23.03.1981
Neðri deild: 65. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3030 í B-deild Alþingistíðinda. (3166)
193. mál, viðnám gegn verðbólgu
Frsm. 3. minni hl. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, er til afgreiðslu í síðari deild og til staðfestingar á brbl. sem hæstv. ríkisstj. setti á gamlársdag á s. l. ári. Eins og á hefur verið bent eru í frv. aðeins fjórir efnisþættir og er það allur árangurinn af ellefu mánaða setu núv. hæstv. ríkisstj. Þetta eru fyrstu aðgerðir af þeim sem hæstv. ríkisstj. lofaði að hrinda í framkvæmd með málefnasáttmála sínum. Þær drógust í ellefu mánuði, þessar fyrstu aðgerðir, og þegar þær komu rúmuðust þær á einu vélrituðu blaði.
Þær átta frvgr., sem eru í frv. þessu, fjalla um fjögur efnisatriði, fyrir utan gildistökuákvæði í 8. gr. Fyrsta efnisatriðið kemur fram í 1. gr. frv. og er um framlengingu á verðstöðvun sem hefur staðið lítið breytt á Íslandi s. l. 10 ár. Annað efnisatriði er í 2. og 3. gr. frv. og fjallar um peninga- og lánamál og þá eingöngu um vaxtamál inn- og útlána. Þriðja efnisatriði frv. er í 7. gr., þar sem ríkisstj. er heimilað að fresta ótilteknum framkvæmdum samkv. samþykktum fjárlögum og ósamþykktri lánsfjáráætlun.
Það er einkar athyglisvert um þessi þrjú efnisatriði, að í umfjöllun Alþingis um þau er ekki hægt að sjá og ekki hægt að fá upplýst að þessi þrjú efnisatriði af fjórum hafi hin minnstu áhrif á verðbólguþróunina í landinu þó svo frv. sé kallað „frv. til l. um ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu“. Hvorki Þjóðhagsstofnun, Seðlabanki né neinn annar aðili, sem ríkisstj. og Alþingi hafa sér til ráðuneytis treysti sér til að meta þessi þrjú efnisatriði í frv, til hinna minnstu áhrifa á verðbólguþróunina í landinu. Verðbólguáhrif þessara þriggja efnisatriða eru nákvæmlega núll. Þjóðhagsstofnun treysti sér ekki til þess að segja fyrir um að þessar aðgerðir hefðu minnstu áhrif á verðbólguna á Íslandi.
Þá er bara eitt atriði í brbl. eftir. Það er efnisatriðið í 4., 5. og 6. gr. Þær lúta að því í fáum orðum sagt að lækka öll laun í landinu um 7% frá og með 1. mars. n. k. Þetta er hin eina aðgerð af þeim fjórum sem felast í frv. sem nokkur merkjanleg áhrif hefur á verðbólguna.
Nú vita það allir og er fyrir löngu viðurkennt, að laun eru svo stór þáttur í þjóðarbúskapnum að auðvitað hefur það áhrif á verðbólguþróun hvernig launaákvarðanir verða. Ef peningalaun eru hækkuð umtalsvert í kjarasamningum án þess að nokkur raunveruleg verðmæti standi á bak við slíka hækkun peningalauna hefur hún þau einu áhrif að magna verðbólguvandann og peningalaunahækkunin hverfur á örfáum vikum eða mánuðum í auknum verðhækkunum. Þetta vita allir landsmenn þó menn séu misjafnlega fúsir á að viðurkenna það. Með því að hækka peningalaun á pappírnum án þess að innstæða sé fyrir þeirri peningalaunahækkun kemur eingöngu út aukin verðbólga. Með nákvæmlega sama hætti er auðvitað hægt að hafa áhrif á verðbólgu til skamms tíma með því að lækka peningalaun. Það eru einu aðgerðirnar til lækkunar á verðbólgu sem Íslendingar hafa kynnst og reyndar hafa verið á umliðnum árum. Einkennilegt er til þess að hugsa, að það virðist ekki skipta neinu máli hvort það er Sjálfstfl., sem er mestu ráðandi í ríkisstj. í landinu, eða Alþb. Það skiptir engu máli hvor flokkurinn það er. Það er ávallt slík aðgerð sem er reynd: Tímabundin viðnámsaðgerð gegn verðbólgu sem einvörðungu er fólgin í því að lækka laun í landinu um 7, 10 eð 12%. Við vitum af reynslunni hver árangurinn verður: Verðbólgan lækkar um stund, lækkar nokkuð á næsta vísitölutímabili, en fer síðan í vöxt aftur og eftir nokkurra mánaða bið erum við komin í sama farið.
Þetta frv. til l. um ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu felur aðeins í sér eitt atriði sem hefur áhrif á verðbólguþróunina. Það er launalækkun um 7%. Önnur efnisatriði frv. hafa þar ekki minnstu áhrif. Frv. stæði óbreytt hvað varðaði áhrif þess á verðbólguþróun í landinu þó að 1. gr., 2. gr., 3. gr. og 7. gr, yrðu felldar niður. Þó svo að þessar greinar frv. yrðu felldar niður og eftir stæði aðeins eitt efnisatriði í frv., þ. e. lækkun launa um 7% með lögum, mundi það engu breyta um áætlanir Þjóðhagsstofnunar um áhrif af þessum aðgerðum. Skyldu íslenskir launþegar ekki vera farnir að þekkja lyktina af slíkum ráðstöfunum? Skyldu Íslendingar almennt ekki vera farnir að læra af reynslunni, sjá að svona aðgerðir skila árangri á einu verðbótatímabili, en síðan er árangurinn smádvínandi eftir því sem lengra líður og innan nokkurra mánaða er allt fallið í sama farið aftur? Það er nákvæmlega þetta sem mun gerast á árinu 1981. Þessi ráðstöfun 7% lækkun á launum, felst í því að launahækkunin frá því s. l. hausti, sem ekki var innistæða fyrir og hefði því komið út í aukinni verðbólgu, er tekin aftur og verðbólgan lækkuð sem því nemur. Í septembermánuði í haust munum við svo standa í sömu sporum og við stóðum í septembermánuði á s. l. hausti. Við stöndum þá uppi með um eða yfir 50% verðbólgu. Þá eru kjarasamningar fram undan og þá hefst sami hringdansinn á nýjan leik. Þetta vita allir hér inni. Þetta höfum við í fjh.- og viðskn. fengið upplýst frá þeim sérfræðimenntuðu ráðunautum sem til okkar hafa komið, og þetta hlýtur allur almenningur að hafa á tilfinningunni. Ráðstafanir ríkisstj. eru sem sé eingöngu fólgnar í því að skapa sér ofurlítið olnbogarými um nokkurra mánaða skeið á fyrstu mánuðum ársins 1981, en þegar kemur fram yfir mitt það ár er aftur fallið í sama gamla farið.
