi til þess að bjarga heiðri þjóðarinnar og sæmd Alþingis. En það var fátt um svör. Jú, það var að vísu sagt að það væri verið að vinna að tillögum, það hefði verið sett nefnd til að koma með tillögur til ríkisstj., efnahagsmálanefnd, þetta væri allt saman í undirbúningi og smíðum og mundi að sjálfsögðu sjá dagsins ljós fyrr en varði. Á þessu varð þó töluvert mikil bið og þegar Alþingi kom saman s. l. haust hafði ekkert frést af ráðstöfunum eða af tillögum til lausnar þeim vandamálum. sem við var að glíma. Alþm. spurðust fyrir um hverju þetta sætti. Enn var verið að skoða málin. Enn voru málin í nefnd. Að vísu hafði efnahagsmálanefnd sent ríkisstj. tillögur sínar, en það hafði eitthvað dregist að ríkisstj. gæti komist að niðurstöðu, gæti lagt fram sínar tillögur. Þegar spurst var fyrir um þetta rétt fyrir jólaleyfi alþm. á s. l. ári voru engin svör. Sennilega er það rétt, sem haft er eftir hæstv. viðskrh., að á gamlársdagsmorgun hafi ekki verið búið að stinga niður penna, þá hafi ekki eitt orð verið komið á blað né byrjað að móta tillögur um lausn þeirra vandamála sem við var að glíma.

En það voru góð ráð dýr. Það skyldi haldin ræða á gamlárskvöld. Þjóðin skyldi ávörpuð. Það varð að vera eitthvað innihald í því ávarpi sem hæstv. forsrh. flytti þjóð sinni á þeim tímamótum. Og í snarhasti á gamlársdag voru sett saman brbl. Í þeim fólst kjaraskerðing launþega og þeirra sem njóta bóta frá almannatryggingum, án þess að nokkuð væri gert til að bæta þar um, og síðan voru samdar nokkuð margar greinar til að dylja í raun og veru efni frv., til að reyna að gera örlítið stærra frv. úr því sem hafði verið hin eina tillaga sem ríkisstj. hafði fram að færa. Þannig voru efnahagsráðstafanir ríkisstj. á árinu 1980 fluttar þjóðinni í brbl. á gamlársdag. Þar var um að ræða kjaraskerðingu ásamt ýmsum ákvæðum sem fyrir voru í lögum eða reglugerðum og ekki þurfti að endurtaka í nýrri lagasetningu. Nú er komið fram á þriðja mánuð ársins 1981 og þetta er það eina sem frá hæstv. ríkisstj. hefur komið.

En eru vinnubrögðin í þessu tilfelli einsdæmi eða sjáum við þau víðar? Auðvelt er að svara þessari spurningu. Við sjáum þessi vinnubrögð alls staðar. Í hv. Ed., í fjh.- og viðskn. þar, er fjallað um frv. um heimildir handa ríkisstj. fyrir lántöku samkv. lánsfjáráætlun sem enn hefur ekki séð dagsins ljós. Lánsfjáráætlun er reyndar heildarrammi um efnahags- og peningamálastefnu viðkomandi ríkisstj. Það er enn ekki farið að birta Alþingi þennan boðskap. Fjh.- og viðskn. hafa að vísu verið sent ýmiss konar skjöl, margs konar upplýsingar, óskalisti þeirra aðila sem um skal fjallað í lánsfjáráætlun. Því hefur verið haldið fram af hæstv. fjmrh., að staðið hafi á Seðlabankanum hvað snertir þær upplýsingar sem hann ætti að láta frá sér fara. Það var þess vegna fremur broslegt á fundi fjh.- og viðskn. í morgun þegar formaður n. óskaði eftir því við fulltrúa Seðlabankans, sem sat á fundi, að hann gengi nú eftir því með formanninum að það kæmu greinargerðir frá fjárlaga- og hagsýslustofnuninni svo að hægt væri að koma þessu skjali heim og saman.

