24.03.1981
Sameinað þing: 64. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3055 í B-deild Alþingistíðinda. (3182)

377. mál, greiðslufrestur á tollum

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Hv. þm. Friðrik Sophusson spyr: „Hvenær stefnir ríkisstj. að því að veita greiðslufrest á tollum? Hve mikinn? Hve langan?“

Mál það, sem um er spurt, er tvímælalaust athyglisvert mál og það hefur um alllangt skeið verið til meðhöndlunar í fjmrn. án þess að fá þaðan endanlega afgreiðslu. Fyrir liggur nefndarálit, sem frágengið var sumarið 1978, um greiðslufrest á aðflutningsgjöldum. Ekki varð úr frekari framkvæmdum á þeim tíma vegna þess að of mikið þótti enn óunnið í málinu til að hægt væri tæknilega að hrinda því í framkvæmd. Einnig varð ljóst að ein sú breyting, sem nál. gerði till. um, fól í sér verulega tekjutilfærslu eða tekjuseinkun fyrir ríkissjóð, auk hugsanlegra afleiðinga fyrir efnahagsþróun, en að þessum hliðum málsins var lítið vikið í fyrrnefndu nál. Rétt er að greina í örstuttu máli frá helstu niðurstöðum þessa álits frá 1978.

1. Nefndin lagði til að stefnt yrði að löggjöf, en ekki leyst úr málinu með breytingu á reglugerð eða öðru stjórnvaldserindi.

2. Rétt þótti að krefja innflytjendur um tryggingu fyrir þeim tollum, sem þeir fengju lánaða, og eðlilegast að það væri í formi bankatryggingar. Þetta er veigamikið atriði sem snertir tryggingu opinberra fjármuna. Mjög margt er enn ókannað hvað þessa hlið málsins snertir.

3. Gjaldfrestur skyldi vera almennur, miðaður við verðmæti, en ekki ákveðnar vörutegundir.

4. Nefndin var þeirrar skoðunar, að vegna tilfinnanlegs tekjumissis fyrir ríkissjóð yrði tollkrítin að koma smám saman. Þetta atriði hefur ekki verið skoðað nógu vel eins og er. Er því veruleg óvissa um þennan þátt málsins og ákvarðast að sjálfsögðu mest af lengd gjaldfrestsins og fjölda innflytjenda. Ef farið hefði verið eftir niðurstöðum nál. hefði vaxtatap ríkissjóðs árið 1977 numið frá 500 til 800 millj. kr. Þetta hefði í reynd verið tekjutilfærsla frá ríkissjóði til innflytjenda og má af þessari tölu sjá að um verulegar upphæðir er hér að ræða.

Nefndin varð sammála um að ekki kæmi til mála að aðrir yrðu aðnjótandi tollkrítar en þeir sem stunduðu innflutning sem aðalatvinnu og yrðu þeir annaðhvort að hafa tollkrít á öllum innflutningi sínum eða engum. Nú er þannig háttað málum, að engin skrá er til um þá innflytjendur sem hafa innflutning sem aðalatvinnu, og þarf því að semja slíka skrá. Tollstjóranum í Reykjavík hefur verið falið að annast margvíslega forvinnu út af því, en hann hefur m. a. haft samband við Verslunarráð Íslands um þetta og ýmis fleiri atriði sem snerta tollkrítarmálin almennt og þarfnast frekari glöggvunar.

Ekki þykir ástæða til að rekja frekar niðurstöður nefndarinnar frá ágúst 1978 nema ef geta ætti þess, að hún áleit 60 daga rétta lengd gjaldfrestsins.

Eins og áður segir er nokkuð óljóst um almenn efnahagsleg áhrif þessa fyrirkomulags, en augljóst er að það eykur peningaþenslu í þjóðfélaginu til að byrja með. Á móti dregur að einhverju leyti úr útlánum bankanna til innflytjenda. Heildaráhrifin eru þó enn of lítið könnuð, en Seðlabankinn hefur tekið að sér að gera úttekt á þessari hlið málsins, og þeirri úttekt er enn ekki lokið.

Eins og ég hef getið hér að framan eru mörg veigamikil vandamál óleyst sem flest snerta fjárhagsafkomu ríkissjóðs, þ. e. þau skilyrði sem tollkrítin byggist á og hvað varðar tekjutap ríkissjóðs og endurgreiðslu lánanna. Auk þess bætast hugsanlega við aukin útgjöld vegna meiri tollgæslu.

Það er áform ríkisstj. að vinna að því, að tollkrít verði tekin upp í áföngum. Þetta markmið kom fram í svonefndum áramótaboðskap núv. ríkisstj., þ. e. stefnumótun ríkisstj. í efnahagsmálum á gamlársdag.

Fyrirspyrjandi gat þess hér áðan, að hreyfing mundi nokkur á málinu, og ég vil staðfesta að svo er. Eins og ég hef þegar gert hér grein fyrir er verið að vinna að málinu. Ég hef m. a. stuðlað að því, að tollstjórinn í Reykjavík hefur tekið upp beint samband við Verslunarráð Íslands, og gert er ráð fyrir að fulltrúi frá Verslunarráði Íslands vinni alfarið að þessu máli um nokkurt skeið. En málið er sem sagt óljóst í mörgum veigamiklum atriðum.

Til þess að vinna að þessum og öðrum málum sem snerta þetta stóra mál, svo og til að semja frv. til laga um tollkrít, hefur verið ákveðið að skipa sérstaka nefnd. Á nefndin að hafa skilað af sér fyrir 1. júlí n. k.

Að öðru leyti en að framan getur er ótímabært að greina frá einstökum atriðum þessa máls nánar, en stefnt er að því að leggja fram lagafrv. næsta haust.