Herra forseti. Þingflokkur Alþfl. mótaði afstöðu sína til þessa frv. grein fyrir grein þegar það var til meðferðar í Ed. Alþingis og þær brtt. voru síðan fluttar á sérstöku þskj. og gerð ítarlega grein fyrir þeim, bæði í nál við það tækifæri og eins í ræðum þm. Alþfl. í Ed. Svo að farið sé mjög fljótt yfir sögu um þessar till., sem nú eru endurfluttar, eru þær þessar:
Við 1. gr. höfum við enga brtt. að gera. Við höfum ekkert á móti því, að þeirri verðstöðvun, sem haldið hefur verið með mjög takmörkuðum árangri síðasta áratug, verði haldið áfram, en við gerum okkur ekki vonir um að það beri umtalsverðan árangur að hafa verðstöðvun á pappírnum á áttunda áratugnum, eins og allir neytendur vita. Við sjáum engu að síður ekki ástæðu til að gera brtt. við þessa grein.
Eins og ég vék að við 1. umr. málsins gengur efnisákvæði 2. gr. ekki saman við markmið 3. gr., þ. e. það getur einfaldlega ekki farið saman að auka verðtryggingu á innlánum í bönkum og lækka vexti á útlánum. Ef menn ætla að auka verðtryggingu á innlánsfé í bönkum, eins og gera á samkv. 3. gr., hljóta bankarnir að svara því með því að hækka vexti á útlánum sínum, ella gengur dæmið ekki upp í peningabúskap bankanna. 2. og 3. gr. eru því marklausar. Önnur hvor greinin hlýtur að láta undan, annaðhvort ákvæði 2. gr. um vaxtalækkun eða ákvæði 3. gr. um bættan hag sparifjáreigenda. Reynslan ein getur skorið úr um hvor greinin það verður sem lætur í minni pokann. Við þm. Alþfl. höfum þess vegna í staðinn fyrir þessar tvær greinar lagt til að inn í frv. komi sem ákvæði til bráðabirgða efnisatriði í frv. sem Kjartan Jóhannsson, formaður Alþfl., ásamt Alþfl.-mönnum í Ed. hefur flutt þar í vetur um bættan hag sparifjáreigenda og aukna aðstoð við húsbyggjendur. Þetta er 1. brtt. sem við flytjum og er flutt á þskj. 528.
Við þriðja efnisatriði brbl., sem fram kemur í 7. gr., þar sem ríkisstj. er gert heimilt að fresta framkvæmdum í samþykktum fjárlögum og í ósamþykktri lánsfjáráætlun, gerum við einnig brtt.: Í fyrsta lagi þá, að ríkisstj. verði vissulega heimilað að fresta framkvæmdum þrátt fyrir ákvæði fjárlaga, en tilgreint skuli við afgreiðsluna hvaða fjárhæðum slík framkvæmdafrestun megi nema og jafnframt hafa svo eðlileg og sjálfsögð vinnubrögð, að við ákvörðun um frestun á slíkum framkvæmdum skuli leitað til fjvn. Það þarf væntanlega ekki að rökstyðja fyrir alþm. að það eru nauðsynleg og sjálfsögð vinnubrögð.
Þar sem fjvn. fjallar um allar framkvæmdir ríkisins og leggur mikla vinnu í þetta á haustdögum og afgreiðir síðan fjárlög með slíkum framkvæmdatölum er að sjálfsögðu eðlileg krafa alþm., þegar Alþingi veitir ríkisstj. heimild til að fresta einhverjum ótilteknum framkvæmdum, að haft sé samráð við fjvn. um slíka frestun. Við leggjum fram brtt. um að svo skuli gert. — Jafnframt viljum við að heimild ríkisstj. til að fresta framkvæmdum samkv. ósamþykktri lánsfjáráætlun verði felld út úr lögunum sem við ræðum hér. Það getur vel komið til greina að veita ríkisstj. heimild til að fresta framkvæmdum samkv. lánsfjáráætlun, en slíka frestunarheimild á þá að veita við afgreiðslu lánsfjárheimildarlaga sem bíða afgreiðslu þingsins, en ekki að veita frestunarheimildina fyrst og afgreiða lögin síðar. Frestunarheimildin og afgreiðslan á lögunum, sem frestunarheimildin á við, eiga auðvitað að verða samferða í gegnum þingið.
Meginatriðið í brtt. okkar Alþfl.-manna er hins vegar við fjórða efnisatriði frv., þ. e. við það efnisatriði frv. að lækka laun með lögum um 7% 1. mars. Nú kemur það engum á óvart. Það hefur verið skoðun Alþfl. og við höfum oft haldið því fram og ekkert legið á þeirri afstöðu okkar, að við þær efnahagsaðstæður sem Íslendingar hafa búið við á umliðnum árum sé tómt mál um að tala að veruleg hækkun á launum til allra þegna samfélagsins standist, slík peningalaunahækkun verði aðeins til þess að auka á verðbólguvandann og ef menn telji óhjákvæmilegt að veita einhverja hækkun peningalauna verði slík hækkun að miðast við þá sem búa sannanlega við lökust kjör. Nú hefur það hins vegar gerst, að samið hefur verið um allverulega peningalaunahækkun, sem allir, að því er virðist, og þá ekkert síður forsvarsmenn verkalýðsfélaga en aðrir, telja að ekki hafi verið raunhæf og ýmsar aðrar aðferðir hefðu e. t. v. getað veitt raunhæfari kjarabætur en peningalaunahækkanirnar sem samið var um.
Í því sambandi vil ég minna á að sú var afstaða Alþfl. og verkalýðsforustu Alþfl. við kjarasamningagerðina í sumar og haust að leggja áherslu á að menn reyndu að ná kjarabótum með öðrum aðferðum en samningum um beinar peningalaunahækkanir. Við lögðum í þessu sambandi sérstaka áherslu á tvennt: Aðgerðir í skattamálum fyrir launafólk og aðgerðir í tryggingamálum fyrir það fólk sem ber úr býtum svo lág laun að það greiðir ekki skatta, og aðra lágtekjuhópa. Þetta var sú afstaða sem Alþfl, og verkalýðsforingjar Alþfl. hver um annan þveran höfðu við undirbúning samninganna í sumar og haust, en á þessa afstöðu var því miður ekki hlustað þá, heldur tekin sú ákvörðun af forsvarsmönnum Alþýðusambandsins og BSRB að leggja áherslu á peningalaunahækkunina, þó svo þeir mættu vita sjálfir og virðast viðurkenna nú að slíkar hækkanir skili engum árangri öðrum en aukinni verðbólgu.
En gott og vel. Menn virðast, m. a. vinur minn hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson og aðrir verkalýðsleiðtogar, vera opnari fyrir slíkum úrræðum á vetrinum 1980–1981 en þeir voru sumarið 1980, og er ekkert nema gott um það eitt út af fyrir sig að segja.