Þetta er í samræmi við vinnubrögð hæstv. ríkisstj. og gefur auga leið að þegar slíkum vinnubrögðum er beitt, þ. e. hlutirnir eru látnir reka á reiðanum, nást ekki tök á vandamálum efnahagslífsins, verðbólgunni, enda æðir hún áfram. Þegar komið var fram í desembermánuð á s. l. ári sýndi sig hvert verðbólgustigið var orðið. Verðbólgan var á milli 70 og 80% og stefndi enn þá hærra.

Í brbl. um ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu var kveðið á um verðstöðvun sem fyrir var í lögum. Í þá tvo mánuði, sem liðnir eru, hefur verðstöðvun að einhverju leyti verið meiri en áður. Hins vegar sá ríkisstj. svo um, undir sumum kringumstæðum óumbeðin, að hækka gjaldskrár opinberra fyrirtækja. Engu að síður liggur ljóst fyrir að það hefur ekki dugað til þess að þessar stofnanir yrðu reknar hallalaust. Beiðnir liggja því fyrir óafgreiddar og munu verða látnar bíða fram yfir þau tímatakmörk sem í þessu frv. eru.

Engu að síður og þrátt fyrir þetta sýna tölur úr efnahagslífinu hvert stefnir í þessum efnum. Hækkun lánskjaravísitölu fyrir marsmánuð frá því í febrúar er um 82%, ef miðað er við þann eina mánuð. Ef lánskjaravísitalan er skoðuð frá upphafi árs er hún á ársgrundvelli eða frá janúar til janúar 52.59%. Ef litið er til febrúar er hún 54.68%. Ef litið er til mars er hún 58.04%, þ. e. síðustu 12 mánuði, og má reikna með að hún verði mjög svipuð þegar kemur fram að apríl og hún verði, reiknuð þá um eða tæplega 58%. Þessar tölur liggja fyrir þegar hæstv. ríkisstj. gerir ráðstafanir í peningamálum og gefur út að samkv. verðlagsþróuninni fyrstu tvo mánuði ársins sé verðbólgan komin niður í 35%.

Öll eru þessi vinnubrögð með þeim hætti, að það er verið að sýna ástandið með allt öðrum hætti en það í raun og veru er, og þær ráðstafanir, sem gerðar eru, eru gerðar til skamms tíma, til þriggja mánaða, til fjögurra mánaða, til fimm mánaða, til þess að hægt sé að ná fram einhverri þeirri jákvæðu mynd sem ríkisstj. vill gjarnan geta skreytt sig með. En ég er því miður hræddur um að þegar áfram verður haldið verði allt þetta, það sem ríkisstj. hefur verið að gera, svipað og skeði hjá keisaranum þegar hann fékk sér ný föt

Efni þess frv., sem hér er fjallað um, er í fyrsta lagi einhliða fórn fyrir launþega og lífeyrisþega almannatrygginga. 7% skerðing launa varð 1. mars. Það er í raun og veru uppistaðan, eins og ég sagði áðan, í þessu frv. Það er svo skreytt með ýmsum þeim ákvæðum sem óþarft var að setja á prent á gamlársdag, einfaldlega vegna þess að heimildir voru allar fyrir hendi. En á sama tíma og ákveðin er lækkun launa um 7% og þar með lögð til kaupskerðing eru skattar þyngdir með fjárlögum og opinber þjónusta hækkuð án þess að framfærsluvísitalan fái talið það.

Með ráðstöfunum í vaxtamálum, sem nokkuð lengi dróst að fá nánari skýringar á hjá hæstv. ríkisstj. og hjá Seðlabanka kemur í ljós að hér er stefnt í vaxtahækkun, þ. e. hækkun raunvaxta, en ekki í það sem ríkisstj. hafði haft á prjónunum og ætlaði sér að gera. Það var hins vegar látið heita svo, þegar kom fram í febrúar, að vextir væru lækkaðir í nokkrum þáttum útlána. Það eru að vísu ekki mjög algeng eða auðfengin lán núna. Þar var auðvitað um sýndarmennsku að ræða eins og allt annað, en önnur ákvæði þessa frv. í vaxtamálum gera það að verkum að í raun verður hér um vaxtahækkun að ræða.

