24.03.1981
Sameinað þing: 64. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3044 í B-deild Alþingistíðinda. (3169)
199. mál, samráð stjórnvalda við samtök launafólks og atvinnurekenda
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Það er ekki rétt skilið hjá hv. fyrirspyrjanda að ég hafi deilt á hann á þriðjudaginn var hér í Sþ., hvað þá að ég hafi saknað hans. Hitt er rétt, að þar sem ég hafði hugsað mér og nefnt það við hæstv. forseta Sþ. í nokkur skipti í fsp.-tíma hér, að ég væri tilbúinn til að svara fsp. hv, þm., og óskaði eftir því, en það hafði ekki getað orðið í ein þrjú eða fjögur skipti vegna fjarveru eða forfalla hv. þm., þá vildi ég að þetta lægi fyrir, því að eftir fyrri ræðuhöldum og þekktu hugarfari hv. þm. mátti búast við að hann mundi fyrr eða síðar deila á mig fyrir að vera ekki búinn að svara fsp. Þess vegna vildi ég að þetta lægi fyrir, en í þessu fólust engar ádeilur á hv. þm.
Út af fsp. vil ég taka þetta fram:
Með lögum nr. 13 frá 10. apríl 1979 voru sett ákvæði um samráð stjórnvalda við samtök launafólks, sjómanna, bænda og atvinnurekenda. Í 5. gr. laganna segir að verkefni samráðs þessa skuli vera:
„1. Að ræða meginþætti í efnahagsmálum og helstu efnahagsmarkmið ríkisstj. frá ári til árs og til lengri tíma, í því skyni að leggja grundvöll að samræmdum ákvörðunum á sviði opinberra fjármála, peninga- og lánamála, lífeyrismála og verðlagseftirlits af opinberri hálfu, og á sviði kjaramála af hálfu aðila vinnumarkaðarins.
2. Að fjalla um þjóðhags-, fjárfestingar- og lánsfjáráætlanir, tekjustefnu og forsendur þeirra.
3. Að fjalla um önnur þau atriði sem horfa til framfara á sviði atvinnu-, verðlags-, kjara- og launamála og efnahagsmála almennt.“
Þetta er meginefni laganna hvað samráð varðar. En um það eru nánari ákvæði í reglugerð. Þar segir m. a. að í okt. ár hvert skuli forsrh. kalla samráðsaðila til sameiginlegs fundar og leggja fyrir þá þjóðhagsáætlun til kynningar og umfjöllunar.
Lögin gengu í gildi 10. apríl 1979. Þegar núv. stjórn tók til starfa 8. febr. 1980 hafði reglugerð verið sett samkv. lögunum, en að öðru leyti voru þessi ákvæði laganna lítt komin til framkvæmda. Enn er ekki komið fast form á tilhögun þess samráðs sem lögin gera ráð fyrir. Þó hefur margt verið gert sem miðar í áttina.
30. okt. 1980 var haldinn fyrsti fundur með samráðsaðilum samkv. lögunum og fjallað um þjóðhagsáætlun. Fulltrúar frá eftirtöldum aðilum voru boðaðir til fundarins: Alþýðusambandi Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Bandalagi háskólamanna, Sambandi ísl. bankamanna, Stéttarsambandi bænda, Sambandi ísl. sveitarfélaga, Vinnumálasambandi samvinnufélaganna og Vinnuveitendasambandi Íslands.
Á þessum fyrsta formlega samráðsfundi, sem haldinn var 30. okt. 1980, flutti forsrh. inngangserindi sem fjallaði annars vegar um tilgang reglubundins samráðs og samstarfs stjórnvalda og hagsmunaaðila atvinnulífsins og hins vegar gerði hann grein fyrir þjóðhagsáætlun fyrir árið 1981. Að því loknu urðu ítarlegar umræður, skipst var á skoðunum og fyrirspurnum svarað og tekið við ýmsum ábendingum. Fundurinn var í senn gagnlegur og ánægjulegur.
Í framhaldi af samráðsfundinum fóru fram margvíslegar óformlegar viðræður. Á þessum tíma var unnið að því að móta efnahagsaðgerðir ríkisstj. Þær voru birtar á gamlársdag, en áður voru samráðsaðilar boðaðir til fundar hver í sínu lagi og efnahagsáætlunin kynnt. Var þar bæði fjallað almennt um þessar ráðstafanir og rætt um framkvæmd þeirra á næstu vikum og mánuðum.
Í 5. lið efnahagsáætlunar ríkisstj. frá 31. des. 2980 segir svo: „Viðræður verði hafnar við samtök launþega og aðra hagsmunaaðila atvinnulífsins um framkvæmd samræmdrar stefnu í kjaramálum, atvinnumálum og efnahagsmálum til næstu tveggja ára.“
Ríkisstj. skipaði 12. febr. s. l. viðræðunefnd til að hafa samráð við hagsmunaaðila atvinnulífsins. Viðræðunefndin hefur þegar haldið fundi með öllum samráðsaðilum. Samstarfsformið hefur verið rætt, fundir verið haldnir með fulltrúum hvers samráðsaðila fyrir sig og verður svo a. m. k. fyrst um sinn. Með því fyrirkomulagi er þess vænst að umræður geti orðið opnari og frjálslegri, en auk þess gefst rýmri tími til að kanna ítarlega einstök mál, sem e. t. v. snerta einn hagsmunaaðila fremur en annan. Það er þó á engan hátt búið að festa tilhögun samstarfsins í endanlegt form, heldur er leitast við að halda leiðum opnum í þessu efni þannig að samráðsformið geti farið í þá farvegi sem talið er bera mestan árangur á hverjum tíma. Fyrirhugað er að halda næstu fundi fyrir lok þessa mánaðar. Samtök hagsmunaaðila atvinnulífsins munu þá væntanlega kynna sjónarmið sín og setja fram drög að yfirliti yfir helstu viðfangsefni sem þau óska eftir og telja eðlilegt að tekin verði fyrir á þessum vettvangi. Viðræðunefnd ríkisstj. mun hins vegar kynna og afhenda nýjustu gögn og upplýsingar um stöðu og horfur í efnahagsmálum og aðra þá þætti sem falla undir verksvið þessa samráðs.
Þarflaust er að rekja nánar nytsemi samráðs með þessum hætti. Það er nauðsynlegur þáttur í lýðræðisríkjum, eykur skilning og stuðlar að þjóðfélagslegri samstöðu. Reynsla ríkisstj. af samráði við hagsmunaaðila atvinnulífsins hefur þegar verið góð, og fyrirhugað er að efla það eftir þeim línum sem þegar hafa verið lagðar.