En ég legg áherslu á og vek athygli á því, að ekkert af slíku er að finna í frv. þessu til l. um ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu. Það er ekki eitt aukatekið orð um það sem ætti að koma í staðinn fyrir þessa 7% kaupmáttarskerðingu. Þar hefur Alþb., sem oft er kallað forustuflokkur ríkisstj., ekki haft fyrir því að setja svo mikið sem einn stafkrók um það sem koma eigi í staðinn fyrir þessa launalækkun. Þeir eru fyrst farnir að tala um það, þeir heiðursmenn, nú eftir að Alþingi er komið á fremsta hlunn með að afgreiða staðfestingarfrv. á þessum brbl. sem Alþb. setti ásamt öðrum stjórnarsinnum á síðasta degi hins gamla árs. Þeir höfðu ekki fyrir því við það tækifæri að beita afli sínu í ríkisstj. til að setja eitt aukatekið orð um einhverja þá aðgerð sem gæti orðið til þess að létta þessari kjaraskerðingu af fólki, ekki einu sinni því fólki sem við lægstu kjörin býr. Ráðh. Alþb. og þm. eru alltaf með munninn uppi um öryggis- og varnarmál. Þeir geta talað nógu digurbarkalega þegar rætt er um einhver mál úti í löndum eða varnarliðið á Keflavíkurflugvelli eða einhverjar framkvæmdir þar. (Gripið fram í.) Þeir þegja að vísu um hann, en í Þjóðviljanum gapa þeir engu að síður um þessi mál á hverjum einasta degi. Þar hefur maður varla annað lesið frá áramótum en einhverjar langlokur um utanríkismál. En þegar kemur að því að krefjast þess, að eitthvað sé sett inn fyrir lægst launaða fólkið, t. d. fyrir það fólk sem ekki nýtur neins nema bóta almannatrygginganna, um leið og afgreidd er 7% almenn launalækkun í landinu, sem líka tekur til þessa fólks, þá þegir Alþb. Ekki eitt einasta aukatekið orð um slíkar ráðstafanir var sett inn í brbl. ríkisstj. á s. l. ári — ekki eitt orð, ekki neitt hefur þar verið sett inn enn. Það leggst lítið fyrir kappana, hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson og félaga hans úr Alþb., að standa að slíku.
Herra forseti. Ég á ekki von á því, að hv. þm. og félagar hans hafi verið kjörnir á Alþingi af verkafólki, t. d. hér í Reykjavík, til að standa þannig að málum, enda töluðu þeir nokkuð á annan veg fyrir síðustu kosningar en þeir tala hér.
Við Alþfl.-menn leggjum til að inn í þetta frv. komi ráðstafanir fyrir almennt launafólk og lágtekjufólk um aðgerðir annars vegar í skattamálum og hins vegar í tryggingamálum. Þessar aðgerðir voru sérstaklega skýrðar í nál í Ed. þar sem rakin voru áhrif þeirra lið fyrir lið. Þetta er til í prentuðu þskj., 454, sem allir þm. hafa séð.
Ég ætla ekki að lengja mál mitt með því að fara frekar út í þá sálma, aðeins að bæta því við, að til viðbótar þeim till., sem fluttar voru í Ed., mæli ég fyrir tillögu um að sá háttur verði tekinn upp að nýju að skattskrá verði jafnan gefin út strax eftir álagningu, en það ákvæði var fellt úr lögum og hefur ekki gilt s. l. ár. Niðurstaðan hefur orðið sú, að þó að álagningin hafi farið fram á s. l. sumri, fyrir bráðum heilu ári, hefur skattskrá enn ekki komið út og fólki enginn kostur gefist á því að skoða skattskrána, eins og gerðist áður fyrr, og reyna að gera sér raunverulega grein fyrir gjöldum sínum og sinna samanborið við útsvör, tekjuskattsgreiðslur og skattgreiðslur ýmissa annarra aðila í þjóðfélaginu. Ég tel mjög miður fara að svo langur tími líði á milli þess sem álagning fer fram og þangað til skattskrá er gefin út því að skattskráin hefur verið tæki sem hefur gefið mönnum ekki bara upplýsingar um eigin skattgreiðslu og annarra, heldur líka verkað til mikils aðhalds og til þess að setja pólitískan þrýsting m. a. á þessa stofnun til þess að fá leiðréttar ýmsar misfellur sem koma í ljós við álagningu skatta, þar sem fólkið hefur fengið að sjá það svart á hvítu hvernig við álagningu, t. d. tekjuskatts, á sér stað gróflegt misrétti í þessu þjóðfélagi og grófleg mismunun á milli einstakra þjóðfélagsþegna.
Það eru ýmis rök fyrir því að rétt sé að bíða með útgáfu skattskrár þangað til ekki aðeins álagning hefur farið fram, heldur búið er að úrskurða um öll kæru- og vafaatriði sem upp koma, svo að sú skattskrá, sem út kemur, sé ævinlega rétt. En það nær auðvitað ekki nokkurri átt þegar reynslan er sú, að heil misseri líða frá því að álagning hefur farið fram án þess að skattskrá komi út. Þá er betra að hafa gamla lagið á þó svo því fylgi nokkrir ágallar. Þess vegna höfum við Alþfl.-menn lagt til nú í Nd. að horfið sé til hins fyrra horfs í þessu sambandi og skattskrá gefin út að álagningu lokinni. Síðan gæti að sjálfsögðu komið til greina að gefa út skattskrá í heilli mynd að nýju þegar lokið er úrskurði allra kærumála, en það er auðvitað framkvæmdamál sem er í höndum ríkisskattstjóra og fjmrh.
Ég heyri það, herra forseti, að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson tekur úr sæti sínu undir þessar ábendingar mínar. Ég vænti þess þá að við Alþfl.-menn og flytjendur þessa máls megum eiga von á liðsinni hans þegar gengið verður til atkv. Varla getur þetta flokkast undir flokkspólitískt stórmál, heldur er aðeins ætlað að lagfæra misfellur sem menn geta orðið sammála um að séu á gildandi skattalögum.
En viðvíkjandi hv. þm. Guðmundi J. Guðmundssyni og þeim Alþb.-mönnum, herra forseti, er sú afgreiðsla, sem hér fer fram, einstaklega lærdómsrík. Alþb. leikur hlutverk kamelljónsins í íslenskri pólitík. Það skiptir um lít eftir umhverfi. Það skiptir um lít eftir því hvort það er í ríkisstj. eða utan ríkisstj. Til að sýna fram á litbrigði Alþb. hef ég — bæði í gamni og alvöru — tekið saman nokkuð óvenjulegt nál. að vísu, en ég tel að varpi talsvert miklu ljósi á þennan tvískinnung þeirra Alþb. manna. Þetta nál. tel ég að eigi erindi inn á hvert einasta launþegaheimili í landinu og þá ekki síst til þeirra sem kosið hafa Alþb. á umliðnum árum. Ég er sannfærður um það m. a., að ýmsir fyrrv. forustumenn Alþb., þ. á m. hv. fyrrv. þm. Lúðvík Jósepsson, muni hafa bæði skemmtun, en þó nokkrar áhyggjur af því að lesa það sem í þessu nál. stendur.