Þá aflar ríkisstj. sér heimildar í brbl. til niðurskurðar eða til að draga úr útgjöldum ríkissjóðs. Í fjárlögunum sjálfum er heimild. Enn fremur er ríkisstj. að sýna Alþingi virðingarleysi þegar með brbl. er eftir 10 daga frá samþykkt fjárlaga fengin heimild til að breyta útgjöldum ríkissjóðs. En það kastar fyrst tólfunum í þessum efnum þegar ríkisstj. aflar sér heimildar með brbl. á gamlársdag til að breyta lánsfjáráætlun sem enn hefur ekki séð dagsins ljós og verður sennilega ekki lögð á borð alþm. áður en þetta frv. verður orðið að lögum. Þannig er með þessum brbl. verið að gera að markleysu það sem Alþingi kemur á næstu dögum og vikum til með að fjalla um, þ. e. lánsfjáráætlun, og um framkvæmdir, sem eru fjármagnaðar með lántökum, svo og um lántökuheimildir.

Af öllu þessu verður ekki annað séð en það hjakki allt í sama farinu. Það eru gerðar tímabundnar ráðstafanir til þess að hægt sé að segja: Febrúarmánuður kom ansi vel út. Verðlagsþróunin í febrúar var þessi, sem sýnir að á ársgrundvelli er verðbólgan komin niður í þetta prósentustig. — Hækkunum er haldið niðri. Það sjá allir hvernig þetta dæmi endar, hvenær svo sem þessum skollaleik verður hætt.

En þá kem ég að þeirri spurningu, sem að vísu var gerð mjög góð grein fyrir við 1. umr. þessa máls af hv. 1. þm. Reykv., hvaða atriði það voru sem gerðu það nauðsynlegt að setja þessi brbl. á gamlársdag. Ef farið er yfir frv. held ég að ýmist séu heimildir í lögum eða þá að nægur tími hafi verið til þess frá því Alþingi kom saman eftir áramót og fram til l. mars að fá samþykki fyrir því sem þurfti sérstaklega. Kauplækkunin var í raun og veru aðalinnihald þessa frv. Það er sama hvar stungið er niður: Verðstöðvun 1. gr. er í lögum, vaxtaákvarðanakaflinn hafði áður verið tekinn til skoðunar af Seðlabanka og ríkisstj. og þess vegna ekki ástæða til þeirra ráðstafana, heimild var til að draga úr ríkisútgjöldum. Það var hins vegar ekki heimild til að breyta þeirri lánsfjáráætlun sem enn hefur ekki verið samþykkt.

Það er þá mergurinn málsins í því frv., sem ríkisstj. kallar„ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu“, að í frv. felst einhliða fórn launþega og bótaþega almannatrygginga sem nemur 7% af verðbótum launa og bótafjárhæðum frá 1. mars s. l. frá því sem verið hefði að óbreyttum lögum. Þetta þýðir að skerðing launa verkamanna er nú orðin með Ólafslögum og brbl. 41 574 gkr. Þá er talin til mánaðarlauna verkamanns tveggja stunda eftirvinna. Þessi skerðing þýddi ásamt skerðingu Ólafslaga að tekjutrygging hjóna lækkaði um 11 600 gkr. hinn 1. mars. Þessar ráðstafanir hafa talsmenn ríkisstj., og það kemur fram í nál. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. sérstaklega, talið að væri mikill sigur fyrir ríkisstj. og árangur í viðureigninni við verðbólguna. Í nál. segir, með leyfi forseta:

„2. minni hl. n. telur að frv. sé nauðsynlegur þáttur í baráttunni gegn verðbólgu. Undirritaðir nefndarmenn telja verðbólguna mikinn bölvald í þjóðfélaginu og mæla eindregið með því að frv. verði samþykkt.“

Þetta undirstrikaði áðan hv. 5. þm. Norðurl. v. sem talaði fyrir 2. minni hl. nefndarinnar.

