24.03.1981
Sameinað þing: 64. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3059 í B-deild Alþingistíðinda. (3186)

377. mál, greiðslufrestur á tollum

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Það er alveg rétt, sem bent hefur verið á í þessum umr., að við umr. um málið fyrir einu ári væntu menn þess, að hægt yrði að ljúka afgreiðslu þessa máls á Alþingi nú í vetur. En ég segi það bara eins og er, að ég hef ekki mikla von um að svo geti orðið. Málið hefur reynst flóknara en menn ætluðu, og mér hafa tjáð allir þeir ráðgjafar, sem ég hef sótt ráð til um þetta mál, að ýmsir þættir málsins þurfi nánari skoðunar við, ekki sé ráðlegt að samþykkja málið óbreytt í þeim búningi sem gerð hefur verið till. um hér í þinginu, það þurfi að ræða miklu betur en gert hefur verið hvernig þessu verði komið á í framkvæmd. M. a. er tollstjórinn í Reykjavík mjög eindregið þessarar skoðunar, en ég hef margsinnis rætt málið við hann og fleiri menn. Ég tel því óhjákvæmilegt að málið verði nánar skoðað.

Eins er það með fjárhagshliðina. Það er óumdeilt, að þegar fyrirkomulag af þessu tagi kemst til framkvæmda hlýtur það fyrst í stað að hafa í för með sér mjög verulegan tekjumissi fyrir ríkissjóð. Fljótt á litið, miðað við núverandi tekjur ríkisins af tollum, er líklegt að tekjumissir ríkisins geti numið einhvers staðar á milli 50 og 100 millj. nýkr, eða milli 5 og 10 milljörðum gkr. Það er engin smáupphæð og það verður auðvitað að sjá fyrir því með hvaða hætti ríkissjóður geti tekið á sig slíka byrði, hvernig hann geti mætt slíku áfalli þannig að það hafi ekki alvarlegar efnahagslegar afleiðingar. Þessi þættir málsins eru sem sagt ekki nægilega kannaðir, auk þess sem ráðstöfun af þessu tagi gæti haft efnahagslegar afleiðingar sem Seðlabankinn hefur sérstaklega tekið að sér að gera greinargerð um, en hefur ekki skilað henni enn þá. Þess vegna held ég, ef eðli málsins er skoðað, að engum þurfi að koma á óvart þótt afgreiðsla þess dragist til næsta vetrar.

Ég vil í þessu sambandi leyfa mér — án þess að vera með nein sérstök skot í því sambandi — að minna á það, að hv. þm. Geir Hallgrímsson veitti forstöðu ríkisstj. í fjögur ár án þess að koma þessu máli í höfn. Ég er ekki að saka hann um að honum hafi orðið einhver stórfelld mistök á, en það er greinilegt, að málið hefur dregist fyrr en nú. Þetta mál var til umræðu allan seinasta áratug. Líklega hefði verið hægt að drifa það fram ef nægilega mikil starfsorka og kraftur hefðu verið lögð í að undirbúa málið meðan hv. þm. gegndi stöðu forsrh. En því miður tókst það ekki, og við verðum að vonast til að við komum því í höfn áður en langt um líður.