Staðreyndin er nefnilega sú, að með kynslóðaskiptunum, sem orðið hafa í Alþb., hefur öllu því gamla, sem áður auðkenndi þennan flokk, verið kastað fyrir björg. Nú er það aðeins eitt sem máli skiptir og það er að halda í völdin. Svo langt ganga þessir menn um fráhvarf frá sínum algeru grundvallaratriðum, eins og þau voru áður fyrr, svo að annað dæmi sé nefnt, að formaður þingflokks Alþb., hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, prédikar það í röðum herstöðvaandstæðinga hér á Íslandi að menn megi ekki láta glepjast af framkvæmdunum, sem sé verið að ráðgera á Keflavíkurflugvelli í sambandi við styrkingu varna landsins, vegna þess að þetta sé alþjóðlegt samsæri kapítalismans til þess að hrekja Alþb. út úr ríkisstj. Auðvitað megi Alþb.-menn í ríkisstj. ekki láta undan árásum slíkra afla, heldur veita þeim viðspyrnu. Ég leyfi mér að spyrja: Hvernig á að veita þeim viðspyrnu? Auðvitað með því að láta eftir þeim, láta þá ekki komast upp með það að hrekja Alþb. út úr ríkisstj. með framkvæmdum í varnarmálum, heldur eigi Alþb. að samþykkja slíkar framkvæmdir svo að þessu samsæri hins vesturheimska kapítalisma verði hrundið. Þetta er það sem þeir Alþb. menn í raun og sannleika halda fram og er m. a. styrkt með því að í nýlega útkomnu fréttabréfi miðstjórnar Alþb. er hinn nýkjörni formaður flokksins, hæstv. félmrh. Svavar Gestsson, að rökstyðja það sérstaklega að þessi þrjú flugskýli, sem eigi að byggja þarna á Keflavíkurflugvelli, séu engin stórframkvæmd, heldur eðlilegt viðhald. Hvað skyldu nú forverar hans í starfi segja um slíkan rökstuðning?
Þó er einn hópur manna sem ég hef sérstakar áhyggjur af í þessu sambandi og sé satt að segja eftir í þá hervæðingu hinnar nýju kynslóðar sem átt hefur sér stað í Alþb. Það er ákveðinn hópur af verkalýðsforingjum Alþb. Örlög þessara manna eru þau að vera nokkurs konar skiptimynt fyrir hina pólitísku forustu Alþb. í sameiningu um stjórnarstóla. Þegar flokkar setjast að loknum kosningum niður við borð til að semja um ríkisstj. mæta þar af hálfu Alþb. hvítflibbakommarnir á Þjóðviljanum, fyrrv. framsóknarmenn og aðrir slíkir blúndubolsar, eins og hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson kallaði þá í leiðara í Alþýðublaðinu nýverið, en aðrir menn sjást þar ekki, m. a. hvorki hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson né aðrir verkalýðsforingjar Alþb. Þeir eru víðs fjarri. Það sem þessi nýja forustukynslóð gerir, er að hún segir — að vísu undir rós: Nú geta viðsemjendur okkar valið. Ef þið takið okkur með í ríkisstj. fáið þið Guðmund J. og Ásmund og alla þessa verkalýðsforingja með. Þið fáið þá í skiptum fyrir stólana og þurfið ekki að hafa neinar áhyggjur af þeim eða hreyfingum þeirra í því sem þið munuð taka ykkur fyrir hendur. Ef þið hins vegar takið okkur ekki með og látið okkur ekki hafa ráðherrastóla munu þessir menn beita áhrifum sínum í verkalýðshreyfingunni og gera allt vitlaust í landinu. Þetta er hlutverk þessara ágætu Alþb.-manna, forustumanna Alþb. í verkalýðshreyfingunni, eins og hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar sem hér situr. Það er hlutverk þeirra að vera spegilfögur skiptimynt í hrossakaupum Alþb. við aðra flokka um ráðherrastóla. Ef Alþb. fær ráðherrastól fáið þið Guðmund, ef Alþb. fær ekki ráðherrastól skuluð þið fá að finna fyrir Guðmundi. — Þetta er samningsaðstaðan hjá þeim, og hlutverk verkalýðsforingja Alþb. er síðan að fara eftir því sem þessir hvítflibbakommar og blúndubolsar skipa þeim að gera og segja: Þið eigið að tala svona fyrir kosningar og svo eigið þið að gera þveröfugt eftir kosningar.
Þetta held ég að fólki sé að verða ljóst, herra forseti. Ég held að fólki sé að verða þetta ljóst, m. a. vegna þess að það vita þetta engir betur en verkalýðsforingjar Alþb. sjálfir. Halda menn t. d. að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson hafi flúið að gamni sínu af hólmi til Stykkishólms þegar var verið að afgreiða tekjuskattsálagningu á launámenn fyrir nokkrum mánuðum? Halda menn að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson hafi gert það að gamni sínum að bregða sér af bæ og setjast á þing Sameinuðu þjóðanna þegar verið var að afgreiða skattlagningu á sælgæti og gosdrykki sem leiddi til fjöldauppsagna í sælgætis- og gosdrykkjaiðnaði hér í Reykjavík? Það er ekki að gamni sínu sem menn hlaupa svona af bæ, nýkjörnir þm. Nei, það var út af því, herra forseti, að þessum mönnum liður illa í því helsi sem búið er að hneppa þá í af blúndubolsunum í Alþb., hinni nýju valdasveit. Það þarf ekki annað, herra forseti, en líta til míns ágæta vinar, hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar, í sæti sínu þarna til að sjá hversu illa honum líður.
Þessi tvískinnungur Alþb. kemur m. a. mjög glöggt í ljós ef menn bera saman það, sem Alþb. sagði í blaði sínu 1978, og það, sem Alþb. segir í blaði sínu Þjóðviljanum — eða segir reyndar ekki — árið 1981.