Með hv. 5. þm. Norðurl. v. rita undir þetta nál. þm. Halldór Ásgrímsson og Guðmundur J. Guðmundsson. Það er nú eins og menn kannist fremur við annan tón í slíkum málum hjá hv. þm. Guðmundi J. Guðmundssyni en fram kemur í þessu nál., þegar um er að ræða kjaraskerðingu þeirra, sem lægstu launin hafa, og þeirra, sem njóta bóta úr tryggingakerfinu. Menn minnast ársins 1978. — Ég sé á nál. 3. minni hl. fjh.- og viðskn. að ýmislegt það, sem sagt var á þeim tíma, hefur þar verið upp tekið, að vísu alfarið það sem mér sýnist þeir Alþb.menn hafa sagt. Það má vel vera og er skiljanlegt að hv. 3. minni hl. hafi einkanlega varið tíma sínum til að finna hvað Alþb.-menn sögðu á þessum tíma. Þeir hafa sjálfsagt á reiðum höndum hvað sagt var af öðrum þeim sem sýndu andstöðu við þær aðgerðir sem framkvæmdar voru á vormánuðunum 1978.

Eins og frv. þetta var lagt fram var ekkert bitastætt í því til að draga úr þeirri kjaraskerðingu sem þar er lögð til fyrir bótaþega lífeyristrygginga, ekki einu sinni þeirra sem þurftu einvörðungu og þurfa einvörðungu að lifa af tekjutryggingunni einni saman, og sama gildir um láglaunafólk. Samkv. frv., eins og það var lagt fram, mun kaupmáttur þess skertur verulega og í líkingu við það sem hefur orðið hjá þeim sem hærri launin hafa. Þessi vinnubrögð held ég að séu einsdæmi síðustu áratugina og að svo hafi ekki verið staðið áður að lagasetningu sem þessari af hálfu ríkisstj. og Alþingi. Þrátt fyrir þessa einhliða fórn launþega og bótaþega almannatrygginga næst ekki fram meiri árangur í viðureigninni við verðbólguna en svo, að hún er metin af Þjóðhagsstofnun munu verða á þessu ári á milli 50 og 60%.

Í mjög ítarlegu nál. fulltrúa Sjálfstfl. í fjh.- og viðskn. Ed. er gerð grein fyrir sjónarmiðum sjálfstæðismanna í þessum efnum og þar eru birtar sem fskj. ýmsar þær upplýsingar sem fjh. og viðskn.-menn óskuðu eftir til þess að styrkja þá skoðun sína sem þar kemur fram og ég hef komið fram með í máli mínu. Við 2. umr. í Ed. kom yfirlýsing frá ríkisstj. varðandi þá aðila sem njóta bóta frá almannatryggingum. Þar var gerð nokkur lagfæring á þeirra málum. Í hv. Ed. höfðu tillögur sjálfstæðismanna hins vegar verið felldar. Við fulltrúar Sjálfstfl. í fjh.- og viðskn. Nd. flytjum þær í þessari hv. deild, að vísu með nokkrum breytingum. Þessar brtt., sem við flytjum óbreyttar í Nd., fela að meginstefnu í sér skattalækkun, þær fela í sér verulega hjöðnun á verðbólgunni 1. maí og síðast en ekki síst ráðstafanir til að koma í veg fyrir atvinnuleysi, sem hætta er á fyrr en varir að óbreyttri stefnu ríkisstj. í efnahags- og atvinnumálum.

