04.11.1980
Neðri deild: 11. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í B-deild Alþingistíðinda. (318)
17. mál, olíugjald til fiskiskipa
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég skal ekki tefja þessa umr. mikið.
Ég gerði grein fyrir afstöðu Alþfl. til þessa frv. strax við 1. umr. Meiri hl. sjútvn. var andvígur frv. Fyrir því var gerð grein hér í gær. En í umr. í gærkvöldi ræddi formaður sjútvn. og frsm. minni hl. n. í alllöngu máli um þetta og ræddi m.a. um þá einkennilegu afstöðu Alþfl. að vera andvígur þessu máli nú. Hv. þm. Garðar Sigurðsson hefur líklega ekki fylgst með þegar 1. umr. málsins fór fram. Ég gerði þá grein fyrir því, að í öll skiptin, sem olíugjaldið var ákvarðað í tengslum við fiskverð, utan núna var það gert án andstöðu eða mótmæla sjómannastéttarinnar. Þetta er í eina skiptið sem olíugjaldinu er alfarið mótmælt eins og það er ákvarðað nú í tengslum við fiskverðið. Á því er reginmunur. Það er því ástæðulaust fyrir hv. þm. Garðar Sigurðsson að telja óskiljanlegt hver afstaða Alþfl. er núna til þessa máls. Málið var leyst í öll hin skiptin án þess að það væri talin ástæða til af hálfu sjómannasamtakanna að andmæla því eða mótmæla og í flestum tilfellum varpað samþykkt af þeirra hálfu.
Á fund í sjútvn. kom m.a. Ingólfur Ingólfsson, fulltrúi sjómanna í Verðlagsráðinu. Hann lýsti þar hinum fáheyrðu vinnubrögðum núv. hæstv. sjútvrh. í umfjöllun þessa máls nú. Ingólfur Ingólfsson lýsti því yfir að aldrei fyrr hefði hann heyrt um ákvörðun fiskverðs og olíugjalds í fjölmiðlum eða lesið það í blöðum án þess að hann vissi af því sem einn af þeim aðilum sem um málið eiga að fjalla. Núna gerðist það fyrst að ekkert samráð væri haft við fulltrúa sjómanna varðandi ákvörðun um olíugjaldið eða fiskverðið. Þetta þykja mér mikil tíðindi, í ljósi þess ekki síst að núv. hæstv. sjútvrh. gaf fullkomlega ádrátt um það við lausn kjaradellu sjómanna á Vestfjörðum á s.l. vori að olíugjaldið yrði fellt niður, en ekki hækkað að því marki sem hann leggur nú til. Þetta verða að teljast furðuleg vinnubrögð. — Hins skal getið, að fulltrúi útvegsmanna, formaður Landssambands ísl. útvegsmanna, Kristján Ragnarsson, lýsti því yfir á hinum sama nefndarfundi, að fullt samráð hefði verið haft við þá í þessu máli varðandi þessa ákvörðun. Á þessu sjá menn hvor aðilinn það er sem hæstv. núv. sjútvrh. ber fyrst og fremst umhyggju fyrir: Ekkert samráð haft við sjómannasamtökin, fullt samráð við útvegsmannasamtökin.
Ég sagði, herra forseti, að ég skyldi ekki verða langorður um þetta mál eða tefja tímann. Ég vildi að þetta kæmi hér fram vegna þess að þetta kom fram á fundi sjútvn. En ég vil einnig benda á það, sem fram kemur í nál. meiri hl. sjútvn., að þetta mál var sent til umsagnar Alþýðusambands Íslands, en frá þeim aðila heyrðist ekkert um þetta mál, sem er þó stórkostleg kjaraskerðing að því er varðar sjómannastéttina. Alþýðusambandið sá ekki ástæðu til að segja eitt eða neitt um þetta mál.
Það hefur verið gerð grein fyrir því hér, hver varð niðurstaðan í áliti Sjómannasambands Íslands eða þings þess, og ég sé ekki ástæðu til að fara að fjölyrða um það, en áðurgreind atriði taldi ég rétt að kæmu fram áður en málinu væri endanlega lokið hér í deildinni.