Árið 1978 stóð þannig á, að 22. júní sumarið áður og 25. okt. um haustið voru undirritaðir kjarasamningar við Alþýðusambandið og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja sem þáv. ráðh. ýmist undirrituðu eða áttu mikinn þátt í. Þegar komið var fram í febr. 1978 og nokkrir mánuðir liðnir frá því að þessir samningar voru undirritaðir afnám þáv. ríkisstj. samningsákvæði með lögum. Núna standa mál þannig, að 20. ágúst í haust og 27. okt í haust var nákvæmlega sams konar kjarasamningur gerður við Alþýðusamband Íslands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og hæstv. fjmrh. ríkisstj., Ragnar Arnalds, undirritaði annan þennan samning eigin hendi. Aðeins örfáum vikum síðar rauf hæstv. ríkisstj. þetta samkomulag með brbl. Menn geta deilt um hvort brbl. ríkisstj. núna séu verri eða betri en lög Geirs Hallgrímssonar 1978, menn geta haft sína skoðun á því að þessi lög, sem nú eru sett, séu eitthvað skárri en aðgerðirnar 1978, en eðlið er hið sama. Kjarasamningum, sem menn hafa gert og ráðherrar sjálfir undirritað, er rift með lagaboði, með valdboði, nokkrum vikum seinna og ákveðið með lögum hvernig eigi að greiða laun í landinu. Það skiptir engu máli í þessu sambandi þó að menn deili um að önnur lagasetningin sé verri en hin eða segi að önnur lagasetningin sé hinni skárri. Það er stigsmunur, en ekki eðlismunur. Rift er með valdboði löglega gerðum kjarasamningum og ákveðið með valdboði hvað greiða skuli í laun. Það er mergurinn málsins, en ekki hvort síðari lögin séu verri eða betri.
Hvernig brást Alþb. við þessu 1978 og hvernig bregst það við þessu nú í ár, 1981? Það er eins og að skoða svart og hvítt að bera þetta tvennt saman. Það er eins og að skoða kamelljónið fyrir og eftir litbrigðin. Til gamans hef ég tekið saman í þessu litla nál. nokkrar ívitnanir í Þjóðviljann fyrir og eftir.
Alþb. kvaddi, strax og fréttist um slík áform ríkisstj., verkalýðsmálaráð sitt — 200 manna ráð — saman til fundar 1978. Mér er ekki kunnugt um að slíkt ráð hafi komið saman í ár. Þjóðviljinn réðst á þáv. stjórnvöld fyrir gróf svik, grófustu svik á gerðum samningum og ósvífna árás 1978. 1981 kemur einn „svikarinn“ fram í Þjóðviljanum og segir: Ég færi ykkur aðeins slétt skipti. Ég ætla mér að ákveða með lögum hvaða laun þið eigið að fá. Þið eigið eftir seinna á árinu að fá sitthvað frá mér í staðinn.
1978 sagði þáv. ritstjóri Þjóðviljans, núv. formaður Alþb., svo í blaði sínu um þau áform ríkisstj. að ógilda kjarasamninga verkafólks með lögum: „Alþingi götunnar þarf að sýna hrokagikkjum valdsins við Austurvöll hver það er sem ræður.“ Þetta sagði þáv. ritstjóri Þjóðviljans, Svavar Gestsson: „Alþingi götunnar þarf nú að sýna hrokagikkjum valdsins hér við Austurvöll hver það er sem ræður.“
Hvað gerir sami maður núna? Nú er hann kominn hingað inn í þetta hús. Nú er hann orðinn einn af þessum „hrokagikkjum valdsins“ og ekki bara alþm., heldur ráðh. Hvað gerir hann? Hann setur brbl. um að afnema gerða kjarasamninga með valdboði og ákveða mönnum í þessu landi laun með valdboði, og hann spyr hvorki Alþingi Íslendinga né „Alþingi götunnar“ um gerðir sínar. Slík eru nú litbrigði kamelljónsins.
Sami maður sagði í leiðara Þjóðviljans 12. febr. 1978 um ríkisstj. sem þannig hegðaði sér, með leyfi hæstv. forseta: „Burt með ríkisstj.! Burt með ráðherra sem svíkja í dag þá samninga, sem þeir gerðu í gær um kaup verkafólks! Burt með þá valdsmenn úr stjórnarráðinu og Alþingi sem nota sitt pólitíska vald til þess að níða niður umsamin lífskjör venjulegs daglaunafólks.“
Eru ekki ráðh. á Íslandi í dag? Hafa þeir ekki svikið samninga sem þeir gerðu fyrir nokkrum mánuðum við starfsmenn ríkisins? Hafa þeir ekki notað sitt pólitíska vald til að svipta m. a. verkamennina hans Guðmundar J. Guðmundssonar í Dagsbrún yfir 8000 kr. á viku? Jú, það hafa þeir gert. Og hvað segir Þjóðviljinn við því? Þjóðviljinn segir: Ég er ráðherrahollt blað. Ég tek ekki þátt í neinni gagnrýni á núv. ríkisstj. af því að ég er svo ráðherrahollur.
Þjóðviljinn var ekki aldeilis ráðherrahollur 1978. Af hverju er hann svona ráðherrahollur í dag? Jú, vegna þess að maðurinn, sem skrifaði leiðarann 1978 um „Alþingi götunnar“ og „Burt með ríkisstj.“, er sjálfur orðinn ráðh.
Hvernig hefur þáttur þess eina þm. af ellefu í röðum Alþb., sem er í forsvari fyrir launafólk innan Alþýðusambands Íslands, verið? Af þessum ellefu þm. Alþb. er aðeins einn sem menn hafa séð ástæðu til að taka úr hópi þessa fólks. Hinir eru ýmist blúndubolsar eða hvítflibbakommar af Þjóðviljanum eða þá hlaupadrengir frá Framsfl. En hvert skyldi nú vera hlutverk þessa eina, síðasta móhíkanans í þingflokki Alþb.? Jú, hlutverk hans er að tala með rödd Jakobs þó að hendurnar séu Esaús. Hlutverk hans er að prédika sem forsvarsmaður alþýðusamtakanna í landinu eins og hann sé að tala með rödd óhlutdrægs launþegaforingja, en í raun réttri er það hans hlutverk fyrst og fremst að tala þar og sitja þar sem Alþb.-maður, flytja þar mál Alþb. og tala eins og hvítflibbakommarnir, flokkaflækingarnir og blúndubolsarnir segja honum að tala. Það er hans hlutverk. Hans hlutverk er að tala með rödd Jakobs þó að hann taki á launafólkinu með höndum Esaús.