Þessar brtt. okkar voru lagðar fram á sameiginlegum fundum fjh.- og viðskn. Ed og Nd. Fulltrúar stjórnarflokkanna tóku ekki undir till. okkar, ekki einu sinni varðandi bótaþega almannatrygginga, enda þótt fyrir lægi bréf frá hagstofustjóra sem gerði grein fyrir því, með hvaða hætti farið skyldi með mál þeirra, nema eins og þar segir, með leyfi forseta, „annað hafi verið ákveðið sérstaklega í viðkomandi lögum eða annars staðar“. En svo skeður það, þegar 2. umr. þessa máls fer fram í hv. Ed., að ríkisstj. tekur ákvörðun um að hluti lífeyris þeirra elli- og örorkulífeyrisþega, sem njóta tekjutryggingar og heimilisuppbótar, skuli hækka um 14.6%, en allar aðrar tryggingabætur um 6%. þar er um að ræða grunnlífeyri, barnalífeyri, mæðralaun, ekkjubætur og sjúkra- og slysadagpeninga, svo að nokkuð sé nefnt. Þessar lífeyris- og nauðþurftargreiðslur eiga samkv. brbl. ríkisstj. aðeins að hækka um 6% á sama tíma sem framfærslukostnaðurinn hækkar vegna ástandsins í landinu um 14.32% samkv. útreikningi Hagstofu Íslands. Hér er þó ekki sögð sagan öll, því að hin síðari ár hafa allir verið sammála um að fólk, sem nær einvörðungu hefði fyrir sig að leggja lífeyri úr almannatryggingum, væri verst sett í þjóðfélaginu, og þess vegna hefur þessum aðilum verið bætt upp það sem þeir hafa í misst. Það er hins vegar gripið til þess, eins og hér var sagt áðan, að hluti fengi 14.6% og það látið líta svo út í fréttatilkynningu, sem fram kom frá heilbr.- og trmrn., að allar bætur til lífeyrisþega og bótaþega frá almannatryggingum hækkuðu um 14.6%. Það er 6% hækkum hjá þeim sem hafa elli- og örorkulífeyri, en það er 10.2% hækkun hjá hinum, en ekki 14.6%. Það er vissulega sárt að horfa upp á að slíku fólki skuli ekki þyrmt þegar verið er að gera þetta, en verra er þegar menn hugsa sér að láta málin líta öðruvísi út en þau í raun og veru eru.

Ég hef nú gert að umræðuefni efni þessa frv. og hvernig að því var staðið. Ég geri að lokum grein fyrir brtt. sem við hv. 1. þm. Vestf., Matthías Bjarnason, hv. 3. þm. Reykv., Albert Guðmundsson, og ég flytjum á þskj. 498. Það eru sex brtt.

1. gr. verði umorðuð og þar ákveðið hvað við skuli taka þegar 1. maí er kominn og gert ráð fyrir að 8. og 12. gr. laga nr. 56/1978, eins og þær voru upprunalega samþykktar á Alþingi, taki gildi og þar með falli úr gildi 59. og 60 gr. laga nr. 13/1979.

Í 2. brtt. er gert ráð fyrir að skerðing verðbóta 1. mars 1981 skuli ekki ná til þeirra sem njóta bóta frá Tryggingastofnun ríkisins.

3. brtt. gerir ráð fyrir því, að áður en ríkisstj. fær heimild samkv. 7. gr., eða fyrir hinn 1. apríl, skuli hún hafa samið tillögur um niðurskurð eða lækkun rekstrarútgjalda ríkisins.

Í fjórða lagi er lagt til, að þær ráðstafanir, sem gera á í sambandi við millifærslukerfið sem upp á að taka, gerist ekki og þeir styrkir, sem þar er um talað, verði ekki með neins konar millifærslu.

Þá er í 5. brtt. gert ráð fyrir skattalækkunum, ýmist með breytingum á skattvísitölu eða öðru. Gert er ráð fyrir breytingu á vörugjaldi og síðan á söluskattsauka til þess að koma til móts við það fólk sem verður fyrir kjaraskerðingu og þá gert ráð fyrir að til skattalækkunar geti komið.

Ég sé ekki ástæðu, herra forseti, til að lengja mál mitt. Þessar brtt. eru forsenda þess sem við teljum að hægt sé að gera, en náist þær fram þurfi að taka til þar á eftir við raunverulegar ráðstafanir og glíma við það vandamál sem núv. ríkisstj. hefur ekki treyst sér til í það ár og mánuð sem hún hefur setið.