Og að hugsa sér, herra forseti, einhvern tíma hefðu það þótt tíðindi að ekki er finnanlegt eitt einasta aukatekið orð, hvorki eftir þennan þm. né eftir þessum þm. haft í Þjóðviljanum, um kjaraskerðingaráform ríkisstj. 1981. Þessi hv. þm. var svo málglaður 1978 að varla mátti opna Þjóðviljann öðruvísi en að horfa á eitthvað eftir honum haft eða frá honum komið. Hann segir ekkert í Þjóðviljanum í janúar, hann segir ekkert í Þjóðviljanum í febrúar og hann segir ekkert í Þjóðviljanum í mars á árinu 1981 — ekki eitt aukatekið orð. Svo langt var gengið 1978 að þegar þáv. formaður Verkamannasambands Íslands, sem enn er formaður Verkamannasambandsins, heyrði á skotspónum að þáv. ríkisstj. kynni að vera að brugga einhver launráð um að rifta þeim samningum sem hún hafði gert, m. a. við starfsfólk ríkisins, taldi hann ástæðu til að kalla framkvæmdastjórn Verkamannasambands Íslands saman til fundar og álykta um málið. 1981 er hann innsti koppur í búri ríkisstj. og hefur allra manna fyrstur í verkalýðshreyfingunni vitað um að slíkar aðgerðir væru á döfinni, en hann sér enga ástæðu til að kalla framkvæmdastjórn Verkamannasambands Íslands saman til fundar fyrr en 5. febr., þegar meira en heill mánuður var liðinn frá því að brbl. um samningsrofið voru sett. Og hvað skyldi nú framkvæmdastjórn Verkamannasambands Íslands hafa rætt á þessum fundi? — Dagskráin er að sjálfsögðu ákveðin af formanninum. — Hver skyldi nú dagskrá fundarins hafa verið? Skyldi nú ekki hafa verið búið að undirbúa ályktun og afstöðu Verkamannasambands Íslands til þessara brbl. á öllum þessum tíma? Nei, ekki eitt einasta orð. Málið var ekki á dagskrá. Málið var ekki tekið fyrir þegar framkvæmdastjórn Verkamannasambands Íslands kom saman til fundar 5. febr. 1981. Auðvitað getur formaður hætt fyrir slík mistök og gleymsku. Hann hefði getað það þegar hann kallaði framkvæmdastjórn Verkamannasambands Íslands saman til fundar á ný skömmu síðar eða 18. febr. En þá var málið ekki heldur á dagskrá. Og þegar framkvæmdastjórn Verkamannasambands Íslands kom saman til fundar 3. mars var ekki heldur rætt um málið. Verkamannasamband Íslands hefur enga skoðun á þessum aðgerðum ríkisstj. árið 1981. Þetta afl íslenskra launamanna, sem tók forustu í andófinu árið 1978, er skoðanalaust árið 1981. Og hvers vegna skyldi það vera? Skýringin er bara ein. Skýringin er sú, að þeir hæstv. ráðherrar Svavar Gestsson, Ragnar Arnalds og Hjörleifur Guttormsson eru í ríkisstj., en ekki stjórnarandstöðu. Þess vegna hefur Verkamannasamband Íslands ekki skoðun á brbl. um að rifta launasamningum launafólks.
Það var dálítið gaman að rekast á tilvitnun í fræga ræðu hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar frá útifundi 1. maí 1978. Þar sagði hann orðrétt, herra forseti:
„Í hugum alþýðufólks eru samningar skuldbindandi. Almennt alþýðufólk lítur á samning þannig að honum megi ekki rifta eða hlaupast frá. Það kemst ekki upp með að greiða ekki skatta sína og skyldur né neita að greiða af íbúðum sínum eða öðru sem það festir kaup á. En stjórnvöld hafa á þessu aðrar skoðanir, enda kemur spillingin ætíð ofan frá.“
Ég man meira að segja eftir áherslunum sem hv. núv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson lagði á þessi orð sín 1. maí 1978. En hvaðan kemur spillingin nú, herra forseti? Kemur hún nú að neðan kannske? Er nú spillingin kannske komin í grasræturnar? Hvernig stendur á því að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson endurtekur nú ekki þessa 1. maí-ræðu sína aftur? Kannske væri hægt að fá hv. þm. til þess að fara á 1. maí-fund í Stykkishólmi eða jafnvel í Flatey, þar sem bara eru fjórir íbúar, eins og hv. þm. tók fram, og er nú ekki á mikið hætt þó að hv. þm. leyfði sér að hafa skoðun þar. Hvernig væri að hv. þm. héldi 1. maí-ræðu í Flatey? Honum væri sennilega óhætt að segja þar að spillingin kæmi ofan frá. Þaðan kemur hún ekki lengur, — ekki eftir að Alþb. er komið í ríkisstj. En hvaðan kemur spillingin þá?
Hv. þm. flutti í upphafi ræðu sinnar 1. maí 1978 mjög athyglisverða tilvitnun í Íslandsklukkuna, þar sem hann sagði frá samtali tveggja brotamanna við Jón Hreggviðsson í þrælakistunni á Bessastöðum, og sat þar annar inni, Ásbjörn Jóakimsson, — mig minnir að ég fari rétt með nafn hans — fyrir að neita að ferja kóngsins mann yfir Skerjafjörð. Hv. þm. sagði í 1. maí-ræðu sinni 1978 við íslenska launþega: Hví megið þið ekki ferja kóngsins mann yfir Skerjafjörð. Nú megið þið ekki veita þessari ríkisstj., sem spillingin kemur frá, atbeina til eins eða neins, jafnvel ekki rétta henni hönd eins og drukknandi manni. — En hver er nú orðinn ferjumaður hvers? Hvenær ferjar maður mann og hvenær ferjar maður ekki mann? Ég sé nú ekki betur en hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson sé orðinn ferjumaður ríkisstj. og ráði ansi miklu sem slíkur, því að hv. ferjumaður ríkisstj. ræður því, hvort þetta frv. hér kemst yfir ána eða ekki. Ef hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson greiddi atkv. gegn staðfestingu brbl. um afnám samninga með valdboði mundi það mál ekki komast yfir fjörðinn, þá mundi það sökkva á miðri leið. Hv. ferjumaður er þá farinn að ráða svona miklu. Það verður gaman að sjá þegar atkvæði falla hér að lokum eftir þessa umr. hvort hv. þm. ætlar að ferja ríkisstj. með þessu föruneyti yfir fjörðinn eða hvort hann ætlar að láta fyrir sér fara eins og Ásbirni Jóakimssyni að láta loka sig niðri í þrælakistu. Það yrði ekki á Bessastöðum, en það mætti sjálfsagt finna einhverja slíka kistu í innviðum Alþb. fyrir hv. þm. og nokkuð öruggt að þar fyndist blúndubolsi sem mundi vilja nota lykil sinn til að loka þeirri kistu kirfilega á eftir hv. þm.
Hv. þm. sagði í sömu ræðu, með leyfi forseta: „Lítum aðeins nánar á siðferðið í þessum ráðstöfunum“ — þ. e. að ógilda kjarasamninga launafólks með valdboði, — ,,Ráðherrar og aðrir æðstu valdsmenn fá milli 40 og 50 þús. kr. hækkun í verðlagsbætur fyrir marsmánuð. Almennt fólk fær 6–7 þús. kr.“
Hvað um siðferðið? spyr hv. þm. En hvað fá ráðherrar nú miklar verðlagsbætur fyrir marsmánuð? Hvað fær láglaunafólkið miklar verðlagsbætur fyrir sama mánuð? Eru einhverjar breytingar á þessu gerðar við afgreiðslu brbl. ríkisstj.? Nei. Hvað þá um siðferðið, hv. þm.? (GJG: Það er nú ekki vel gott enn þá.)
Það er ósköp eðlilegt að mottóið hafi verið valið slíkt við lok þessa kafla sem það er valið: „Röddin er rödd Jakobs, en hendurnar eru hendur Esaús.“ Það er nákvæmlega þetta sem menn eru að sjá, sem óbreytt launafólk er að horfast í augu við nú á þessum dögum. Er lærdómsríkt fyrir þetta fólk og vel þess virði að hafa svona ríkisstj. um nokkurt skeið í landinu ef fólk verður almennt vart við það og sér það, horfist í augu við þá staðreynd að hjá verkalýðsforingjum Alþb. má vera að reynt sé að láta röddina hljóma sem rödd Jakobs, en hendurnar á þeim eru hendur Esaús, hendur flokksins. Þeir tala eins og flokkurinn fyrirskipar, gera eins og flokkurinn segir. Þeir taka þátt í litbrigðum kamelljónsins, láta blúndubolsana segja sér fyrir verkum, láta þá koma til samstarfsaðila Alþb., sem eru að semja við þennan flokk um samstarf í ríkisstj., og segja: Ef þið látið okkur hafa ráðherrastól skuluð þið fá Guðmund J., Ásmund og Guðjón og þessa menn. Þá verða þeir til friðs. Takið þið okkur ekki með skuluð þið fá að kenna á þessum sömu mönnum. — Þetta er ekkert leyndarmál, vegna þess að samstarfsaðilar Alþb. í núv. ríkisstj., bæði hæstv. forsrh. og fylgismenn hans og ekki síður framsóknarmenn, lýsa því við hvern sem heyra vill að ástæðan fyrir því, að Alþb. var valið sem samstarfsaðili, sé sú ein að það bauð þessa verkalýðsforingja í skiptum, en þessir verkalýðsforingjar Alþb. séu svo miklir flokksmenn að þeir láti blúndubolsana segja sér fyrir verkum.
Halda menn, herra forseti, að það sé að ástæðulausu að Félag bókagerðarmanna hefur ekki viljað taka þátt í þessum skrípaleik lengur? Haldið þið að það sé að ástæðulausu að ekki heyrist lengur í Alþýðusambandinu frekar en það sé ekki til? Haldið þið að það sé að ástæðulausu að nú fyrst, í fyrsta skipti um langt skeið, má heita að það sé engin forusta til í Alþýðusambandinu, í fyrsta skipti um langt árabil sem forusta Alþýðusambands Íslands þorir ekki að hafa skoðun? Það er ekki að ástæðulausu. Það er búið að selja þessa menn mannsali. Þeir hafa verið seldir og keyptir og afhendingin hefur farið fram, meira að segja verið kvittað fyrir opinberlega. Þetta vita auðvitað allir aðilar í Alþýðusambandinu. Halda menn að launafólkið í landinu finni ekki fyrir því að Alþýðusamband Íslands er forustulaust? Halda menn að launafólkið í landinu verði ekki vart við að forusta Alþýðusambandsins hefur enga skoðun? Haldið þið að launafólkið í landinu finni ekki fyrir því að forusta Alþýðusambandsins víkur sér ávallt undan að svara spurningum beint ef til forustunnar er beint spurningum varðandi launakjör fólksins og aðgerðir ríkisvaldsins til að eyðileggja samninga sem gerðir hafa verið með réttum aðferðum milli hinna frjálsu aðila vinnumarkaðarins og milli BSRB og ASÍ? Þetta eru bara fyrstu merkin, herra forseti, þegar stór aðildarsamtök að þessum fyrrum svo voldugu samtökum taka sig saman og neita að halda aðildinni áfram. Það hljóta forustumenn þessara samtaka að vita. Þeir hljóta að gera sér grein fyrir fyrirboðanum sem í því felst. En auðvitað heldur slík þróun áfram svo lengi sem menn reyna að tala með rödd Jakobs, en láta fyrirskipa sér að taka á sínu fólki með höndum Esaús.
Það verð ég að segja að mikill munur var á viðbrögðum Alþýðusambands Íslands og íslenskrar launþegaforustu, á meðan Björns Jónssonar naut á þeim vettvangi, frá ~ví sem nú er. Það var tvennt ólíkt að sjá viðbrögð ASI-forustunnar 1978 eða 1981, þar sem á aðra hlið var skoðun, en á hina hlið skoðanaleysi. Það er ekki út í hött sem hv. þm. Guðmundur J. Guðmundssonar kinkar kolli við þeim ummælum.
Herra forseti. Þegar ég var að blaða í gömlum Þjóðvilja, frá 1978, sá ég tvennt sem vakti athygli mína. Annars vegar árásir blaðsins á þáv. ríkisstj. og hins vegar árásir blaðsins á Alþfl. Ég hef rakið hér með nokkrum orðum árásir blaðsins á ríkisstj., en ekki minnst á árásir blaðsins á Alþfl. Og fyrir hvað skyldu þeir Alþb.-menn og Þjóðviljinn 1978 hafa ráðist á Alþfl.? Fyrir að neita að taka þátt í þeirri grímulausu sjálfsblekkingu sem þeir Alþb.-menn og Þjóðviljamenn viðhöfðu á þeim mánuðum, fyrir að neita að taka undir þau skýlausu loforð, að ef stjórnarandstöðunni yrðu greidd atkv. mundi hún tafarlaust leiða samningana í gildi, fyrir að neita að taka þátt í ólöglegum verkföllum, fyrir að neita að taka þátt í útflutningsbanni o. s. frv., o. s. frv. Annar hvor leiðari Þjóðviljans var árás á þáv. ríkisstj., annar hvor leiðari Þjóðviljans árás á Alþfl. og einstaka Alþfl.-menn með slíkum ásökunum. Það eru margir leiðarar Þjóðviljans, sem ég get lesið upp fyrir menn, með slíkum árásum á núv. þm. Alþfl., eins og hv. þm. Karl Steinar Guðnason og hv. þm. Vilmund Gylfason og fleiri, fyrir að neita að taka undir þennan söng sem Alþb. ástundaði þá um samningana í gildi og þau skýlausu loforð sem þá voru gefin.
Þjóðviljinn sagði 8. júní 1978 að einasta leiðin til að stöðva áform hinna svokölluðu kaupránsafla væri að kjósa Alþb.-menn á þing. Guðmundur J. Guðmundsson sagði í Þjóðviljanum 13. júní að kjörseðillinn væri vopn í kjarabaráttu, með því að greiða Alþb. atkv. sitt fengju menn samningana á ný. „Atkv. greitt Alþb. skilar tafarlausum árangri,“ sagði Þjóðviljinn þriðjudaginn 20. júní. „Sigur fyrir Alþb. tryggir samningana í gildi á ný,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson í Þjóðviljanum 23. júní. „Vinni Alþb. kosningasigur er kaupránsmúr stjórnarflokkanna hruninn,“ sagði Þjóðviljinn 25. júní 1978. Og kosningadag sagði Svavar Gestsson í Þjóðviljanum: „Vonandi mun enginn iðrast þess í fyrramálið hvernig hann greiddi atkv. í dag.“ Skyldu menn hafa iðrast þess, sem greiddu Alþb. og þm. þess árið 1978 atkv. sitt út á þessi skýlausu loforð, hvernig þeir þá létu atkv. falla?
Í Þjóðviljanum 28. febr. 1978 birtist fræg forustugrein undir nafninu: „Ætlar þú að vinna kauplaust í 5–6 vikur fyrir Geir?“ Var þar rætt um Geir Hallgrímsson, þáv. hæstv. forsrh. Í þessari forustugrein voru leiddar líkur að því, að kaupránslög þáv. ríkisstj. mundu hafa af mönnum laun í 5–6 vikur. Þá skorti ekki aldeilis á að Alþýðusamband Íslands eða miðstjórn þess léti frá sér fara alls konar útreikninga, fréttatilkynningar og línurit sem sýndu fram á hvað kaupmáttarskerðingin yrði mikil þá. En hvar eru nú fréttatilkynningarnar? Hvar eru nú línuritin? Hvar eru nú töflurnar? Hvar er nú sá hinn talnafróði maður sem stýrði þessu verki fyrir Alþýðusambandið 1978?
En hvað hefur gerst? Skilaði atkv. greitt Alþb. tafarlausum árangri? Voru samningarnir leiddir í gildi eins og lofað var? Við skulum aðeins athuga málið.
Maður, sem tekur laun samkv. 3. taxta Verkamannafélagsins Dagsbrúnar eftir 4 ár, en 3. taxti Dagsbrúnar er fjölmennasti taxti þess félags, þar eru m. a. hafnarverkamenn og fiskverkafólk, fékk með „sólstöðusamningunum“ tryggt kaup fyrir 40 stunda dagvinnu sem 1. júlí 1977 nam 97 059 kr. á mánuði. 1. 12. 1978, þegar atkv, greitt Alþb. hafði skilað þeim tafarlausa árangri að Alþb. komst í ríkisstj. og Guðmundur J. Guðmundsson á Alþing, fékk þessi maður á mánuði í laun 164 247 kr. Hann hefði átt að fá samkv. „Sólstöðusamningunum“ 172 001 kr. Vangreiddar voru þessum manni 7754 kr. á mánuði. Í árslok 1979, 1. 12., átti þessi verkamaður hjá Dagsbrún að fá á mánuði 270 248 kr., en fékk bara 248 991 kr. Vangreiddar voru þessum manni þá á mánuði 21 254 kr. 1. des. s. l. hefði þessi maður átt að fá, ef „Sólstöðusamningarnir“ hefðu gilt, 441 718 kr. á mánuði, en fékk aðeins greiddar 388 013 kr. á mánuði. Voru honum þá vangreiddar 53 705 kr. á hverjum einasta mánuði. 1. 3. s. l. hefði þessi maður átt að fá 498 935 kr. á mánuði, en fékk aðeins 411 100 kr. og vantaði þá upp á kaupið hans, svo að staðið yrði við loforð Alþb., 87 835 kr. á mánuði. Samtals á þessi maður, sem vinnur á 3. taxta Dagsbrúnar eftir 4 ár, vinnur aðeins dagvinnu, vinnur enga eftirvinnu, kröfu á þá, sem lofuðu honum samningunum í gildi, sem í dag nemur 736 003 kr. sléttum.
Nú spyr ég, herra forseti: Hvert á þessi maður að senda reikninginn? Þennan mann vantar 736 þús. kr. upp á kaupið sitt, — við skulum setja sem svo að hann gefi 3 kr. eftir. Hvert á hann að senda reikninginn? Á hann að senda reikninginn til formanns Alþb., hæstv. félmrh. Svavars Gestssonar? Á hann að senda reikninginn til formanns Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, formanns Verkamannasambands Íslands, hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar? Er nú enginn sem vill fylgja þessum reikningi eftir fyrir Jón Jónsson hafnarverkamann? Það eru ekki góðar vonir sem Jóni Jónssyni eru gefnar því að 1. mars s. l. gengu í gildi brbl., samþykkt og út gefin af ríkisstj. með þessu sama Alþb. í og studd af þessum sömu Alþb.-mönnum, Svavari Gestssyni og verkalýðsforingjanum Guðmundi J. Guðmundssyni. 1. mars s. l. gengu í gildi ný skerðingarákvæði sem höfðu af verkamanni hjá Dagsbrún, sem aðeins hefur dagvinnu til að framfleyta sér á, 27 172 kr. á mánuði til viðbótar þessari kjaraskerðingu. Á næsta vísitölutímabili hefur þessi verkamaður hjá Dagsbrún orðið af röskum 81 þús. kr., sem hann hefði átt að fá ef Alþb. hefði ekki tekið þátt í að setja brbl. á gamlársdag s. l. Þessar 81 þús. kr. á þremur mánuðum nema því að Jón Jónsson hafnarverkamaður í félagi hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar sé látinn vinna 6 daga launalaust fyrir Alþb. og ríkisstj. á því tímabili. Áður hafði þessi sami maður unnið 54 daga launalaust, ef miðað er við loforðið sem hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson og flokksbræður hans í Alþb. gáfu um samningana í gildi. Samtals getur þessi maður því skrifað sig fyrir yfir 60 launalausum dögum fyrir Alþb. — Og hver vill nú vinna kauplaust 5–6 vikur fyrir Geir?
Herra forseti. Þetta kalla þeir Alþb.-menn slétt skipti. Á hverju er þarna um slétt skipti að ræða? Hvað er það sem verkamaðurinn í Dagsbrún hefur fengið fyrir að vinna 54 daga launalaust frá 1. des. 1978? Jú, hann hefur fengið þrjá Alþb.-ráðh. í skiptum. Og hvað fær Dagsbrúnarverkamaðurinn nú í skiptum fyrir að bæta 6 launalausum dögum við frá 1. mars s. l., næsta þriggja mánaða tímabil? Hvað fær hann fyrir þau skipti? Jú, hann fær að hafa þessa þrjá hvítflibbaráðherra og blúndubolsa Alþb. í ráðherrastólum í þrjá mánuði áfram. Þetta kalla þeir Alþb.-menn slétt skipti: á þremur ráðherrastólum og 54 plús 6 launalausum dögum hjá hafnarverkamanni í Reykjavík. Ef eitthvert dæmi skortir enn til að staðfesta litbrigði kamelljónsins held ég að það sé þetta. Og það er von að forusta Alþýðusambandsins hafi ekki á málinu neina skoðun.